Er búinn að hanga við plötuspilarann minn í nokkra klukkutíma að hlusta á bestu tónlist í heimi. Ég keypti mér nefnilega Technics SL-1200 M3D á eBay og fékk hann í fangið í morgun. Ótrúlega vel með farinn, kom með nál, flightcase, dustcover og original kassanum og bæklingum og límmiðum og öllu. Er ekki búinn að nota SL í langan tíma, og það var gaman að strjúka honum. (þú hefur oft séð svona)

Hingað til hef ég ekkert getað hlustað á plöturnar mínar, sem er dáldið erfitt þar sem sumar þeirra var gríðarlega erfitt að eignast. Dáldið erfitt sinnum gríðarlega erfitt samasem mjög, mjög erfitt. Það er mjög skemmtilegt að hlusta á allar b-hliðarnar og vókalana sem fólk hefur ekki nennt að rippa, eða vill ekki því það hlustar bara á instrúmentala. Oftast er þetta fólk sem skilur ekki tónlist, he he.
Akkúrat núna er ég að hlusta á 'Rosalie (Pop & Go!)' með Rewind, sem er svo frábært. Þú getur hlustað á Kontrapunkti.
Keypti plötuna að ofan á 6 evrur, og borgaði 8 evrur í sendingarkostnað. Asnalegt, hmm? Þetta er einmitt það bjánalegasta við að finna uppáhalds vínyl á frábæru verði. Oftast reyni ég því að safna í smá bunka til sendingarkostnaðurinn borgi sig, en stundum langar mig bara í þessa einu plötu frá viðkomandi seljara + að það er drulluerfitt að finna sumar plötur í ástandi sem við viljum = verð bara að kaupa hana.
Og já, ég verð. Þú eyðir í leðurjakka og bensín, ég borða grilluð hrísgrjón og kaupi lystisemdir.
Ég er samt búinn að fara algjöra anal-safnaraleið. Keypti danskt plötuhreinsiglundur frá gaur í Bretlandi (kostaði samt jafn mikið/lítið og dót hér í USA), og er búinn að hreinsa allar plöturnar mínar (þrífa sumar, hreinsa aðrar) og stinga þeim í nýjar poly-nærbuxur, og öllum myndaumslögum í plastvasa.
Þetta er svo gaman. Ég veit ekki hversu langt ég er frá því að kaupa mér spæjarablacklight, stækkunargler, hvíta hanska og smásjá, en þetta er hollt fyrir hjartað, svo ég minnist nú ekki á eyrun mín og almenna vellíðan og andlegt jafnvægi.
Annað sem er fáránlega augljóst, er að munurinn á því að hlusta á þessa músík á vínyl úr plötuspilara í gegnum formagnara inn í (góð) heyrnartól, versus vel rippuð mp3 í gegnum tölvuhátalara (meiraðsegja AAC) er ólýsanlegur. Það er allt-allt-alltof langt síðan að ég hef hlustað á "nýja" uppáhalds músík svona, fnæs! Ég ætla ekki að skrifa endalaust um það, því þeir sem vita muninn (og hafa hlustað eftir honum) vita auðvitað hvað ég meina--og ég er ekki að meina það að plötusnúðast með vínyl, heldur að hlusta og heyra músík heima hjá sér--en ég varað fá kalt þorskflak í andlitið. Planið mitt var að rippa plöturnar í AAC eða FLAC og hlusta úr tölvunni, og þó ég geri það alveg þá langar mig í leðurstól og heitt kakó fyrir framan plötuspilarann minn.
Ég fékk spilarann á $306, sem er það sem ég vildi borga, og með öllu því sem ég nefndi að ofan (ónotað flightcase sem kostar annars um $100 og nál á $100) og miðað við að nýr spilari kostar um $500 þá er þetta frábærasti og ástsælasti díll sem ég hef gert í nokkrar vikur. Annar góður díll varað finna frábæra plötu á $7 sem kostar oftast um $60 eða meira (og hún var óopin!), og að finna Izze, sem er allskonar bubblaður ávaxtadjús í glerflöskum, enginn sykur, bara ávaxtaglundur, en er ýkt sætt og svooo gott, mmm, we þamb it all the time.
