« Alphabet eftir Lóu og Árna - S er fyrir svo fínt! | Aðalsíða | Fletjunarmak »

Frágengnisbit

Einhver krúttileg padda bítti mig í olnbogann um daginn, og hann er núna áttfaldur. Ég búinn að rífa allar vinstri ermar af peysum, jökkum og skyrtum, og get ekki klappað.

Nei, ókei, hann er þrútinn og ýkt heitur, og mig klæjar eeeeendalaust, og fór áðan útí apótek (skrifaði fyrst bakarí) og kauffti krem. Apótekið er hinumegin við gatnamót þar sem tvær þriggja akreina götur mætast, og því hlýða allir (nema Chuck Norris) gangbrautarljósaköllunum. Þegar ég labbaði tilbaka yfir gangbrautina var ég kominn yfir ca tvær akreinar af þremur þegar *SVVÚÚSSSJJ* minivan straujaði framhjá mér upp þriðju akreinina (allt, allt of nálægt) og beint á bíl sem keyrði á grænu yfir gatnamótin. Ég starði á bílana skella saman og fraus, og tékkaði á gaurnum sem sat ringlaður í bílnum á miðjum gatnamótunum (með trilljón bílaflautur sem þemalag). Áreksturinn var ekkert svo harður og enginn meiddist þannig séð. Fólksbíllinn (í rétti) lenti með hornið á stuðaranum á miðjum Minivaninum, þannig að fólksbílsstuðarinn hvarf og númeraplatan flögraði í burtu.

Það var þó eitt ótrúlega fallegt við skellinn. Plastbútur af fólksbílnum skaust þráðbeint leeeengst uppí loftið, og stoppaði í sekúndubrot áður en hann féll þráðbeint niður og skoppaði á húddinu, og stöðvaðist þar. Og á meðan ég fylgdist með þessu fannst mér vera þögn og svona fjúkihljóð.

Skringilega fallegt og ljóðrænt og dramatískt.

Enníveis, þetta er ekki nærridauðareynsla, bara blaður. Ég ákvað að bíða eftir löggunum og segjast hafa séð konuna svúsja yfir á rauðu ljósi, bara svo gaurinn (sem nuddaði magann sinn og gretti sig) lenti ekki í einhverju tryggingaveseni. (Ég lenti í nákvæmlega sama um jólin 2006, þegar ég varað keyra heim og klessti á stelpu sem fór yfir á rauðu ljósi. Kona í göngutúr var eina vitnið, enda engin umferð, og ég var mjög þakklátur, þó ég hafi reyndar haft meiri áhyggjur af stelpunni, sem endaði meðvitundarlaus á spítala. En hún er ókei, ókei?). Enníveis, ég gaf upp nafn og infó, og krotaði infó handa gaurnum. Honum var illt í maganum eftir loftpúðaskellinn, og á meðan hann, í miðri skýrslusköpun, fór alltíeinu í keng og gubbaði á götuna, notaði minivankonan tækifærið tilað reyna einhvernveginn að sannfæra mig að hún hefði sko ekkert farið yfir á rauðu, það hefði verið skærgrænt.

Ég sagði "vertu ekki að pæla í því, við skulum bara vera fegin að enginn hafi meiðst alvarlega. Svona gerist á einni sekúndu, lítið hægt að gera í því þá, og ekkert hægt að gera núna. Eruð þið alveg ómeiddar?" og fleira vinalegt, enda er ég svo vinalegur og hjálpsamur vegfarandi.

Og þá hnussaði hún og hreytti í mig að hún væri algjörlega viss, og ranghvolfdi augunum og stundi eitthvað. Þá langaði mig að garga. Hún keyrði næstum á gangandi mig, og ég er búinn til úr mun mýkra (og dýrmætara) efni en bílar, og ég var bara búinn að vera næs...fnæs!

Ég sagði þá löggunum (það sem ég sleppti áður) að það hefði engu munað að hún keyrði á mig og annað fólk þegar hún brunaði yfir á rauðu, og setti upp svip sem átti að þýða "Hr. Lögregla, vinalega bið ég yður um að stuðla að því að bílstjóri atarna verði auðmjúkur almættinu og átti sig á mikilvægisleysi þess hver gerði hvað, og að hún eigi að vera þakklát fyrir að vera með meðvitund."

Dílaðu bara við það sem þú gerðir af þér, kona góð, og taktu afleiðingunum. Gapastokkur, svipuhögg, eldmaurar, kláðaduft, og vitlausar pantanir.

Tilað fagna lífsbjörginni þreif ég baðherbergið og bar krem á olnbogann. Apóteksgaurinn skemmtilegi sagði að ef þú berð of mikið krem í einu, þá getur kremið farið útí blóðrásina þegar húðin sýgur það allt upp. Þessvegna er betra að bera þunnt lag oft, en að fylla plastermi af kremgutli. Mundu það, fjelagi! Nú ætla ég að borða, og (reyna að) klára að setja allt á sinn (nýja) stað. Það eina sem böggar mig er að það var ryksugulykt úr loftkælitækinu.

Já! Vondar Lyktir 2008: hurðarhúnalykt, ryksugulykt, borðtuskulykt, hunda/úllíngalykt, útilykt, gubbilykt, súr plastlykt, þung ilmvatnslykt, streptakokkaandfýlulykt, melónubrjóstsykurslykt, hákarlslykt, loðnubræðslulykt, hárlykt, mjólkurlykt úr munnum, skötulykt, hestalykt af einhverju öðru en hestafötum og hestum og þeirra híbýlum, og lykt af einu blómi sem er frekar fallegt en lyktar einsog eitthvað ljótt.

Skilaboð (7)

hey þessi færsla tengist mér grunsamlega mikið

ég rugla alltaf apótek og bakarí saman (i don't get it)

og svo var ég að labba á skólavörðustíg (á gangstéttinni) og það keyrði einhver á olnbogann minn (árekstur og olnbogavesen í sama) og viðkomandi stoppaði ekki einu sinni... ég var svo hissa en ég meiddi samt ekki

so var ég í fína gymminu mínu í gær og þar var maður sem lyktaði verr en nokkuð sem ég hef vitað áður oj ég kúgast við tilhugusnina

ég þurfti alltaf að taka stöffið sem ég var að nota og labbaa með það yfir í hinn enda salsins og svo fór hann að teygja og allir aðrir fóru úr því rými

svona hmmm súr ógeðis svita pissufýla einhver OHHJJJJ

hildur:

ég rugla alltaf appelsínugulu og fjólubláu.
held kannski að hurðahúnalykt sé messinglykt og það er svona lykt sem maður fær illt í tunguna af.

Bloggskoðari..:

Þú skrifar skemmtileg blogg.. :D

Loa:

Krútti litli. Núna átt þú alla mína vorkunn. Ég rugla líka alltaf saman apóteki og bakaríi. Síðan á ég erfitt með nöfnin Atli og Valdi, Karen og Rakel, Fanney og Laufey, HrafnhildurRagnhildurRagnheiður.

Hringdímæ, þú ferð á morgun og þá verður grenji time í Brooklyn. Snökt

Hvað er eldmaur?

Halli minn ertu dáinn, eða eru blökkumennirnir búnir að hneppa þig í ánauð fyrir að rústa kúlinu þeirra?

Very useful article. Myself & my neighbor were preparing to do some research about that. We got a good book on that matter from our local library and most books were not as descriptive as your information. I am very glad to see such information which I was searching for a long time.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 09. maí 2008, kl: 22:27.

Fyrri færslan er Alphabet eftir Lóu og Árna - S er fyrir svo fínt!.

Næsta færsla er Fletjunarmak.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31