« Partý! Hotplay (from Europe) á 22 á morgun, miðvikudag kl. 22 | Aðalsíða | Vestmannaeyjaættarmót #2 »

Vestmannaeyjaættarmót

Hvar er ég?

Ég var farinn að hlakka til ættarmótsins, en var ekkert í alltof miklum tilhlökkunarfíling fyrir Herjólfsferðina. Ég man ekki hvenær ég sigldi síðast, en er nokkuð viss að ég hefi legið einhversstaðar með bumbulan maga og séð eftir að hafa ekki fljúgt. Örugglega ekki Akraborgin þar sem ég lá oft með ennið á rúðunni, en hmm kannski var það í Baldri á leiðinni útí Flatey, þegar ég lá oná einhverjum risaköðlum útá dekki og kreisti aftur augun og Nenni frændi minn stumraði yfir mér. Ég sigldi líka stutt í Marmaris (í Tyrklandi) en það var bara sweetness í sól og standard sjóroki, og maginn er til í þannig. Kannski verður fólk bara veikt í stórum skipum sem rugga, ég veitiggi það -- ég nenni bara ekki að vera sjóveikur og gubba, og gleypti þessvegna sjóveikipillu og fór mjög snemma niðrí káetu og hlustaði á ítaló og sofnaði vært. Og, það er skrýtið að tilað forðast sjóveiki varar Herjólfur við brösuðum mat, en selur bara brasaðan mat um borð.

Káeturnar eru samt fínar tilað sofna í, en ég vaknaði í hitasjokki, enda loftlaus káeta ekki kjöraðstæður fyrir tvo hrjótandi karlmenn.


Kýr með auga


Veðrið er búið að vera ólýsanlega frábært, heiðskýrt, sól, hiti, logn, o.s.frv., og hótelherbergið okkar snýr í sólarátt frá kl. 11 um morguninn og er því heeeeiiiiiitt. Þegar við vorum öll nýkomin á hótelið sátu ég og frændi minn hálf líflausir með sveitta búka, og mig langaði í loftkælingu og ananaskokteil...eða hafgolu eða ísklefa einsog heiti gaurinn í Sval og Val, eða bara eitthvað tilað blása lífi í minn klístraða kropp.

Við borðuðum góða súpu á hornstaðnum, og Natalie Portman tvífarinn afgreiddi okkur einsog fagmaður. Þær eru báðar sætar. Mjög sætar. Hún sagði sum orð með framburði sem gæti verið hreimur, mjög daufur færeyskur eða eitthvað, en ég held að þetta sé mállýska, því hraðbankastelpan á hjólinu sem við spurðum til vegar sagði nokkur orð jafn míkró-skringilega, og samt var hún örugglega rammíslenzk.

Ég spurði frænda minn um nafnið á þráðlausa netinu, og fannst ótrúlega skrýtið og taktlaust að það héti "osama 2". Mín mistök, það heitir "þórshamar 2".


Hlaupandi barn


Ég er á ættarmóti í Vestmannaeyjum, og er búinn að læra fullt um það hvernig ég sé ættaður héðan...beisiklí er allt gott í Vestmannaeyjum minni ætt að þakka: skipsfloti, gosbjörg, golfvöllurinn, sólin, blómin, hreina vatnið, ást og tilfinningar -- ef það er gott, þá ber ég (við) ábyrgð á því.

Þetta er annað skiptið sem ég kem hingað, síðast kom ég fyrir 10 árum á samskonar golfættarmót, sem allir ættkvíslar nema minn taka æstir þátt í. Ég spilaði golf síðast árið 2003 og langar ekki að halda uppi heiðri familíunnar með grætandi klúðri og glompuhangsi.

Ég er búinn að hitta allskonar frábæra frændur og frænkur, og fatta að það voru bara tvær manneskjur sem ég þekkti sósjallí: báðar voru í MS, önnur vinkona kærustu vinar míns, hin sem nokkrum vinum mínum fannst alltaf sæt en enginn þekkti.

Eftir fáránlega langan tíma hitti ég loksins tvo frændur mína og foreldra þeirra, en við vorum alltaf saman þegar ég var lítill. Fluttum eiginlega samferða í Grafarvoginn '85, og vorum saman í bekk og vinnuskúragleraferðum og allskonar...á stofnfundi Fjölnis með skott, í skátunum, að vaða blöndu af sandi og manna í voginum og allskonar...og svo bara blúbbs, hittumst við ekkert í mörg ár. Sá reyndar eldri bróðurinn á efri hæð Priksins fyrir nokkrum árum, hann var með skákborð í fanginu og bjór í maganum, en ekkert eftir það.


Girðingastaur


Eftir að við lögðum okkur og mig dreymdi allskonar flækjuástand með fólki sem er löngu horfið úr lífi mínu (yfirmenn, ástkonur, vegfarendur, samnemendur, o.s.frv.) -- sem hefur síðustu fimm nætur orðið frekar þreytandi og undarlegt þema -- borðuðum við kvöldmat í matsal hótelsins. Frænka mín fékk sér lunda í berjasósu, og ég fatta núna að ég mun líklega missa af því að tyggja lunda í Vestmannaeyjum, sem er eina rétta leiðin -- að borða lunda í Breiðholti er skammarlega rangt á mörgum layerum. Ég fékk mér bara seelöúng, og fattaði þegar ég var byrjaður að kyngja að auðvitað er hann frá meginlandinu, enda ekkert ferskvatn fyrir hann tilað gleypa öngul eða vefjast í net. En hann var gút, með möndlum og capers og sméri.

Margir komu hingað á fimmtudaginn, en ég held að meirihlutinn hafi komið á föstudeginum. Allir hittust svo föstudagskvöldið í Herjólfsdal, sem...er...frekar fallegur, svo ég, fordómafullur og að-vonast-til-að-hann-sé-hræðilegur, segi sjálfur frá. Með herkjum. *hrækj*

Það var gaman að sjá loksins afsprengi ættingjanna eftir að hafa heyrt sögur í mörg ár. Emilía frænka mín lærði strax fullt af skrílslátum og skrækjum og það var ó svo gaman að horfa á hana verða ringlaða af leikvinaúrvali. Ég dró að mér börn sem hentu í mig netadræsum og klökum, og sturtuðu grasi og fíflablöðum úr plastglösum, oftast í hausinn minn. Slapp við moldarmakaða lófa í buxurnar eða fésið, hefði fundist það verra en ég hefði sýnt.


Fallegt hótel í miðbæ Heimaeyjar.


Að ofan er hótelið sem við gistum á, í miðbæ Heimaeyjar. Allt að gerast.

Vestmannaeyjar eru frekar fínar, a.m.k. er gaman að hanga hér með fullt af fínum ættingjum og með góðan mat að ferðast um líkamann.

Skilaboð (2)

vá en fínt og en gaman það sé svona gaman:)

ég er samt líka með smá vonbrigði yfir að herjólfsdalur sé ekki ógeð

Mig langar aksjúallí aftur til Vestmannaeyja. Held það sé mjög fínt að vera þarna ef það er gott veður og þú ert með plan.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 19. júlí 2008, kl: 19:08.

Fyrri færslan er Partý! Hotplay (from Europe) á 22 á morgun, miðvikudag kl. 22.

Næsta færsla er Vestmannaeyjaættarmót #2.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31