« Íbúð til leigu á Manhattan í sumar (2008) | Aðalsíða | Lag eftir mig spilað á BBC... »

Apaheili með tré og skó

Í dag:

1.

...fór ég í verslun tilað skipta skóm sem ég keypti á vefnum þeirra. Í síðustu viku spurði ég hvort ég gæti skipt þeim. "Auðvitað!" sagði verslunarstjórinn.

Ég valdi vörur, fór að kassanum. "Keyptirðu þetta á netinu?" spurði stúlkan mig. Ég útskýrði málið. "Nei, þú þarft onlæn kvittunina". Ég útskýrði málið aftur. "Já, nei, því miður".

Ég borgaði og labbaði frá kassanum. Þá muldraði hin afgreiðslustúlkan, sem hafði fram að því staðið grafkyrr og varla andað, "Hann getur alveg skipt þeim, þú notar bara kóða 5980384...".

Stúlkan stimplaði eitthvað inn og sagði "þú færð inneign". Ég vildi þá skila því sem ég varað kaupa og nota inneignina á það. Þá sagði stúlkan "æj, nei, sorrí, þú getur ekki fengið inneign".

Ég sagði ókei og labbaði frá kassanum.

"Æj, sorrí, þú getur fengið inneign". Hún skannaði inn það sem ég var nýbúinn að kaupa.

"Hvað ertu að gera?", sagði yfirmaðurinn hennar. "Þetta er ekki hægt".

Nei, já, nei, já, nei, já, nei, já.


2.

...keypti ég tvo viðarplanka tilað nota sem hillur.

Yfirmaðurinn í viðarplankabúðinni var ýkt "fyndinn". Ég var vitlaus að vita ekki hvaða tegund af við ég vildi, ég var ýkt vitlaus að fatta ekki hvað "1/8th of an inch" er mikið, og starfsmannsgreyið sem sagaði plankana fyrir mig var vitlaus fyrir að...vera til, býst ég við.

Það kæmi mér ekki á óvart að sjá starfsmennina labba grátbólgna heim í lok hvers vinnudags. Ó að vera karlmenni.

Ég spurði sagarann hvort hann myndi ekki saga plankana nákvæmlega eftir málinu mínu. "Jú, auðvitað!" sagði hann með lokuðum augum manns sem veit hvað hann er að gera. "Vinnum við hérna eða þú?" sagði yfirmaðurinn.

Þegar ég kom loks heim með plankana sá ég að niðurrakkaði sagigaurinn sagaði ekki rétt, þannig að plankarnir skorðuðust skemmtilega á ská á milli veggjanna. Ég brosti og grét.


3.

...hljóp ég niðrí tólabúðina sem er á næsta horni tilað kaupa sög. Ég talaði við skósveininn, því pirraði austur-evrópski búðareigandinn var að skamma einhvern viðskiptavin fyrir eitthvað heimskulegt, býst ég við, einsog alltaf þegar ég kem í búðina. "Viltu SVONA málningu? Hálfviti." o.s.frv.

Ég bað um ódýrustu sögina, og skósveinninn rétti mér eitthvað sem ég hélt að væri málmsög. Nei, sagði skósveinninn, hún er fyrir bæði. "Jebb, alveg viss", bætti hann við með lokuð augun þegar ég spurði hann þrisvar í viðbót, vildi nefnilega vera viss því sögin var þrefalt ódýrari en ódýrasta týpíska viðarsögin.

Ég varað farað borga þegar hann sagði "en...við getum líka sagað fyrir þig...kostar ca $1 á hvern viðarbút." Það var sniðugt, því þá myndi ég bæði spara $3, og ekki sitja uppi með sög sem ég nota líklega aldrei aftur. Ég lýsti viðarplönkunum, "Jebb, alveg viss", bætti hann við með lokuð augun.

Ég hljóp heim og sótti plankana og hlunkaðist með þá innum búðardyrnar.

"Hvað er þetta???" spurði pirraði austur-evrópski búðareigandinn og starði djúpt í sálu mína. Ég labbaði varlega að afgreiðsluborðinu og sagði lágt "uu, hann sagði að þið gætuð sagað þetta fyrir mig? Bara ca eina tommu af..."

"Við sögum ekki neitt. Ekkert!" sagði hann og tókst bæði að skelfa mig og skósveininn.

*Slurp* sagði rörið í kaffidrykknum sem skósveinninn sötraði vandræðalegur á meðan hann fylgdist vandlega með klökunum í glasinu, þar sem þeir slógust utan í hvorn annan í síminnkandi yfirborði kaffidrykkjarins.

Ég sótti sögina sem skósveinninn mælti með og lagði hana á búðarborðið. Austur-evrópski búðareigandinn horfði á mig. "Þú getur ekki sagað með þessu. Þetta er málmsög".

Skilaboð (8)

Ha ha ha ha! Þetta er stórkostlega fyndið. Segið svo að lífið sé ekki yndislegt;)

ojjj hvað ég þoli ekki svona vesen

HAHAHAHAHAHA!!!!! Þetta er svo bandarískt... Ó svo bandarískt!!! Enginn veit neitt hvernig neitt virkar, og svo gefa allir mismunandi upplýsingar. Ég er löngu hætt að pirra mig á þessu.

já það er einmitt svo frábært á íslandi lendir maður ALDREI í svona því það er valinn maður í hverju einasta starfi

Þórður:

prófaðu að kaupa ís í perlunni á sunnudegi

Þetta er frábært. Þetta er það skemmtilegasta sem ég hef lesið í þó nokkurn tíma. Og jafnframt svo dæmigert fyrir alla mína reynslu af samskiptum við fólk í þjónustu störfum. Sérstaklega hjá skítafyrirtækinu Síminn.

hahahahahaha og ojojojojojojojoj

sjitt ég hefði tapa mér á einhverju inní seinustu búðinni.. sagað hausinn af báðum gæjunum eða eitthvað...

djók

Íh skemmtilega skrifað :) Gott að hann var alltaf með lokuð augun. Hvað er þetta með að tala með lokuð augu? heh...

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 05. maí 2008, kl: 17:28.

Fyrri færslan er Íbúð til leigu á Manhattan í sumar (2008).

Næsta færsla er Lag eftir mig spilað á BBC....

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31