« Ha? | Aðalsíða | Holl húsráð #402 »

Kjúríbúrí...ÆJH!!!

Mig dreymdi rosalega krúttilegan draum. Ég bjó í einhverskonar fjallakofa, a.m.k. var fullt af jólatrám í kring, og hann gat vel verið úr bjálkum. Mér var hlýtt þar sem ég svaf í stóru svefnherbergi, og teygði úr mér og allskonar næserí.

Ajj, svo kom litla músin mín og ég strauk henni og klappaði, og hún trítlaði upp höndina mína og sagði "tíst" og ég sagði "krúsímúsí" og við vorum að krúttísprengjast saman tvö í hálsakotinu.

Þá fattaði drauma-ég það, og sendi skilaboð yfir í sofandi-mig. Mýs eru til í alvörunni, og þær eru til í íbúðum í New York. Ég var með svoleiðis þegar ég bjó í Chinatown, og þær skutust yfir gólf og undir borð og hillur, og nöguðu súkkulaði og sögðu "tíst".

Ég vaknaði með svaka kippi og gargi og fékk smá svitakast og kýldi smá útí loftið og þeytti af mér öllum ímynduðum músum sem voru rétt áður að trítla sér í hálsakotinu. Miðað við þægilega hálsgælið sem ég fann nokkrum sekúndum áður, þá hef ég pottþétt verið að strjúka mér með puttunum. Vildi að ég ætti það á myndbandsspólu.

Annars finnst mér pínu fyndið/skrýtið að ég get ekki legið rólegur og hlustað á tónlist með heyrnartólum. Fyrir nokkrum árum hætti ég að geta slakað alveg á og kannski sofnað, og núna opna ég alltaf augun með nokkurra sekúndna millibili. Veit ekki alveg hverju ég býst við. Hópi af nauðgurum að klöngrast innum gluggana mína? Kóbraslöngu að danglast í fangið? Bjarnarhrammi í fésið?

Mig langar bara að geta legið með lokuð augun og hlustað á tónlist og kannski sofnað. Og ekki mýs að naga hálsinn minn. Er það of mikið að biðja um? *sniff*

Skilaboð (2)

Bob:

Það er vísindalega sannað að kofamýs eru knúsilegastar.

Kofamýs, og elgir.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 06. mars 2008, kl: 10:02.

Fyrri færslan er Ha?.

Næsta færsla er Holl húsráð #402.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31