« Stairway to Heaven - cover extravaganza! | Aðalsíða | Mbl: ísland vs. útlönd #2 »

Mbl: ísland vs. útlönd

Þeir sem væla mest yfir alræðisstjórn og fjölmiðlaheilaþvotti í Bandaríkjunum ættu bara að skoða Morgunblaðið aðeins betur.

Hér eru fyrirsagnir dagsins:


Brrr. Vertu bara heima. Ekkert vera að fara til útlanda. Sjáðu hvað allir eru grimmir þar! Morð, fjárkúgun, og slæmar mæður. Vertu bara heima. Við pössum þig. Hér er allt svo fínt. Aungvir glæpir. Allir góðir. Kondu, vinndu aðeins meira. Jú maður, þú átt skilið að fá þér stærri bíl. Kaufftu meira brokkolí. Mmm, íslenskt grænmeti, mmm. Dýrt grænmeti er betra grænmeti, það vita allir. Þú verður drepinn á erlendum grænmetismörkuðum. Hér heima geturu talað íslensku. Ekki fara. Ekki fara. Hvenær ætlaru að hætta þessari vitleysu? Hvenær flyturu svo heim? Ertekki að fara að vera búinn þarna úti? Já, er ekki alltaf best samt á Íslandi, mér finnst það. Hvað áttu mikið eftir? Ég skil ekki svona ruglað lið--svona myndi aldrei gerast hér. Hvenær flyturu heim? Ferð'ekki að vera búinn? Hvenær flyturu heim? Ekki fara. Ekki.

Skilaboð (6)

ekki koma
hér er hvorki magnolia bakery né american apparel né apple on 5th

:(

svo er líka alltaf rok og slabb og sleipt og kalt og blautt

og ég las allar grænu fyrirsagnirnar með gleðihljóm og hinar rauðu með alvarlegum tón

Í HUGANUM!

ég held ég sé tlikkuð..

Scweppes:

Pakistan hlýtur að eiga eitthvað met í fréttaleitinni á Mogganum

:(
:(
:(

Linda:

Morgunblaðið þjáist af þjóðrembu. Það er löngu vitað.

Bjarki:

Hvenær flyturu heim?

Þórður:

Þessi gamli vegur hefur lengi laðað ferðalang til og frá húsinu.

Þeir sem koma segja þeim sem heima sitja sögur af lífinu – fólkinu.

Hver vegur að heiman er vegurinn heim og hamingju sjaldan þeir ná sem æða um í kapphlaupi við klukkuna og sjálfa sig án þess að heyra eða sjá.

Margir draga í efa það sem áður voru hyggindi, sannindi – vísindi.

Undarleg er reynsla ótrúlega margra af vistinni á jörðinni – ástinni.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 11. mars 2008, kl: 11:12.

Fyrri færslan er Stairway to Heaven - cover extravaganza!.

Næsta færsla er Mbl: ísland vs. útlönd #2.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31