Aftur: FM Belfast er besta hljómsveit í alheiminum
Þau spiluðu tvenna tónleika á föstudaginn, fyrst í ammæli á Kaffibarnum, svo á tónleikatónleikum á Organ.
Það var ólýsanlega mikill munur á Kaffibarstónleikunum og svo Organ. Kaffibarinn var einsog teboð með ömmu: ljúft, næs, gott fyrir hjartað, fullt af knúsi. Organ, hinsvegar, var einsog teboð með öllum ömmum í heiminum, og þannig overload af gleði.
Síðast þegar ég sá FM Belfast spila (í Brooklyn) fékk ég næstum því hjartaáfall sökum eigin skrækja og hopp og singalongs sem líkaminn minn réði næstum því ekki við. Sillu fannst það fyndið, mér fannst það pínu kjánalegt.
Ég hagaði mér eins á Organ-tónleikunum, og undir lok 'Par Avion', þegar ég fann blóðbragð og heyrði líffærin kastast til í líkamanum, hallaði ég mér niður tilað anda djúpt inn og ná jafnvægi. Þar, í hnéhæð, var Silla, hóstandi, rauð, kófsveitt, að gretta sig og halda fast um hjartað sitt.
Sveinbjörn elskaðist við kúabjölluna einsog par sem hefur ekki hist allt stríðið, bara búið að skrifast á óreglulega, haldandi um nistið, bíðandi eftir sorgarfréttinni sem aldrei kom, því lífið sigraði. (Eitthvað þannig.)
Svona eiga allir tónleikar að vera. Glimmersprengja, hopp, singalong þar til þú verður hás, og besta hljómsveit í heimi.
Skilaboð (1)
FMB eru gjebbó. Nó dát.
Skrifað 07.06.08 15:31