++ Áhugasamir sendi tölvupóst á: email@icomefromreykjavik.com ++
Hæ halló elskulegir vinir og fjendur, nær og fjær.
Íbúðin mín í New York er líklega laus til leigu frá 1. júlí jafnvel fram á næsta vor.
Helst vildi ég finna leigjanda sem verður í New York í nokkra mánuði (t.d. allt sumarið, eða fram á vor), hentar t.d. mjög vel fyrir námsmenn. Annars er ég tilbúinn að leigja hana áhugasömum og hjartagóðum sem ætla sér að heimsækja New York í einhvern tíma, stuttan eða langan.
++ Verðið er ca $150 á nóttu, en að sjálfsögðu mun betri prís fyrir lengri leigu.
Íbúðin er á frábærum stað á frábærri Manhattan, á 3. Avenue á milli 33. og 34. strætis í hverfi sem heitir Murray Hill. Kort: http://tinyurl.com/hallaibud
Hér er fullt af allskyns veitingastöðum frá öllum hornum alheimsins, tveir ilmandi ferskir súpermarkaðir (opnir langt fram á kvöld) eru sitthvorumegin við götuna, apótek (opið 24/7) á næsta götuhorni, stórt bíó og bókabúð einni götu frá, margt fleira sem gleður hjartað mitt á hverjum degi, og neðanjarðarlestarstöð í 2ja mínútna fjarlægð sem tekur þig hvert sem þú vilt. Rétt hjá Empire State byggingunni, stutt labb á Herald Square, þar sem þú finnur Macy's ofurverslunarmiðstöðina, ásamt Manhattan Mall, Victoria's Secret, H&M, Gap, Sephora snyrtivörubúðinni, Footlocker skóbúðinni, og endalausu öðru, og stutt labb niður Manhattan í Greenwich Village, SoHo, East Village, Lower East Side o.s.frv. Fyrir allt annað er hægt að taka lestina (sem er ó svo nálægt) eða hægt að hoppa uppí misglansandi leigubíla sem stoppa beint fyrir utan (eða hvar sem þú vilt). Fínt fyrir verslunarferð, frábært fyrir lengri dvöl.
Þetta er stúdíóíbúð með baðherbergi, inngengnu eldhúsi, og inngenginni fatageymslu (walk-in closet) með góðu geymsluplássi. Íbúðin kemur með öllu sem þú þarft: húsgögnum, sjónvarpi, DVD, loftkælingu og ofnum, og mjög hraðvirkri kapal-internettengingu.
Aftur:
Stúdíóbúð til leigu á Manhattan, 1. júlí 2009 fram til vors 2010.
Hafðu samband á email@icomefromreykjavik.com
Takk,
Halli