Ég hlakkaði dáldið til að sjá þátt Jóns Ársæls um hinn óóó svo frábæra Kristinn Jón Gunnarsson sem hefur búið í New York síðan 1988.
Stefán Jón Hafstein skrifaði mjög forvitnilega bók um Kristinn Jón, N.Y. N.Y., sem var full af allskyns sögum um bæklingadreifingu, jakkaföt og bindi, krakkhórur, Ms. Curry, og full af sniðugu orðalagi Stefáns og Kristins, Jóns og Jóns.
Semsagt, frábært hráefni: Kristinn Jón, jakkaföt, krullur, frábærar sögur, merkilegt líf. Og auðvitað ótrúlega fín borg.
Þátturinn var hins vegar hrrrrræðilegur. Kristinn Jón auðvitað magnaður karakter, en á undraverðan hátt tókst Jóni Ársæli að gera þáttinn alltof handahófskenndan, spila Frank Sinatra aftur og aftur og aftur og aftur, og eyða fáránlega mörgum mínútum í að sýna endalaus myndskeið af háhýsum og auglýsingaskiltum og mannmergð, í stað þess að aksjúallí tala við merkilega manninn sem hann varað hitta. Borgin sjálf var auðvitað hluti af sögunni, en það kjánalega er að allt það sem myndskeiðin sýndu voru mesta klisja sem hugsast getur, og akkúrat andstæðan við það sem Kristinn Jón upplifir og gerir úti.
En Jón Ársæll (og krúið) eru bara að fylgja íslensku reglunum um viðtöl við einhvern Íslending í einhverri stórborg: helmingurinn af viðtalinu eru generic og tourist guide-leg svör viðmælandans um fólksfjölda, veðurfar, vinsælasta matinn, vinsælustu söfnin, og mestu túristaklisjurnar o.s.frv. o.s.frv. -- semsagt hlutir sem hver sem er getur talað um. Þetta er vissulega fínt og fræðandi (kaldhæðnislaust, ég sver!), en ég held að heimurinn þoli bara ákveðið magn af svona viðtölum, og ég held að hámarkinu hafi verið náð árið...1983.
Enníveis, sem betur fer var þetta ekkert overkill og Kristinn Jón var megaskemmtilegur, en á meðan ég beið eftir meiri og meiri snilld andvarpaði ég sjálfan mig í andnauð, og áður en ég vissi af var þátturinn búinn. Kannski pælingin hafi verið að þetta sé slappur trailer fyrir bókina, sem var ekki einusinni minnst á?
Kannski er þátturinn löngu búinn að pissa í bussuna sína, ég veit það ekki, en mér finnst verðlaunavert að kynna einn viðmælandann með orðunum "hann lýsir Kristni Jóni, og er sko ekkert að skafa af hlutunum", og heyra viðmælandann svo segja:
"He's very nice. A very nice guy. Friendly."
Vá, Jón Ársæll, var þurrt auga á eyjunni???
Mín augu? Í átt frá sjónvarpinu. Ég vil að Kristinn Jón fái nýjan þátt.
Bókin er annars skemmtileg, og fæst kannski í einhverri fornbókabúð.
Skilaboð (3)
Æ svo sammála með þáttinn, var alltaf að bíða eftir...æ einhverju! Finnst gaurinn magnaður og finnst að þú ættir að elta hann og gera smá-mynd um hann. Pumpa svo líka gömlu þarna gelluna sem hraunaði yfir kærustuna hans-æ þessi áttatíu og eitthvað.
Skrifað 12.06.08 20:40
"Pumpa" einsog í "pumpa lífi í", eða ertu að tala um holdlegt samneyti?
Ég afþakka pent.
Skrifað 13.06.08 12:32
Nei, nei...ekki svoleiðis. Pumpa info, fá meira upp úr henni. :)
Skrifað 15.06.08 20:41