Ég var innilega að vona að íslensku "keppendurnir" lentu í einhverskonar wardrobe malfunction, sviðshruni eða rafmagnsleysi eða einhverju sem myndi ekki básúna til umheimsins þessari fullkomlega ólýsanlegu og hræðilega-alltofmiklu ofreynslu í metnaðarleysi. Mig svíður í hjartað, í alvöru. Ööööööööömurlegt og skömmustulegt.
Ég er aðallega búinn að vera að gleðjast yfir enskukunnáttuleysi kynnanna, en fíla Bosníu & Hersegóvínu, Eistland, Azerbædzjan og eftirfarandi lög úr Eurovision síðustu ára.
Sjáðu til, fjelagi, Eurovision er ekki bara eitthvað grín og málhaltir Evrópubúar í foknum kjólum, heldur líka alvöru sniðugir snillingar sem--næstum undantekningalaust--fengu hvorki stig né stuðning frá dómnefnd, kjósendum, eða apaheilum útí sal.
'Mitt á milli Moskvu og Washington' fór tilaðmynda ekki sem framlag "okkar", þrátt fyrir að vera besta lagið það árið, og fullt af öðrum árum. Þú veist ekki einusinni hvaða lag var sent í staðinn.
Hér er fullt af frábærum Eurovisionlögum frá síðustu árum. Ég er búinn að pósta þeim öllum á Kontrapunkt tónlistarbloggið mitt (icomefromreykjavik.com/kontrapunkt), sem þér er frjálst að flæða í gegnum.
Hægrismelltu og vistaðu lögin, og sendu þessa færslu endilega á vini og fjendur sem þurfa sannfæringu.


Belgía 1980, 17. sæti af 19
Telex - Euro-Vision


Belgía 1983, 18. sæti af 19
Pas De Deux - Rendez-Vous


Belgía 1987, 11. sæti af 22
Liliane Saint-Pierre - Soldiers Of Love


Spánn 1986, 10. sæti af 20
Cadillac - Valentino


Spánn 1983, 19. sæti af 19 (0 stig!!!)
Remedios Amaya - Quién Maneja Mi Barca


Ísrael 1986, 19. sæti af 20
Moti Giladi & Sarai Tzuriel - Yavoh Yom


Lúxemborg 1987, 21. sæti af 22
Plastic Bertrand - Amour Amour


Lúxemborg 1984, 10. sæti af 19
Sophie Carle - 100% d'Amour


UK 1983, 6. sæti af 19
Sweet Dreams - I'm Never Giving Up
Þetta er að mestu leiti alvöru tónlist. Og takið eftir hvað flest lögin enduðu neðarlega. Almenningur, ó almenningur sem piþþa í buþþuna þína...
Skilaboð (5)
ó bojj, telex er mesta snilldin! Moskow Discow er sérstaklega hressandi.
Skrifað 23.05.08 00:50
júrónörd..
..vonandi færð þú að vera í alla leið hjá palla á næsta ári
fokkðatt, vonandi færðu að vera með þinn eigin þátt!
Skrifað 23.05.08 10:07
Ég veit ekki með ykkur, en ég held með Barbímanninum og mömmu hans.
Skrifað 23.05.08 10:33
Lagið frá Bosníu og Hersegóvínu er lang best!
Skrifað 23.05.08 11:17
Bosnía-Herzegóvína og Frakkland voru bezt í ár; verzt að flutningurinn fyrirfórzt hjá les Francais. Bakraddirnar brugðuzt og ég tók kazt heima í ztofu.
zzzzzzzz ......
Skrifað 25.05.08 04:25