« Spiders on drugs... | Aðalsíða | Helgin...same old, same old... »

Young @ Heart

Var að koma af Young @ Heart, heimildarmynd um sönghóp eldri borgara frá New England sem tekur lög eftir Sonic Youth, Ramones, The Clash, Coldplay og fleiri pínu ólíklega artista. Meðalaldurinn í sönghópnum er 80 ár (ein konan er 92 ára!) og ég óska þess að ég og allir sem ég þekki verði brot af þeim snillingi sem allt þetta fólk er. Þetta sýnir líka að þetta er hægt, heyriði það gamla fólk? Bara kveikja á fílingnum.

Ég var búinn að sjá treilerinn og hlakkaði til, en vá, þessi mynd er ekki frábær, hún er FRÁBÆR!!! Ég hló og táraðist, hún er ótrúlega einlæg, fyndin, og sorgleg, og mér finnst þetta með betri myndum sem ég hef séð.

Þessi mynd er eftir breskan leikstjóra og var gerð fyrir Channel 4, en (sem betur fer) fékk hún dreifingu í Bandaríkjunum. Hún er ekki frumsýnd fyrr en á morgun, en þessi sýning var ókeypis fyrir mig og Sigurjón. Ég fékk nefnilega miða í gegnum Time Out tímaritið, og á undan sýningunni söng annar eldriborgarasönghópur (ekki sá sami og í myndinni) tvö lög. Það var yndislegt að sjá langömmur í geðveiku stuði, smellandi fingrum og syngjandi hátt. Og hressu gaurarnir tveir sem spiluðu á hljómborð og löðrandi saxófón voru þá þegar búnir að skemmta mér og Sigurjóni þegar þeir settu upp og stilltu græjurnar. Hljómborðsleikarinn tók nokkra baneitraða hljóma, meira korníness hef ég sjaldan heyrt, en hann púllaði þetta.

Ég veit ekki hvort þessi mynd komi nokkru sinni í bíó á Íslandi, nema einhver klár í kvikmyndaklúbbi vilji sýna hana, en lofaðu mér plís að sjá hana. Og dragðu ömmu og afa í bíó.

Eitt samt: horfðu bara á treilerinn, og reyndu að horfa ekki á mikið af atriðunum úr myndinni, því mörg þeirra eru miklu betri í réttu samhengi.

Treiler:

Og vefsíðan.

p.s. Sigurjón varað skrifa um myndina, og er algjörlega sammála mér. Sjáðu þessa mynd.

Skilaboð (3)

Linda:

Ég var svo heppin að sjá treilerinn tvisvar í bíó með þér og það er bara einshelvítisgott að þessi mynd komi í bíó á Íslandi! Ég verð að sjá hana!

:)

Já, það er eins gott. Annars flyt ég hana til landsins í tölvunni.

Linda:

Jæja, ef hún verður ekki komin í bíó hér áður, þá verður bara tölvuglápskvöld við tækifæri.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 08. apríl 2008, kl: 22:37.

Fyrri færslan er Spiders on drugs....

Næsta færsla er Helgin...same old, same old....

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31