Sá að Heimilistæki eru að selja SL-1200 á 74.000 krónur. Fliss. Hér er hægt að kaupa tvo nýja SLa og mixer á ca $1200. Reiknaðu muninn. Það fyndna og stórmerkilega er að SL-1200 MKII, sá sem Heimilistæki (virðast) selja, er búinn að vera óbreyttur síðan 1978. Það þýðir, síðan 1978: sama verksmiðja, sama færiband, sömu hlutir, og af þessum sökum (og það sem er svo skemmtilega merkilegt), sama verð. Aftur: plötuspilarinn hefur ALDREI kostað 74.000 krónur. Verðið hefur verið um $500 dollara í þrjátíu ár. Bla bla bla.
Hey, ef þú ert ennþá að lesa, veistu um einhvern sem á íslensku hljómsveitina Módel á vínyl? Ég er helst að leita að 'Lífið er lag', sem var í Eurovision-forkeppninni, en langar í allt sem er til með þessu bandi.
Svo langar mig líka í Eiríks Haukssonar 'Mitt á milli Moskvu og Washington' ef það er til, jafnvel þó að það sé á kassettu.
Nenniru í alvöru að hugsa um þetta í nokkrar mínútur og reyna að muna hvort þú hafir t.d. horft á frænda þinn (þennan sem var með skunkaskott dinglandi úr eyranu) spila þetta á meðan þú renndir þér á hnjánum á parketinu og bræddir Don Cano buxurnar inní hnén þín...plís?
Ég skal hirða/sækja/eiga/kaupa, ef einhver vill henda/gefa/fleygja/selja.
Mig langar líka í Cosa Nostra (með Mána Svavars) en kannski á það enginn?
Og reyndar langar mig líka að komast í plötusafnið þitt ef það inniheldur (íslenskt og útlenskt) diskó og danstónlist frá 1912-1993.
Komaso, átak.
p.s. og ef þú finnur hana, í Gvuðanna bænum ekki koma með eitthvað bull einsog "hún kostar 3.000 kall". Ef þú varst að grafa hana upp afþví að mig langar mikið í'ana þá þýðir það ekki að hún geti kostað mikið. Hvað ætlaru svosem að gera við'ana ef ég vil'ana ekki? Stinga henni aftur í kassann þar sem hún var gleymd? Eða fara niðrá Ingólfstorg þar sem æstur múgurinn bíður eftir að komast í eintak? Einmitt.
Skilaboð (11)
:)
Skrifað 16.04.08 06:23
Ég óska yður til hamingju með græjurnar. Módel færðu auðveldlega í einhverjum kassanum í Kolaportinu. Ég hef margoft séð þetta eitísrusl þar (já, hef engan húmor fyrir þessu). Milli Moskvu og Washington hefur nú aldrei komið út, hvorki á vinýl né spólu - án þess svo sem að ég þori að hengja mig upp á það. Hér eru díteilar um Módel úr multimedia-plötu-diski sem kom út yfir útgáfur síðystu aldar:
Model – Model
Steinar 094, 1987
1. Hver er sinnar gæfu smiður 2. Svart og hvítt 3. Ást við fyrstu sýn 4. Hvers virði 5. Lífið er lag 6. Ástarbréf merkt X 7. Út í kvöld 8. Líf í litum 9. Eitt sinn enn
Friðrik Karlsson gítarar og hljómborð, Gunnlaugur Briem trommuforritun og slagverk, Eiríkur Hauksson söngur, Edda Borg Ólafsdóttir söngur, Erna Þórarinsdóttir söngur, Eva Ásrún Albertsdóttir söngur, Don Snow hljómborð, Eyþór Gunnarsson hljómborð og píanó, Jóhann Ásmundsson bassi
UMsögn: Model vakti fyrst á sér athygli í forkeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva með laginu Lífið er lag. Upptökustjórn og útsetningar voru í höndum Friðriks Karlssonar og Gunnlaugs Briem en Eiríkur Hauksson sá um raddútsetningar. Gunnar Smári Helgason og Nick Cathcart-Jones voru upptökumenn en upptökur fóru fram í Stúdíó Stemmu í október og nóvember 1987. Gunnar Smári, Nick Cathcart-Jones, Gunnlaugur, og Friðrik hljóðblönduðu plötuna. Á plötuumslagi eru þakkir til fataverslunar og tekið fram hverjir sáu um hárgreiðslu og förðun.
