Var að versla í matinn í Krónunni útá Granda, þar sem allt í kring eru fyrirtæki með flögnuðum merkingum og auglýsingum. Aðallega Europris, nei, ég meina "E ro i ". Þar fæst Allt fyrir " l ". Og svo var eitthvað hakkerí með fiskimælifyrirtækin, en ég man ekkert því ég flissaði yfir mig.
Finnst alltaf svo fyndið þegar fyrirtækjum virðist vera skítsama um merkingaflagn og stafsetningarvillur og biluð neonljós og útrunnar merkingar. Aaaææji til hvers að vera að merkja fínt yfir höfuð ef þér er sama hvað stendur? Prentaðu bara nokkur A4 og notaðu kennaratyggjó. Miklu ódýrara, og þú getur leikið þér með 3D Art í Word einsog þú vilt.
Þar sem Ranimúsk er á Laugaveginum var einhver ilmolíu og sápubúð. Á glugganum voru íslensk og ensk orð, einsog sápa, baðolía, og svo "bath oli". Ég veit ekki hvort er kjánalegra, þessi mistök, eða að lífsleitt og ilmefnaþrútið staffið ranghvolfdi bara augunum þegar ég benti áidda.
"Það er lítill mörður í andyrinu og honum er að blæða út."
"Og?!"
Á Einari Ben stóð "lamakjöt" á matseðlinum, og þjónninn sagði eitthvað kurteist en þetta var aldrei lagað. Og það var aldrei til lamakjöt, ef þú ertað pæla í því. *hrækj*
Um daginn var frændi minn að símtala við póstinn um sendingartolla, og í miðri setningu byrjaði jarðskjálftinn að skelfa jörðina. Frændi minn gerði stutt hlé á máli sínu, og sagði svo "Það er jarðskjálfti akkúrat núna. Finnuru það? Jarðskjálfti".
Frekar pirraður starfsmaðurinn svaraði "Og??? Haltu áfram!"
Prófessjónal starfsmaður þarna á ferð. Hvorki jarðskjálftar, eldgos né súrt regn munu trufla hann Í Að Komast Að Sannleikanum Um Tollagjöld.
Ég gleymdi mér áðan og fattaði að plast er ekki eldfast mót.
Ekki.
Tómatar eru skrýtinn matur. Ekki bara að ferskir bragðast þessir annars glansandi og girnilegu tómatar einsog súrsaðar hreðjar Kölska, og að ég veit ekki hvort þeir eru ávextir eða grænmeti, heldur líka vegna þess að verðlagningin er ákveðin af...öpum með pílur? Geitum með lukkuhjól?
Sko: 510 grömm af (einni af grilljón jafn bragðvondum tegundum af) tómötum í plastbakka (um sex stykki) kosta 420 kall.
Þá kostar kílóið um 800 kall, ókei?
Og við hliðina eru tómatar í lausu á 156 kr/kg.
Og það var nóg til af þeim. Ég keypti fjóra á 45 krónur, en í bakka kosta sex stykki 420 kall. Meikar eeeeeeeeeeekkert sens. Og þetta er ekki einsog bananafelið í Bónus, þar sem ódýru bananarnir eru grafnir undir bílhræjum í kjallaranum, heldur var stórt og mjög áberandi skilti sem lét mig, tómatahatarann, sleikja útum og þrá mozzarella og dassss af basil.
Ég held að fótboltagaurar hafi alltaf verið mjög experímental í hárgreiðslu, og kannski sá þjóðfélagshópur sem hefur verið hvað mest leiðandi í hártízku, að hljómsveitarfólki meðtöldu, að sjálfsögðu. Kevin Keegan var með mjög fallegt enskt miðstéttar 70s afró sem var mjög þungt að neðan, og allir þessir ítölsku gaurar með hárteygju og víbrandi hár.
Ég hef alltaf öfundað þá af því að geta haldið greiðslunni, því eftir smá hamagang flöffast hárið mitt upp og ég verð rauður í framan og allur eitthvað svo...úfinn. Verð samt ekki með eldrauðar kinnar, einsog rólóbarn með hor, en pínu flekkóttur.
Annars mega íslenzkir handbolta- og fótboltakappar prófa eitthvað annað en sítt að aftan með hliðarbroddum og fauxhawk. Það eru nú liðin nokkur ár af því sama, og jafn hávaxnir, háværir, og myndarlegir og þið eruð--og með fullri virðingu--þá eruði allir eins, fjelagar. Hvað með að safna smá og vera með tagl? Eða töff fléttu? Ef Faxe Jeppesen (eða hvað sem hann heitir) gat það, þá getið þið það líka.
Og, ég og Svenni erum að spila á Barnum í lok júní (ítaló, synthpop og þannig dót). Ætla líka að reyna að troða einu miðvikudags- eða fimmtudagskvöldi inn í næstu eða þarnæstu viku, og vil endilega fá sömu frábæru fjölskyldustemmingu og alltaf: fólk að tala um tilfinningar og dansa uppá borðum. Og vonandi spilum við fullt, fullt í sumar.
Skilaboð (5)
Ö.
Ávexir.
Varð einmitt pínu hissa þegar ég heyrði vísindakonu segja það í útvarpið í vikunni. Eitt af því fjölmarga sem hefur alveg gleymst að hugsa um í lífinu.
Skrifað 08.06.08 23:31
Æ. Æ!
ÁvexTir. Ávextir.
Afsakið.
Og það er ég sem hef gleymt að hugsa um það hvers vegna ávöxtur sé kallaður grænmeti hér á fróni.Örugglega ekki þið hin.
Skrifað 08.06.08 23:33
Gúrka er líka ávöxtur, merkilegt nokk. Ég las að ef það er fræ inní, þá er það ávöxtur.
Svo er Dr. Gunni með fyndin búðamistök á síðunni sinni:
http://www.this.is/drgunni/gerast.html
Skrifað 09.06.08 00:45
Takk fyrir infóið. :)
Jarðarber eru með fræ utaná, spáið í það. Og þriggjakornabrauð líka.
Skrifað 09.06.08 01:21
mjög fallegt enskt miðstéttar 70s afró
Skrifað 19.06.08 00:55