« Ég sé einhvern annan...mimimi... | Aðalsíða | Bráðn »

Axlarbjörn vs. ísbjörn

Þetta ísbjarnarmál er svoooooo sveiiiiitóóóóóó.

Ótrúlegur aulagangur, sem er svo rammíslenzkur að mig svíður útum allt.

Afhverju þarf mbl.is að sýna mómentið þegar hann er skotinn? Er ekki nóg að sýna volgt hræið í klístruðum blóðpolli? Eða er blóðþyrstur lýðurinn svo frámunalega heimskur að hann fattar ekki atburðarrás sem gæti mögulega leitt að svoleiðis niðurstöðu?

Fnæsandi skömm.

Hér er mynd af hetjunum sem unnu það stórvirki að taka ísbjörninn af lífi:

halli_isbjarnaraularnir.jpg

Sé fyrir mér sögustund við varðeldinn:

"Kondu hingað og sestu mér á lær, sonur. Veistu, þegar pápi var upp á sitt besta, rauk hann upp brekku, lagðist á kné, og drap ísbjarnargrey sem hafði villst á land. Pabbi fékk frí í vinnunni og allt, og fullt af pening og frægð í sveitinni. Nokkrum árum seinna, sáu sömu bóndahjón ringlaðan túrista á göngu á sama vegi, og þá fór pápi aftur á staðinn, og skaut túristann í hausinn!"

Ég ákvað að auðvelda þessum alþýðuhetjum starfið, og benda þeim á samskonar "hluti" sem hægt er að skjóta ef þeir finnast á víðavangi.

Allir geta þessir hlutir valdið skaða. Þríhjól getur oltið svo ökumaður fái grasgrænu í bussuna sína. Útvarpið getur rúllað niðrá gólf og rispað parket. Felgulaust dekk getur gert hreinar hendur skítugar. Randaflugur eru mannætur (einsog alþjóð veit). Og svo auðvitað hinn blóðþyrsti Knut, sem einn daginn mun klöngrast uppá ísjaka til þess eins að finna land með bryðjanlegum eyjaskeggjum.

Samt þarf ekki að skjóta hann. Það er líka hægt að finna hann á sundi, snara, og svo hengja á staðnum. Æjj úbbs, það var gert 1993.

Kannski er hægt að grýta ísbjörninn? Eða næst getur löggan bara selt inn á svæðið, þ.e. eftir að hún er búin að láta skjóta dýralækninn sem röflar bara vitleysu um deyfilyf og mannúðlegar lausnir. Pfff, hver vill svoleiðis þegar typpið þarf BYSSU!!!!

Skilaboð (15)

svo er líka hægt að taka bara fleiri dýr í útrýmingarhættu eins og svona sea turtle og erni og pandabirni

fokkitt bara finna lista á wikipedia og stúta þessu öllu

harpa:

æii ég er sorgmædd yfir bangsa ;(

Bob:

Alveg glatað. Þeir eru alveg, "við vorum að hugsa um almannaheill hér. Við vorum að vernda börn og búfénað!" iiiii, svo eru þeir alveg að pósa með blóðugar byssur og voru alveg "Fokk yeh! Bear shoot'n season!"

Einmitt! Geta byrjað á að brenna Geirfinnshræið sem er á einhverju safninu, svo traðkað á öllu í Þjóðminjasafninu, rústað nokkrum fornbílum, brennt Guðbrandsbiflíu og nokkur handrit, og svo kveikt í Grænlandi.

Lóa:

æ svei. veslings bamse mums. ég missti reyndar af þessari frétt þar til blindfullur starfsmaður einu hardware store miðbæjarins fór að rausa um einhvern hvítabjörn. Ég skildi um það bil annað hvert orð þar til Katla sá aumur á mér og útskýrði fyrir mér að einhverjir sveitalubbar hefðu myrt ísbjörn úti á landi. Ég varð miður mín.

