« Chuck Norris á Twitter | Aðalsíða | Finndu tvær villur »

Pixeloo gerir alvöru Hómer og Jessicu og Mario...

Pixeloo er fótósjoppari sem "untoonar" teiknimyndakaraktera, þ.e. býr til "alvöru" manneskju með sömu andlitsdrætti.

Hann er búinn að gera þrjá karaktera: Hómer Simpson, Jessicu Rabbit, og Mario, og þetta er ólýsanlega fínt, krípí, martraðarskapandi, fallegt, og allt í einu.

Ég meina...sjáðu:

Ég myndi skrækja úr geðshræringu og sturlun ef ég hitti manninn að ofan. Svo myndi ég vilja koma við andlitið á honum. Svo myndi ég skrækja meira og missa meðvitund.

Skoða. Núna. Linkarnir eru með miklu stærri myndir.
- Hómar Simpson
- Jessica Rabbit
- Mario

Næst ætlar hann að gera Stewie úr Family Guy. Ég bíð spenntur og hræddur.

Og aftur: þetta er ekki 3D. Gaurinn skapar andlitin í Photoshop með ljósmyndum af öðrum fésum.

Skilaboð (1)

Linda:

Hmmm, hvað(a líkamspart) notaði hann eiginlega fyrir nefið?
Nei ég bara spyr sko!

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 25. apríl 2008, kl: 17:28.

Fyrri færslan er Chuck Norris á Twitter.

Næsta færsla er Finndu tvær villur.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31