Skrifað 16.04.08 14:19
Nu-hu-huj, takk og takk.
Ég rýk í Kolaportið þegar ég kem heim. Tek vídjó og set á YouTube og allir mæta svo með rykgrímur.
Djók. Samt væri sniðugt að mæta með bóluefni gegn syfilis.
Annars á ég mörg af Módel-lögunum á mp3 (mjög, mjög illa rippuðum) fyrir utan 'Lífið er lag' sem ég á í fínum fínum gæðum (m.a.s. Extended útgáfu) og fékk frá hollenskum Eurovision aðdáanda.
Mér finnst 'Lífið er lag' besta lagið, kannski afþví að ég er búinn að hlusta svo oft á langa intróið í Extended útgáfunni.
En, í einhverskonar skólaatriði mæmaði ég og dansaði við 'Ástarbréf merkt X' í blágrænum bómullar/pappírsjakka, haldandi á handmáluðum pappagítar með garn-strengjum og vatnsgreitt hár í hálfgerðu tagli, þegar ég var 11 ára.
Það var smá skref niðurávið fráþví þegar ég var í 6 ára bekk í Vogaskóla og performaði Slade með tveimur vinum, ég barði fiskimjölstunnur í Slade-bol sem mamma skrifaði á. Annar vinanna er Þröstur 3000 í dag. Slade breytir fólki.
Takk fyrir infóið! Hvaða fataverslun ætli hafi fengið þakkir?
Skrifað 16.04.08 15:31
mittámillimooooooskvogvosington
mér finnst ylfa og eiki eigi að taka þetta í duett
Skrifað 17.04.08 10:05
Gæti verið erfðara að finna Cosa Nostra. Man ekki til þess að hafa séð hana á ruslahaugunum. Veit ekki með kynsjúkdóma í Kolaportinu, en það er allavega vinsæll hrekkur að mæta með sængurföt þess sem á að hrekkja og láta þau draga í sig hinn einstaka "Kolaports-ilm" sem harðfiskur, sviti og gvöð-má-vita hvað annað hefur sullað saman. Mmmm...
Skrifað 17.04.08 13:46
Já og svo geturru prófað Góða hirðirinn upp á Módel. Aðeins öðruvísi ilmur þar og síst síðri...
Skrifað 17.04.08 13:47
Svo er líka ný Hjálpræðishersbúð úti á Granda og þar koma stundum plötukassar...
Skrifað 17.04.08 19:44
Fékk þær unaðslegu gleðifréttir í gær (miðvikudag) að það er búið að finna fyrir mig eintak af 'Lífið er lag'. Hlakka til að spila það.
Vona að ég finni Cosa Nostra einhversstaðar. Reikna með að 99% eintakanna liggi í kössum í bílskúrum og geymslum. Eitt eintak er í plastvasa í nýpússaðri hillu undir Rega plötuspilara.
En ég ætla samt í Góða hirðinn og þessa nýju grand Grandabúð um leið og ég kem aftur í maí.
Takk.
Finnst sængurKolaportstrikkið líka mjög sniðugt...það væri gaman að efnagreina ilminn. Fékk fnyk afogtil í Góða hirðinum, aðallega frá bókaskoðurunum -- plötufólkið var aðeins skárra.
Skrifað 18.04.08 03:18
Til hamingju með dótið.
Skrifað 18.04.08 12:58
hmmm
http://katrin.is/?t=athugasemdir&nid=6873
Skrifað 20.04.08 13:07
Pretty superior submit. I just stumbled upon your blog and wanted to say that I have really enjoyed reading your blog posts. Any way I'll be subscribing to your feed and I hope you post again soon.
Skrifað 30.09.10 20:54