Frábær pistill Halli!
Þessi mynd fær hillbillyverðlun ársins - ojbara!

Vá! Ég hefði getað tekið þennan bangsa í smá wrestle og ég er bara 76 kíló! Hann hefði nú samt sennilega bara hlaupið mig niður og sleikt mig í framan og svo mundum við rúlla saman í faðmlögum og verið bestu vinir í heiminum þangað til hann (og ég) yrði stór og þá þyrfti ég að senda hann í búri aftur til norðurpólsins. Þá yrði ég sorgmæddur en ætti ógeðslega sæta mynd uppi á hillu af okkur frá því við vorum litlir.

Í staðinn fengu þessir byssubónda rauðhnakkar mynd af sér með bangsa alblóðugumum. Skamm skamm!

Hefði ekki verið sniðugara að setja hann bara í Húsdýragarðinn? :)

Nafnlaus..:

Auðvitað er hrikalegt að dýr sem er í útrýmingarhættu hafi verið drepið, án nokkurrar umhugsunar. Aftur á móti finndist mér verra að sjá í fréttunum fyrirsögnina, ísbjörn drepur mann.

En það gerðist ekki, og var ekki á leiðinni að fara að gerast, er það?

Þórður:

„Við vildum ekki missa hann upp í þokuna"
- örljóð á klósettkassa og / eða hugrenningar afleysingapenna

Hundur bítur mann; maður bítur hund.

Hvað er fréttnæmt? Hundur, maður eða biti?

Á meðan laufin sofa liggja spaðarnir andvaka...

...við Þverárfjall.

Nafnlaus..:

Ég get ekki spáð fyrir um hvað hefði gerst, en þetta var villt dýr á vappi um mannabyggðir og persónulega hefði mér ekki fundist það neitt góð tilhugsun ef ég byggi þarna einhvers staðar nálægt.

Sasa:

Skiljanlegar ábendingar, en við skulum forðast að vera jafn þröngsýn og þeir sem sáu ekki annan kost en skjóta dýrið. Það eru vitlausir menn með byssur út um allt. Halli ef ég væri þú þá væri ég nú hræddari við þá sem skutu Sean Bell (http://www.justiceforsean.net/) þeir lögreglumenn eru frjálsir í dag í þinni borg og þeir skutu óvopnaðan mann 50 sinnum!
Skemmtilegar umræður, meira svona!

Nafnlaus..:

Auðvitað hefði verið best að finna aðra lausn, til dæmis að skjóta hann ekki.. :)

Ingó:

Blessaður Halli minn og takk fyrir að gerast vinur minn á facebook. Ég vona bara að þér hafi ekki brugðið við veggjaskrif mín. Hugrenningar dagsins leiddu mig þangað og við því er ekkert að gera.
Mér er slétt sama um þennan ísbjörn og var ekki búinn að tengjast honum neinum tilfinningaböndum. Mér fannst hins vegar alveg óforskammað hvernig fór með ísbjörn nr.2. Við þurftum að að hringja til Danmerkur til þess að fá einhvern Jörgen Jöegenson, sérfræðing í dýradeyfingum, senda á eftir honum einkaþotu og freista þess að hann myndi losa okkur undan oki ísbjarnarins........Á SJÁLFAN FULLVELDIS DAGINN....Við erum nánast nýsloppin úr ormum danaveldis og búin að ganga nokkur skref í átt að sjálfstæði þegar við snúum við og hlaupum í kjöltu þeirra aftur út af einhverjum ísbirni.......Og svo kemur í ljós að einhverstaðar býr Íslendingur sem hefur fangað um 500 ísbirni án þess að svitna.....óforskammað....

lpucxsitjjrkroxjgwoawdvadzayod

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 03. júní 2008, kl: 18:53.

Fyrri færslan er Ég sé einhvern annan...mimimi....

Næsta færsla er Bráðn.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31