Ef íslenskir bíósýnarar hafa einhverja sjálfsvirðingu eru þeir nú þegar búnir að verað að slást um þessa mynd. (Ég sé fyrir mér mjög brútal þvögu með miklum hrindingum og æsingi, óeirðarlöggu, og fullt af grjóti og gasi tilað ná stjórn á æstum Falco-múgnum, með fjöldasöng og kertum og plakatatætlum útum allt.)
Jeaannnnieeeee!
Ég sakna að hafa "úrval" af myndum tilað sjá (ég veit að þetta orð er skrýtið og Íslendingar kannast lítið við það, þessvegna nota ég gæsalappir). Úti eru nefnilega til bíó og -sýnarar sem nenna ekki að fylla bíóin sín af What Happens in Vegas áhorfendum, eða hvaða mynd sem Ice Cube er nýbúinn að leika í. Úti er hægt að sjá myndir einsog Young @ Heart, The Visitor, og The Diving Bell and The Butterfly, sem eru allt myndir sem eiga að fá (og fá oftast) venjulega dreifingu í alvenjuleg bíóhús, en enda máski máski á harða diski sniðugra íslenskra niðurhalara.
En hey, troðið þessu oní mig með því að sýna Falco - Der Film. Plís?
p.s. Til hamingju Dr. Gunni með neytendaverðlaunin. Mikið mikið varð ég glaður.

Skilaboð (6)
lítur út fyrir að vera cool mynd.. leikur will ferrell í henni?
Skrifað 22.05.08 17:36
Já, talandi um Young @ Heart *horfi á þig með hvolpaaugum* Plís má ég stela henni frá þér? Ég er nefnilega downloadfötluð.
Skrifað 22.05.08 18:37
Myndin er maasssssacool.
Linda: Ég sá myndina í bíó með *hvolpaaugunum* mínum, þú getur stolið lýsingu frá mér, ef þú vilt?
Skrifað 22.05.08 20:04
Eh, þú sagðist taka hana með þér heim í tölvunni sko. Nema mig hafi verið að dreyma?
Nei, mig dreymdi þetta ekki. Las þetta hér: http://www.icomefromreykjavik.com/halli/2008/04/young_heart.html#comments
Skrifað 23.05.08 00:17
Hmjám, ég var búinn að steingleyma þessum skrifum.
Ég á hana því miður ekki...en kannski er einhver sniðugur bíósýnari með masterplan?
Skrifað 23.05.08 04:11
Ég vona það, langar svo óskaplega mikið að sjá hana. Annars ætla ég að tala við fólkið í kringum mig sem að er að hlaða niður dóti og biðja það vinsamlegast um að redda þessu fyrir mig.
Skrifað 23.05.08 09:29