Í gær fóru ég og Sigurjón oní kok á The Thing, thrift-store-plötuskrímslinu sem ég dáðist að um daginn.
Vídjóið sýnir kjallarann akkúrat einsog hann er: staflar og staflar og staflar og endalaus hillufylli af mis-rykugum vínilplötum. Ég vildi fara þangað bæði til að sjá inní gin skrímslisins, og auðvitað í þeirri von að finna sniðugar plötur.
*** Gleymdi að skrifa að plöturnar eru ekki í neinni röð. Þú verður semsagt bara að...leita. ***
Við byrjuðum á að labba um hverfið og finna stað tilað borða, og settumst á litlum stað með eldhúsi sem var jafn stórt og borðplatan og skurðarbrettið sem þar var. Maturinn sem úllíngurinn eldaði var mjög góður, ég fékk french toast með kanil, rúsínum, möndluflögum, banönum, og melónu, og það var mjúkt, flöffí, og dílisjus. Sigurjón pantaði bara það fyrsta sem hann sá að var með cheddar-osti.
Svo fórum við inní The Thing, og á götuhæðinni er allt troðfullt af öllu sem þú getur ímyndað þér að geti tekið við og safnað ryki. Inná milli troðfullna hilla eru skældar einhjólaðar ferðatöskur, National Geographic komplett frá 1967, slidesmyndir, fjölskyldumyndaalbúm, bermúdastuttbuxur með apamunstri, útslefaðir trompetar...þú fattar.

Og innst á þessari hæð er op inní bakherbergi sem er troðfullt af vínyl í allskyns mjólkurkössum úr plasti, sem er er einfaldlega staflað eins og þeir komast fyrir. Sumt er pikkfast í hillum, sumu er hægt að fletta með herkjum, en meirihlutinn er einfaldlega einhversstaðar í hrúgunni. Þarna var einhver gaur að hlusta á möguleg framtíðarkaup á litlum gömlum plötuspilara sem var þar til afnota, og mér leist ekki á það sem hann hélt á.
Þetta var alveg fínt og magnað, en til vinstri var annað hurðarop og brattar tröppur niður í ástæðu þess að ég vildi fara þangað. "Watch your head - low ceiling" skilti á veggnum, og svo...wá.
Ég labbaði niður tröppurnar og nokkur skref áfram, sneri mér svo við og tók þessa mynd:

Eftir að gapa í nokkrar mínútur og trúa því varla hversu mikið er af plötum þarna niðri, þá ætlaði ég að byrja að fletta og vera duglegur og finna einhverja dýrmæta snilld...en hvar átti ég að byrja? Niðri? Uppi? Á fyrstu hillunni? Innst? Ætli einhverjir hafi falið bestu plöturnar á verstu stöðunum?
Ég togaði bara nokkrar plötur úr hillunni og varð ringlaður og vissi ekkert hvar ég ætti að byrja. Þetta er eiginlega of mikið af plötum. Alltof mikið.
Ekki einsog að finna nál í heystakki, heldur einsog...að finna ósaltan dropa í sjónum. Í kjallara. Fullum, fullum, fuuuullum af ryki, og opnum niðurföllum, misstórum köngulóarvefjum, einhverju sem gæti verið ofurkusk og gæti verið þornaður nagdýrakúkur, einhverju sem var kannski einusinni tyggjó...og svo auðvitað óendanlegum fingraförum og káfi eftir annað fólk. Og þú veist hvað mér finnst um svoleiðis.
Ég teiknaði mynd af rýminu, einsog mér fannst það líta út, svo þú fattir dáldið hversu stórt--og algjörlega endalaust--þetta plötuskrímsli er.

Þetta ætti að vera nokkuð augljóst. Bláu kassarnir á teikningunni eru mjólkurkassar sem er staflað í nokkrum hæðum eftir einum veggnum endilöngum (vinstra megin á myndinni að neðan)...

...og líka á nokkrum frekar scary botnlöngum (skrímsla-botnlöngum!) sem eru einfaldlega eeeeendalausir staflar af dularfullum plötukössum, mögulega troðfullum af gómsætum dásemdum, sem þú yrðir að fara yfir í þyrlu eða á arnarbaki.

Við byrjuðum bara að fletta...einhversstaðar. Hvað annað átti ég að gera? Úrvalið er í rauninni það sama og á flestum öðrum thrift-stores og mörkuðum, og well, beisiklí flestum heimilum: mikill hluti er illa farið og leiðinlegt drasl (vond músík á sjúskuðum vínyl með krumpuðu/rifnu/mygluðu umslagi), og einhversstaðar innámilli leynast ótrúlegar plötur. (Nei, ekki Boney M!)

