Kreppa og allt í köku, jájá, en kannski það myndi hjálpa aðeins við fjáröflunina ef verslanir myndu aksjúallí svara í símann. Þúveist, þetta með svínahalasnúrunni sem segir "ringalinga" allan daginn.
Fyrir Eurovisionpartýið vantaði mig (helst Azerbaijanska) englavængi, og ég hringdi í (já, ég taldi) ellefu verslanir. Þrjár svöruðu.
Aftur: 8 af 11 verslunum svöruðu aldrei í símann. Og ég hringdi alltaf minnst tvisvar.
Skil ekki.
Liverpool svaraði ekki því búðin er farin á hausinn. Just 4 Kids númerið er ekki tengt (fliss). Faxnúmer hjá Völuskríni. Og hjá Hagkaup í Skeifunni, Leikbæ Smáralind, Leikbæ Kringlu, Smáfólki, og Toys-R-Us var enginn heima, eða allir uppteknir við að hækka verðin.
Leikbær/Just 4 Kids í Fáka/Faxafeni svaraði, Hagkaup í Kringlunni svaraði, en Ice In A Bucket í Smáralind bæði svaraði og var eina búðin sem átti vængi, og fékk peningana mína.
Hvað eru hinar búðirnar að pæla?
Ég hefði örugglega röflað smá ef einhver hefði svarað, en það eru ca 99,9% líkur á því að það hefði verið lífsþreyttur og fullkomlega áhugalaus úllíngur. En hey, starfsmaður eða eigandi, ef þú lest þetta, takk fyrir að leyfa mér að eyða nokkrum klukkutímum í að reyna að troða peningunum mínum í peningakassann ykkar, en, þúveist, ég verð gaurinn með stjörnuljósið og hrossabrestinn þegar þið farið á hausinn.
p.s. fattaði það ekki fyrr en daginn eftir að Liverpool er ekki lengur til, og að Leikbær heitir núna Just-4-Kids. Halló? Uppfæra símaskrána, anyone? Halló...er einhver þarna...?
Skilaboð (6)
ég hélt þú hefðir verið að djóka með vængin
úff ég ætla að hafa ennþá að þú hafir verið að djóka
Skrifað 27.05.08 19:00
Neib, ég djóka ekki með svona.
Skrifað 27.05.08 19:45
Vængirnir þínir voru mjög fínir. Og bleikir.
Afgreiðsla eða sum verslun hérna er svo erfið. Gætir til að mynda mjög sennilega fengið svona vængi með eftirréttnum á hvaða veitingastað sem er hinum megin við hafið.
Skrifað 27.05.08 23:44
þínir vængir voru fínir en Ómar fór á stúfana fyrr og og hlaut því hin eftirsóttu júróvisjónbúningametnaðarverðlaun í þetta skiptið en næst byrjar þú bara að hringja viku fyrr.....
ég var að heyra að Lucas og félagar verða með casting-tjald á Hróarskeldu fyrir næstu Mutt Jones ævintýramyndina..... ég er spenntur
Skrifað 28.05.08 10:52
Ertu nokkuð búinn að gleyma okkur? :)
Skrifað 01.06.08 15:54
Ice in a bucket vængirnir voru rosa fínir. Ekki taka mark á Halli, þú veist.. stærðin skiptir ekki máli. Þið Ómar voru báðir vel vængdir.
Skrifað 03.06.08 09:53