Í mörgum spjallþættum eru skálar með allskonar ávöxtum og dóti sem viðmælendur og stjórnendur teygja sig stundum í. Vínber, jarðarber, eitthvað sem hægt er að stinga uppí sig og borða fljótt. En þarna er líka eiginlega alltaf bananaklasi.
Ég held að eitt það síðasta sem sjónvarpsviðmælandi með óskerta greind gerir erað teygja sig í banana og borða hann live on tv.
Það er svipað og fara að smyrja ristaða brauðsneið í miðju viðtali. Eða borða súpu.