
Hæ New York.
Ég kom síðast hingað í mars og var í tvær vikur, þaraf smá í Bates í Maine, þar sem ég kynntist Fluffi. Ó hvar hefuru verið allt mitt líf, gad dem. Klístraður þeyttur sykur í krukku, sem hægt er að klína á hvað sem er?! Halló???!!
Núna er ég hér með tveimur Sunnum. Einni með ljóst hár, og einni með ljósár.
Er búinn að fylla sársaknandi magann af matnum sem ég elska New York fyrir næstum meira en allt. Sushi á Hiroshi, Ramen á Men Ku Tei, steik á Outback, borgara á SoHo Park, cupcakes á Magnolia, gott falafel, ostaköku, maískornið á La Esquina, og hráfæði á Le Sex & The City Restaurant (djók).
Erum búin að liggja í Central Park með handklæði (ódýrara en teppi), brauð með jalapeno og cheddar, og bók. Og vatn. Og sitja í Bryant Park með jarðarber og kirsuber. Og fara á frábæran flóamarkað í Hells Kitchen sem er opinn hverja helgi. Hann er bæði á tveimur stöðum á 25. stræti (inni og úti) og svo úti á 39. stræti.
Að spælast í sólinni lá brennheit 8mm vídjókamera sem virtist alveg heil.
How much?
- 10 dollars.
Does it work?
- Okay okay okay okay. (hristir hausinn) 5 dollars.
Ég var meðvitundarlaus eftir þetta prúttsessjón.
Vídjókameran var ennþá brennheit í pokanum klukkutíma seinna þegar við skoðuðum allskonar fínerí á tveggja-hæða-bílageymslu-flóamarkaði einni blokk vestar. Ég kauffti ný batterí og myndavélin virkar einsog það sé 1978. Filman sem var í henni er hálf samkvæmt mælinum, en ég veit ekkert hvað er á henni. Nicolas Cage hringdi og sagði mér að horfa ekki á hana. Ég sendi hana máski nafnlaust í framköllun, ef ske kynni að á henni sé eitthvað viðbjóðslegt (senur úr Titanic eða Þingsjá...).
Ég veit samt ekki alveg hvernig og hvort ég ætla að taka margar filmur, því stutt gúgl sagði mér að ég get annaðhvort látið framkalla filmuna í Kaliforníu...eða Sviss, sem er augljóslega einstaklega hentugt.
Er búinn að þefa ævifylli mína af vintage kjólum, samt er fyndið að á flóamarkaðnum var góð lykt af fötunum, á meðan að bolabúðir lykta einsog...gamalt drasl, sem meirihlutinn auðvitað er (wire hangers, n***a please). Við fórum í pelsakjallarann í bolabúð og þetta var einsog að stíga inní sánu í miðju Sædýrasafninu, fjakk.
Á (vel lyktandi) neðri hæð bílastæðahússins var fín eldri frú að selja kjóla. Áður en ég vissi af var ég farinn að opna mig um þrá mína í dönsk 60s húsgögn, og hún kinkaði kollinum og sagði "dansk...dansk...". Við bonduðum einsog danskt húsgagnalím í höndunum á Finn Juhl, en mér tókst ekki að draga neitt hjálplegt uppúr henni.

Þegar ég var á fullu að stara á fallegt sushiið á Hiroshi tók ég eftir einhverju blaktandi útundan mér. Útum gluggann sá ég fallega þvegið hárið og dinglandi yfirvaraskeggið á hippalegum vet fljótandi í næturmollunni er hann gekk framhjá veitingastaðnum með strigapokann á bakinu. Mér finnst þetta uppgjafahermannaútlit alltaf jafn merkilegt og pínu fyndið. Ég tuggði með hálflokuð augun og leit aftur útum gluggann...og sá gaur hjóla upp þriðja avenue, á móti umferð. Hann var hippalegur vet með fallega þvegið hár og dinglandi yfirvaraskeggið fljótandi í næturmollunni. Ætli þeir hafi vitað hvor af öðrum?
Skilaboð (7)
hah ég hélt fyrst þú værir að meina vet as in dýralæknir:) skildiggi hvernig þú sást það á honum,..
gaman að fá þig aftur á bloggið
Skrifað 02.06.09 06:02
Ekki frá því að ég hafi fellt tár af gleði við að sjá nýtt blogg frá þér Hanni sinn.
Skrifað 02.06.09 10:10
Mér finnst þetta VET vs. VET líka fyndið.
Skrifað 02.06.09 11:37
Þín var sárt saknað. Gaman að sjá nýtt blogg. Gleði.
Skrifað 05.06.09 22:11
jei en skemmtilegt. nýtt fínt.
ýkt spennandi vídjó.
og gætirðu komið kannske heim með eina hvíta cupcake með bleiku kremi fyrir mami?
og 3 hátalara sem ég keypti á ebay og koma með ups einhvern næstu daga (þú verður að vera heima þegar þeir koma með pakkann) og svo væri geggjað ef þú gætir fundið fyrir mig svona skó - þú veist sem fást ábyggilega þarna út um allt, kannski 2-3 pör. og jólapappír. nokkrar rúllur bara. og bara ef þetta er ekkert vesen. takk.
Skrifað 11.06.09 12:05
nú græt ég af gleði yfir nýju bloggi og af söknuði til new york borgar sem ég þrai hverja mínútuna þessa dagana...
Skrifað 25.06.09 06:55
I must say that overall I am very taken with this site. It is apparent that you know you subject matter and you are passionate about it. I wish I had got your ability to write. I have bookmarked your site and look forward to more updates.
Skrifað 27.08.10 16:54