Ég, mamma og frændi keyrðum upp Kringlumýrarbrautina, nýlögð af stað til Stokkseyrar, þar sem við ætluðum að borða humar, og svo til Eyrarbakka, þar sem við ætluðum að njóta formlegs opnunarhófs ljósmyndasýningar Sigurjóns.
Þegar mamma, bílstjórinn, hægði á bílnum er við nálguðumst ljósin, sá ég hvað stelpan í svarta smábílnum var með þykkt og fínt hár. Virkaði mjög heilbrigt, og bíllinn var hreinn, meiraðsegja felgurnar, og enginn bensíntaumur frá lokinu.
Hún var á akreininni til hægri, og við stoppuðum við hlið bílsins hennar.
Hún hagræddi baksýnisspeglinum, sem var laus við allt glingur, og greiddi lauslega í gegnum hárið sitt. Hún var í flottum bol, og á mjög óræðum aldri, gæti verið þrjátíuogþriggja, eða tuttuguogfjögra. Hún virtist mjög róleg, ekki að flýta sér neitt, og ég greindi ekki tónlistina sem lét hana dilla hausnum ofurlétt. Í framsætinu var lítill plastpoki á stærð við litla dagbók, lítil handtaska, og sími.
Hún nuddaði saman vörunum, klóraði sér á kinninni, og stakk þvínæst puttanum beint -- og frekar djúpt -- uppí nefið. Og hrærði, og kíkti svo á útkomuna.
Þegar græna ljósið kom loksins, færði mamma fótinn af bremsunni, og bíllinn jók stöðugt hraðann upp Kringlumýrarbrautina.
Útum bílstjóraglugga svarts smábíls lá fíngerð og hæfilega brún dömuhendi, og muldi hor niðrí götuna.
Skilaboð (3)
Mannstu:
Grillhús Guðmundar, Tryggvagötu.
Stelpan sem bar fram matinn okkar og missti hortauminn úr nefinu sínu, saug hann jafnhratt upp og hann kom út og horfði á okkur með skelfingar "úps" "ónei"- svip.
Það var ógeð!
Skrifað 28.07.08 11:06
Haha, já, eins metra langur óslitinn hortaumur frá nös niðrá gólf.
Vá hvað það var ótrúlega ógeðslegt.
Skrifað 02.08.08 20:39
Great concepts on this website. It's rare these days to find websites with data you are seeking. I am happy I chanced on this webpage. I will certainly bookmark it or even register for your rss feeds simply to be updated on your new posts. Keep up the nice job and I'm sure some other folks researching valued information will actually stop by and benefit from your website for resources.
Skrifað 27.08.10 19:44