« Ég heiti Ísbjörn, ég er Ljón | Aðalsíða | Partý! Hotplay (from Europe) á 22 á morgun, miðvikudag kl. 22 »

Partýýýý! Plötuspilerí á 22 á laugardaginn

Ég veit að þér fannst ótrúlega gaman í Ítalópartíiunum sem ég og Svenni héldum síðasta sumar og í vetur, og nú geturu tárast af gleði því við spilum á Dansa Meira kvöldi á vegum Partyzone laugardagskvöldið 21. júní á efri hæð 22.

Annað kvöld frá kl. 22 -- við byrjum snemma, því allt sem er gott í lífinu byrjar snemma (kynþroski, kökuilmur, og ítaló).

Við erum með nýtt nafn: HOTPLAY (from Europe). Auk Ítaló Diskó slagara ætlum við að spila synthpop, new wave, old skool house, freestyle, old skool hardcore, og aðra gamla stuð- og heilunarmúsík fyrir mannfólk.

Síðar um kvöldið munu Már & Nielsen troða upp, þannig að þetta verður svaka veisla.

Hér er Minimix með smá smakki af músíkinni sem við spilum. Sæktu og hlustaðu. Þetta eru 16 mínútur og 49 sekúndur sem þú sérð ekki eftir.

Kontrapunkt
Hotplay (from Europe) - Minimix

21. kl. 22 á 22 -- ekki erfitt að muna það, ha?

Skilaboð (6)

Skyldumæting. Verð í anda. Fíla nýja nafnið mjög vel. Það er ótrúlega gott. Og svo er boogie í mixinu! Svo sweet. Þú hefur ekki keypt þér 12-tommuna með Boeing?

sjitt hvað þetta var skemmtilegt, ég vildi að 1.júlí væri kominn strax, ég get varla beðið

Ekki ég heldur.

Og mundu svo að mæta daginn eftir, 2. júlí, á 22.

hahaha..ég hélt þið væruð að spila 1.!

Sigrun Osk:

Kokuilmur?! Haha. Eg er svo aldeilis...

Leitt ad hafa misst af studinu. Vona ad hafi gengid vel. Er i utlandinu. Kem naest!

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 20. júní 2008, kl: 14:30.

Fyrri færslan er Ég heiti Ísbjörn, ég er Ljón.

Næsta færsla er Partý! Hotplay (from Europe) á 22 á morgun, miðvikudag kl. 22.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31