« Gott gott gott gott veður! | Aðalsíða | Mmmsjón »

Að vera hér eða ekki hér

Ég trúi á mátt köngulóa, því þær borða pöddur og halda skrímslum í skefjum. Þær eru frekar nastí sjálfar, já, en flögra aldrei um svæðið og geta í rauninni bara hlaupið.

Ég er ekki að tala um lófastórar og mannýgar köngulær, heldur litlar og krúttilegar. Eiginlega einsog dordingla, nema bara drapplitaðar (einsog dragt) og rólegar.

Þar sem loftið mitt mætir veggnum (hvað heitir það, btw? ekki "horn" því þetta er ekki alveg horn, kannski samskeyti?) eru oftast tvær litlar köngulær.

Hvaðumþað, að hafa tvær litlar sætar köngulær uppí samskeytum er ekkert scary. Þegar ég sit við tölvuna lít ég stundum upp og horfi á þær og blikka, og þær horfa á mig og blikka sextán sinnum. Ég veit að þær eru þarna.

En veistu hvað er scary? Að líta upp og sjá að það vantar eina.

Þetta er svona mín upplifun á því að eiga kóbraslöngu í búri, og fatta að hún er ekki í búrinu sínu. Hún getur verið hvar sem er.

En mín kóbraslanga er með átta lappir og er jafnþung og kexmylsna. Ég held að ég lifi nóttina af.

Veistu þegar þú gerir eitthvað aftur og aftur af gömlum vana, þó að þú vitir að það sé skrýtið eða virki ekki? Einsog þegar ég fer inná bað og hef ljósið slökkt, þá kveiki ég á leiðinni út. Eða þegar ég er búinn að skrúfa frá krananum og fer svo að vaskinum tilað þvo mér og skrúfa meira frá svo það kemur fruss. Eða þegar ég nota alltaf sjónvarpsfjarstýringuna á DVD spilarann minn. Eða þegar ég keyri í bílakjallarann hjá mömmu og sit aðeins lengur í bílnum þannig að hurðin lokast sjálfkrafa, og þegar ég fer svo loks úr bílnum ýti ég á takkann og hurðin opnast.

Núna er ég að hlusta á tónlist af plötuspilaranum mínum sem ég var (loksins) að fá, og volume takkinn er á litla formagnaranum. Ég vissi það áðan þegar ég sat fyrir framan spilarann að hlusta.

En núna sit ég hálfan metra til vinstri að pikka á lyklaborðið, og er búinn að ýta á volume takkann á lyklaborðinu til að hækka eða lækka og fatta þá að ég er ekki að hlusta úr tölvunni, og sný þá takkanum á formagnaranum. Nema ég er búinn að gera þetta svona fimmtán sinnum...hah, og var að gera það akkúrat þegar ég skrifaði þessa setningu. Jesús, ég varað snúa við plötunni, og ýtti svo aftur á lyklaborðstakkann tilað hækka.

Og núna er ég að berjast við að snerta ekki lyklaborðstakkann bara til að prófa. Í alvöru. Það er svona kitl í upphandleggnum mínum. Kannski ef ég ýti núna. Mér finnst ég vera að berjast í ekki-vera-vitlaus-keppni við sjálfan mig. Heili á móti einhverskonar vöðvaminni.

Einhverntímann las ég að við notum sjónina ekki jafn mikið og við höldum, og treystum á sjónminni í staðinn. Með öðrum orðum, þegar þú kemur inní herbergi sem þú ert alltaf í, þá ertu ekki að "sjá" það aftur, heldur pikkar heilinn upp smá vísbendingar og ákveður að þú hafir séð þetta allt áður og skiptir yfir í 50% sjón / 50% sjónminni. Þetta er ástæðan fyrir því að þú labbar á stól sem er á miðju gólfinu, eða rekur hausinn í opna skápahurð.

Einusinni sneri ég og vinur minn nokkrum myndum í myndahillunni heima hjá vini okkar, og mamma hans kom heim og fattaði ekkert. Nokkrum dögum seinna voru myndirnar ennþá á hvolfi, og búið að þurrka af og allt.

Og frændi minn rakaði einusinni hálft skeggið af sér, og enginn fattaði það nema ég. Allir kysstu hann hæ og allt. Og svo alltíeinu, tveimur tímum seinna, EFTIR matinn, kom "göövvuuuuuð".

Ég mæli með því að þú rakir á þig skallabletti, setjir upp lepp, færir húsgögn útá mitt gólf, og sagir gat á eldhúsgólfið áður en þú ferð að sofa, og athugar hvort þú fattir eitthvað í fyrramálið. Og athugaðu hvort köngulærnar þínar eru á sínum stað.

Skilaboð (3)

einu sinni í partýi hjá ókunnugum svissuðum við hans öllum skúffunum í eldhúsinnréttingunni:)

Hah, það er sniðugt!

Skrúfjárn í súpuna!

dix:

Haraldur vinur minn.
Þú ert skemmtilegur!

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 16. apríl 2008, kl: 01:20.

Fyrri færslan er Gott gott gott gott veður!.

Næsta færsla er Mmmsjón.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31