Ég varað skrolla í gegnum 483 tölvupósta frá mis-asískum aðdáendum Shakeskin.com hristifésasíðunnar, sem allir innihéldu eina, tvær, eða þrjár ljósmyndir af viðkomandi.
Hversu margar voru af hristu fési?
Ein.
Þessar myndir fara því í misskilningssafnið, sem er nú þegar fullt af gaurum að spenna magavöðvana á símamynd, stelpum að sýna lokkinn í tungunni, mæspeismyndum, hundamyndum, smábörnum, útilegum, bátsferðum, og öllum mögulegum webcamandlitsmyndum af einhverjum að gera ekki hristifés.
Ég hélt að þetta útskýrði sig nokkurn veginn sjálft. Oh well.
p.s. eigandi hrista fésins var þýskur bleiknefji.
Skilaboð (3)
hehehe misskilningurinn er ógeðis fyndinn
gaurinn vinstra megin er samt pinku eins og úllíngs þú
án þess að ég viti hvernig þú varst sem úllíngur:)
Skrifað 10.03.08 11:47
Kannski neðri helmingur ég, efri helmingur Siggi Eggerts?
Skrifað 10.03.08 12:40
Remarkable concepts on this site. It's rare these days to find websites with data you are seeking. I am happy I chanced on this webpage. I will certainly bookmark it or even register for your rss feeds simply to be updated on your new posts. Maintain up the nice job and I'm sure some other folks researching valued information will actually stop by and benefit from your web site for resources.
Skrifað 30.09.10 18:56