(Sigurjón tók þessa)
Ég var aðallega að leita að diskó og Ítaló Diskó og þessháttar, en auðvitað líka einhverju sniðugu. Einsog vaninn er á svona stöðum er sama verð fyrir allar plötur, oftast 99c eða $1, en þar sem plöturnar kostuðu $2 hérna þá ákvað ég að vera meira pikkí en annars (þarna er hááárfín lína), því ég þarf jú bæði að rogast með plöturnar heim og geyma, og til hvers að eiga plötur sem þú spilar aldrei og nennir ekki að selja?
Hér er myndaröð af því tímabili í mínu lífi sem ég fann (á undarverðan hátt) remix af Lime:



Stórkostlegt! Ég fann svo fullt af öðru sniðugu, mest diskó. Sigurjón hjálpaði mér að finna eitthvað fínt, t.d. togaði hann út plötu með Daniel Vangarde (sem gerði m.a. 'Palace Palace' sem Who's Who).

Sjálfur var'ann að vonast tilað finna Bob Dylan, en það eina sem hann labbaði út með var það hlutverk að hjálpa mér að bera plöturnar mínar heim. Fyrir utan diskóið var ein myndaplata, upptaka af jarðarför Martin Luther King Jr. ásamt frægu ræðunum hans, Disney-plata, 'Mr. Fantasy' með Traffic, North-By-Northwest soundtrackið og svo Eddie Towns, sem pósar með glansandi gítar og risa vélmenni.
Þetta er það sem ég hlunkaðist með heim:

