KRÆST!
Framvörður íslenzkrar úllíngamenningar er búinn að prumpa bónus í brækurnar, púúúúff.
Sætu og krúttilegu úllíngarnir sem ég talaði svo vel um fyrir einhverjum dögum hafa greinilega verið að hlusta á æðri máttarvöld þegar þeir ákváðu að Músíktilraunast gegn ofbeldi, útlendingahatri, og síminnkandi siðmenningu Íslands. Það var bara eitthvað óvart, einhver mistök.
Það sem þeir vildu rappa um var nefnilega "meiri djúzz meiri djúzz óó", "moðerfokking fiftý sent", "segjast vera lögr*ða en eru bara að eitthvað eitthvað", "erum á eggstasý" og ég veit ekki hvað.

Óskar Axel þó! Skammastu þín! Þú ert í Smáralindarstraffi í tvær vikur!
Og ég skammast mín fyrir að hafa virkilega haldið að íslenskir úllíngar hefðu eitthvað annað en hor og bólur á milli eyrnanna. Æstu kommentararnir mínir sem efuðust um heilindin höfðu rétt fyrir sér. Úllíngarnir vilja bara "djzz". Andvarpilisjus.
Skilaboð (8)
Hahahahah,
Svona fara peningar og frægð með allar ungstjörnur.....þúst einusinni var Britney Spears bara dúlla en svo...peningar og frægð og púff.
Skrifað 09.04.08 17:19
hahahahaha, mikið var fallegt af þér að halda að unglingar séu fínir.
Skrifað 09.04.08 18:51
hvað, hví sendast engin skilaboð frá mér
Skrifað 09.04.08 18:55
ó
Skrifað 09.04.08 18:56
Þau
Skrifað 09.04.08 20:02
komu.
Skrifað 09.04.08 20:04
Reynar já, peningar og frægð og púff. Búhú.
Þessi aulaskapur er dúllulegur í sjálfu sér.
Skrifað 10.04.08 00:12
Ég hélt að Bobby hefði ljáð mér þetta lag en svo varst það þú. Takk takk. Mér finnst það gott. Aðallega útaf stelpunni.
Skrifað 14.04.08 11:49