Mamma fór í Endurvinnsluna í dag með poka af flöskum og dósum.
Á undan henni í röðinni voru tveir austur-Evrópskir menn. Þeir, einsog hún, voru búnir að skrifa fjölda flaskna á miða, og þegar kom að þeim réttu þeir starfsmanni Endurvinnslunnar miðann ásamt pokunum.
Starfsmaðurinn lagði miðann frá sér, og eyddi miklum tíma í að telja vandlega allt úr pokunum. Talningin tók dágóða stund, og löngu seinna fengu mennirnir loks peninginn.
Svo kom að mömmu. Hún rétti starfsmanninum miða. Hann sagði takk, og rétti henni pening. Hann þurfti ekkert að telja því hún, skiluru, er heiðvirður Íslendingur.
Væri ekki betra fyrir Endurvinnsluna að vera bara með tvær raðir?
Eina fyrir Íslendinga, og aðra fyrir fólk sem lýgur og stelur.
Skilaboð (3)
útlendingar allt vaðandi í útlendingum
Skrifað 25.07.08 14:49
Ji en ótrúlegt! Ég var að vonast til að það væri eitthvað einsdæmi þegar ég fór í endurvinnsluna um daginn. Þá var austur evrópskt par á undan mér með heilan helling af pokum og starfsmaðurinn taldi allt í pokunum þeirra. Síðan kom að mér og það var varla horft á pokana mína. Spes!
Skrifað 25.07.08 17:54
Vá...þetta er ömurlegt.
Langar að safna svona sögum, og setja allt á netið.
Skrifað 25.07.08 21:12