« Young @ Heart | Aðalsíða | Íslenzk úllíngamenning gerir í brækurnar hennar mömmu sinnar. »

Helgin...same old, same old...

Hitti Steven Seagal áðan, hann var í bíl með Helgu Möller og Kim Larsen. Við fórum í ammæli Paul Hogan sem hann hélt heima hjá Eddie Vedder, og Boy George, George Lucas, og Lukas Haas voru að dj-a sem tríó. Svo fékk ég mér pizzu og hitti þar David Mamet, sem var að kitla Tibor Kalman með höndinni á Maggie Gyllenhaal. Morten Harket fannst það ekkert fyndið, og rauk út með Aliciu Silverstone sem hrinti Árna plúseinum beint í fangið á Punky Brewster, sem svo sullaði gullflögukampavíni oní skóna hennar Murphy Brown. Það hefði örugglega orðið vesen ef Willem Dafoe hefði ekki beðið Seal að hjálpa sér að bera Dr. Hook útí sendibíl Stephen King, því Bill Laimbeer rak þá alla út tilað Scott La Rock gæti sofið í friði.

Rugl kvöld! Týpískt New York!!!

Skilaboð (10)

Hringur:

Þvílíkar nafnahendingar hef ég bara ekki séð ! En váá New York er æðisleg ;-)

Jájá, allir eru allsstaðar, alltaf. Sá Nebú Bebú á einhjólinu sínu, þaut framhjá mér í síðustu viku. Hann bað að heilsa, sagði að þú hefðir "great personality".

þú keyrðir á bjössa bollu!

Ég skil ekki alveg af hverju Bill Laimbeer þurfti að vera svona æstur, þó svo hegðun hans hafi alveg verið í takt við árin hjá Detroit Pistons.

Æji, John Stockton var með einhverja stæla. Og Katrín, Detlef Schrempf réééééétt slapp þegar þeir keyrðu á Bjössa bollu.

Linda:

Bað Morten ekki að heilsa mér?

hildur:

hitti kim larsen í alvörunni um daginn, fyrir rúmri viku, á bódegu á christianshavn.

Halli... gettu hvað!? Ég fór í afmæli til Bret Easton Ellis á Manhattan og þar hitti ég Monicu Lewinsky og Molly Ringwald. Þetta er EKKI lygi.

Linda: Morten var of fúll tilað biðja að heilsa einhverjum.

Hildur: "Hitti", eða "sá". Hvað var hann að kaupa???

Magga: ég veit, veit líka að þú hefur farið í fín hús í Kalíforníu. En þú ert líka kvikmyndastjarna.

hildur:

HITTI... og hann var að drekka bjór, sat við barinn eins og allir sem eru mega töff. heilsaði honum og brosti en varð svo femin að ég fór og settist aftur hjá vinum mínum.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 09. apríl 2008, kl: 00:39.

Fyrri færslan er Young @ Heart.

Næsta færsla er Íslenzk úllíngamenning gerir í brækurnar hennar mömmu sinnar..

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31