Þetta er fyndin grein: Átak gegn niðurníðslu á mbl.is.
"Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður borgarráðs Reykjavíkur segir að einhugur sé í borgarstjórninni og að nú sé meiningin að eyða tugum miljónum í að hreinsa miðborgina og gera átak í því að fá eigendur húsa í miðborginni til að bregðast við þeirri niðurníðslu sem blasir við.
Komaso!
„Ef að einstaka húseigendur ansa ekki okkar óskum munum við beita öllum þeim úrræðum sem við höfum til að knýja þá til að gera það," sagði Vilhjálmur í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.
Já, láttu þá finna fyrir því!
Þetta er myndin með greininni:

Gráa húsið að ofan, Hverfisgata 34, er búið að vera í fréttum aftur og aftur og aftur vegna hústökufólks og endurtekinnar íkveikju. Portið ásamt öllum íbúðum er útkrotað og spreyjað, og allt útí pissulykt og sót og reyk- og eldskemmdir o.s.frv.
Ég átti íbúð akkúrat í þessu húsi; gluggarnir mínir eru fyrir ofan skiltið. Ég seldi íbúðina fyrir nokkrum árum.
...gera átak í því að fá eigendur húsa í miðborginni til að bregðast við þeirri niðurníðslu sem blasir við.„Ef að einstaka húseigendur ansa ekki okkar óskum munum við beita öllum þeim úrræðum sem við höfum til að knýja þá til að gera það..."
Veistu hver keypti?
Reykjavíkurborg.
Skilaboð (5)
oh nú væri næs ef þessi færsla væri með tengingu við hliðná greininni
eina skiptið sem gæti borgað sig að vera moggabloggari
Skrifað 27.03.08 19:15
Nákvæmlega það sem mér datt í hug, kannski aðeins practice what you preach, taka eilítið til í bakgarðinum, rífa kannski draslið á lækjartorg, laugavegi 4-6 og loka grunninum efst á laugavegi og svo mætti lengi telja...
Einu sem hafa gert eitthvað eru málningarnötterarnir sem fóru á stúfana í nótt.
Go Villi!
Skrifað 27.03.08 19:18
Ég er með moggablogg og er að rembast við að skrifa við greinina, en það virkar ekkert.
Það virkaði áðan, en svo breytti ég færslunni og þá datt tengingin við fréttina út, og ég er búinn að prófa að skrifa ný fréttablogg en þau koma alltaf án tengingar...drasl drasl.
Skrifað 27.03.08 21:33
Get skrifað um allar aðrar fréttir en þessa...
Skrifað 27.03.08 21:34
oj ritskoðun
Skrifað 28.03.08 08:44