Óskar Páls og Karen P lentu í 2. sæti á nýafstöðnum Músíktilraunum auk þess að fá verðlaun fyrir íslenska texta. Ég er bara búinn að heyra lagið á vefsíðu Músó, og textinn er ótrúlega fínn og lagið skemmtilegt.
Hér eru upplýsingar af Músíktilraunasíðunni:

Nafn: Óskar Axels og Karen Páls
Sveitarfélag: Reykjavík
MySpace: http://www.myspace.com/karenpmusic
Nöfn og aldur: Óskar Axel Óskarsson, 16 ára að verða 17, rappari og texta/lagasmiður
Karen Pálsdóttir, 15 ára, söngkona
Birgir Örn Magnússon, 16 ára, rappari/hyper og bakraddir
Um bandið: Við erum ungir krakkar sem hafa mjög mikinn áhuga á tónlist og erum aðalega að semja hip hop/pop lög, við erum rosalega comitted og erum að reyna að hafa augun okkar á hverju tækifæri sem við fáum.
Þetta er fyrsta skiptið sem að við tökum þátt og hlökkum mjög mikið til og vonum bara að við getum gert okkar besta.
Sýnishorn: Unglingar (mp3)
Þetta er ótrúlega fínt!
Skilaboð (18)
ég dó úr leiðindum eftir 5 sek af þessu lagi....
Skrifað 16.03.08 11:53
Ertu að kommenta að handan?
Mér finnst þetta svo fínt. Hlustaðu á allan textann.
Skrifað 16.03.08 17:15
jamm nú get ég eytt öllum mínum tíma í að kommenta á bloggið þitt
ég gæti samt tjáð mig heilmikið um þetta en ég viliggi gera það fyrir allra augum
Skrifað 16.03.08 18:17
Vinur minn var að kaupa Barinn. Atti að spurja þig hvort það se stemning fyrir Ítölsku Diskó?
Skrifað 17.03.08 03:40
Er stemmning fyrir Íslensku Diskói ?
Skrifað 17.03.08 05:55
Góður texti við þetta lag, en það er eiginlega allt og sumt sem þetta lag gerir fyrir mig.
Aftur á móti það litla sem maður hefur heyrt frá Agent Fresco er helvíti gott. Hlakka til að heyra meira frá þeim.
Skrifað 17.03.08 09:34
Benni: Það er aaaaaalltaf stemmning fyrir ítölsku diskói!
Maggi: já...ég vildi að það væri meira um það. Helga Möller er drottning íslenskz diskósz.
Sigurjón: Ég var einmitt aðallega að tala um textann.
Agent Fresco er fínt dót, hlustaði á þetta eina demó þeirra. Minnti einhvern á bandið Do Make Say Think.
Skrifað 17.03.08 19:29
"Þetta er ótrúlega fínt!"
Halli, er þetta frænka þín eða?
Skrifað 17.03.08 22:47
Á ég að dissa þetta í klessu afþví að þau eru bara 15 ára og afþví að þetta sándar ekki einsog Kanye West?
Mér finnst textinn, sem ég efast um að einhver hafi hlustað almennilega á, mjög fínn, og gaman að þetta er ekki kjánaleg & týpísk Músíktilrauna-úllíngadramatík (a la "ég er svo ungur og enginn skilur mig" o.s.frv.). Þetta er ekki tilgerðarlegt og mér finnst aksjúallí mjög fínt að einhver fari í Músíktilraunir og rappi um rasisma og fávitaskap í úllíngum (og foreldrum þeirra).
Skrifað 18.03.08 00:38
má maður ekki dissa þetta af því gaurinn er að verða 17 og þetta fjallar ekki um það sem úllíngar fjalla um venjulega?
Skrifað 18.03.08 07:21
Hey, dissið að vild. Mér finnst þetta fínt.
Skrifað 18.03.08 11:42
já hættuðí!!!
grín;)
Skrifað 18.03.08 20:28
sagði hann alkóhólista dópistar fóru ekki í fokking grunnskóla?
þetta er sætt!
Skrifað 18.03.08 21:11
hvað er málið með ykkur þetta lag lýsir bara unglingunum í dag .... allt sem er sagt í textanum er bara algjörlega satt .. þannig halda áfram að gera svona góð lög
Skrifað 02.04.08 16:34
Einmitt!
Skrifað 02.04.08 17:48
Ég meeeeeiiiiika ekki íslenskar arenbí söngkonur. Hún er með fallega rödd stelpan en þessar stöðugu arenbí slaufur eru hreint ærandi. Ég hélt út í 2/3 af lagi, gat ekki meir.
Skrifað 09.04.08 11:56
En textinn, grætti hann þig ekki?
æjjj ég gefst upp
Skrifað 14.04.08 19:23
þetta er gott lag hvernig finn ég textan af því?
þið ,ættuð vanda ykkur því þið eruð sjálf unglingur þannig passið ykkur
Skrifað 05.07.08 00:07