Við ákváðum í sameiningu að næst myndum við mæta með hanska, rykgrímur, hárnet, og í fötum sem eru ekki svört. Eftir smá plötufletterí leit ég út einsog dauðvona flösusjúklingur með kvef, og ég varð að líta framhjá öllum mögulegu og unidentified rykpöddunum, myglusveppunum, og því sem er búið að molna og breytast í ryk. Múmíur, vörubíladekk, vindlaaska...ekkert kæmi mér á óvart.
Sumar plötur voru auðvitað drasl sem ég myndi ekki einusinni vilja fá gefins, og langflestir plötukilirnir eru rifnir og tættir vegna allra læranna, axlanna og líkamspartanna sem eru búnir að strjúkast við plöturnar síðustu árin. Það þýðir að í hverri hillu er bara hægt að lesa örfáa titla, og tilað skoða plöturnar verður þú því að toga bunkann úr hillunni, og ýta einni inn í einu. Þolinmæði, vinur minn. Og ef þú flettir þeim í mjólkurkassa færðu rykmettaðan gust í hvert skipti sem þú flettir. Rykofnæmi, vinur minn. En vínyllinn sjálfur er oft í mjög fínu ástandi, og það er það sem skiptir máli....nema með ET - 'Best Friends', ég keypti hana bara útaf umslaginu.
Við vorum þarna í ca 3,5 klst (er það ekki Sigurjón?) og ég var sáttur við það sem ég fann, þó ég hefði auðvitað viljað finna miklu meira. Ég keypti eina plötu sem ég gæti selt á $40, tvær sem færu á ca $20, nokkrar sem gætu farið á $10-15, og svo margar á $5...en þær fara bara í kassann minn og í eyrun mín. Og kannski þín þegar ég er kominn með rip-græjurnar í gang.
Einhver sagði að í þessu skrímsli væru 75.000 plötur. Ég veit það ekki...það getur vel verið. Skoðaðu kortið mitt og kíktu á myndirnar og náðu í reiknivél, þá fattaru hversu þétt þeim er raðað og hversu margir kassar eru í stafla-hrúgunum útum allt. Ég held að tilað eiga raunhæfan möguleika á því að vita hversu gott þetta safn er, þá þyrfti ég að mæta á hverjum degi frá 8-17 í ca tvær vikur, með skósvein tilað fletta með mér, og sjúkrabíl á standby fyrir utan.
Þetta var næstum því overwhelming, og þegar ég loksins labbaði inn til mín með þuuunga mjólkurkassann þá var ég svo, svo þreyttur. Fór beint og skrúbbaði hendurnar og andlitið og hárið, og skipti um föt og snýtti mér fast og vel og er búinn að snýta mér af og til síðan þá, bara til öryggis.
En ég get ekki bítt eftir að fara aftur! Fjaaaa!
Með rykgrímu. Kannski í hvítum overall. Í stígvélum. Með skósvein.
Skilaboð (13)
mig langar ekki í þessa búð
ég vil hafa búðir þannig að þegar maður kemur inn í þær þá hefur maður strax góða yfirsýn yfir allt í boði
þá getur maður labbað beint að einhverju sem manni líkar og svo borgað og út
Skrifað 28.03.08 09:57
Vei vei vei! Ég sendi sko helling af afrykshugskeytum á staðinn en þau hafa greinilega ekki komist til skila.
Ég er svo glöð að þú hafir fundið margar plötur. Leitt með rykið og ógeðið, en ég held samt að þetta hafi verið þess virði. Ég væri alveg til í að skoða þessa búð við tækifæri!
Hlakka til að sjá hvað þú finnur meira í framtíðinni.
ps. ET - 'Best Friends' coverið er ógeðslega flott!
Skrifað 28.03.08 10:58
ég er búin að vera með brown girl in the ring með boney m á heilanum í allan dag útaf þér
Skrifað 28.03.08 13:45
Katrín, já, ef þú ferð í Skífuna í Smáralind er einmitt tilboð á Garðari Þór Cortez, mjög áberandi, í pappahillu alveg við innganginn, þú getur ekki misst af því!!!
Linda: jájá, ég skolaði rykið bara af mér, en það er ekki hægt að skrúbba góðu minningarnar í burtu...*sniff* Ég vil aftur.
Skrifað 28.03.08 16:09
Þetta er eins og Safnarabúðin sinnum 30 eða hvað? Mínus rúnkkarlarnir? Hljómar vel, maður myndi mæta ef þetta væri á Klapparstígnum. Annars er Valdi alveg fínn. Takk fyrir að deila þessu með okkur nördunum. Eitthvað pönk þarna?
Skrifað 28.03.08 16:13
svo er reyndar risa stór auglýsing í glugganum á skífunni á laugavegi um femin diskinn, 100 lög fyrir konur
oj ég skammmast mín í hvert skipti sem ég keyri fram hjá
hvaða hálfviti bjó þetta til? ég þori ekki einu sinni að kíkja hvaða lög eru í boði
Skrifað 28.03.08 16:30
Dr. Gunni: Sá ekki mikið af paunki, nei...ef eitthvað? Ég fletti líka svo litlu prósenti af öllum plötunum að ég get eiginlega ekki sagt um það, hah.
Á þeim (litla) tíma sem ég var þarna sá ég mest af því sem ég bjóst við að finna, enda er þetta bara þverskurður af "svona búðum". Ótrúlega mikið af Isley Brothers, og svo endalausar random plötur.
Þessi búð er nefnilega dáldið trikkí, því það er svo hrrriiikalega aðlaðandi hversu skrímslalega stór hún er, og stór partur af því að mig langar aftur er að geta verið aleinn þarna niðri---því það var enginn þarna nema við!--og gramsað að vild. Þannig að jackpottinn sem mig langaði að upplifa varð kannski ekki að ég fann svo margar frábærar plötur, heldur meira "vá...endalaust endalaust...og allt fyrir mig".
Ég fer aftur, læt þig vita með pönk-ástandið.
Skrifað 28.03.08 16:59
Júbb, 3.5 tímar, enda var ég helvíti þreyttur þegar ég kom heim.
Þú gleymir hinsvegar alveg að tala um efri hæðina, þar sem plötuspilarinn var. Þar voru svona 5-10 þús plötur í mjólkurkössum, staflað upp í loft og lengst inn í myrkrið. Það var ekki hægt að leita í nema svona 1000 plötum af því safni án þess að færa allt til.
Svo má líka geta þess að það er hugsanlegur rottugangur í kjallaranum.
P.S. Við komust kannski í gegnum 5% af safninu á 3.5 tímum. KANNSKI svo mikið.
Skrifað 28.03.08 20:52
Já, ég hæpaði þann hluta kannski ekki nóg, skrifa samt (undir fyrstu myndinni) að þar hafi verið fullt af plötum, en ég held að í samanburðinum hafi minningin breytt þeim í eina tvöfalda Now! safnplötu...
Skrifað 29.03.08 00:38
sæll, mynda meta það vel að fá adresssu á þetta himnaríki...
peace.
Skrifað 29.03.08 08:09
Jám, þessi búð er á 1001 Manhattan Avenue í Greenpoint í Brooklyn. Þú tekur G-lestina á Greenpoint stöðina, sem er tvö götuhorn frá skrímslinu/himnaríkinu.
Skrifað 29.03.08 14:29
O. Pant hafa fullt af tíma til að gramsa þarna, þetta er svo mikið fínt allt saman.
Er þetta ekki annars sama búð og dularfulla stelpan í þessu myndabandi fer í?
http://youtube.com/watch?v=kaYsczkWti0
Skrifað 31.03.08 20:33
Júbb, sama stúlka. Hún var ööööööll útí ryki.
Skrifað 01.04.08 03:39