Næst þegar þú ertað spá í að snýta þér með munninn fullan af munnskoli -- slepptu því bara.
Ég prófaði, og tæmdi bæði nasir og munn.
Það er máski einstaklega hollt að gera svoleiðis djúphreinsun af og til, sbr. teketils-uppí-nef-hellinguna sem ég vil ekki trúa að nein geri án þess að ranghvolfa augunum yfir sjálfri sér ("sjálfri", því ef einhver gerir það eru það granola-bryðjandi konur á grænblárri jógadýnu, líklega týpan sem býr í hjólhýsi og slúðrar í hundinn sinn. Og borðar mikið granola.), en þessi leið er ekki alltof frábær.
Og svo held ég að tónlistarsemjikallinn fyrir myndina Smokin' Aces hafi stolið tónlistinni úr...The Apprentice, af öllum stöðum. Donald Jimbalaya Trump snýr sér í gröfunni (hann á sko gullgröfu).
Hey og ég sendi sjálfum mér sms og fattaði ekki strax frá hverjum það var.
Og ég hitti Jeff um daginn, bara stutt, og kauffti nýbakað brauð (gott! gott! gott!) í kjallarabakaríinu rétt hjá honum (konan sem afgreiddi mig var kjallarabolla) og líka tvær smákökur sem voru eiginlega bara kökur, lófastórir deighnullar sem ég er ekki enn búinn að klára (þori ekki meir...er uppgefinn...).
Og mér finnst fyndin skeitaratískan að vera í rauðköflóttum skyrtum og flauelsbrókum og með alskegg og rúllihúfu. Skógarhöggsöxin hlýtur að þvælast fyrir í ollíunum.
Og svo borðaði ég aðeins of mikið chilipaste um daginn (aftur), og sat með störu og slefaði í servíettu í tíu mínútur. Ég var skorpinn að innan þegar slefið loks slitnaði. Halli, chillaðu á chiliinu.
Og ég sat á móti þessum í lestinni um daginn. Hann var klæddur einsog túristi, og hélt, að mér sýndist, á skóm í fanginu. Nei, það hlýtur að hafa verið leðurtaska. Kannski full af handritum og óskurum. Eða reimum?
Og ég sá löggumann vera að æfa sig að rappa á lestarstöðvarröltinu sínu. Það var mega-krúttilegt. Kannski var hann að fjalla um ævi sína í borginni sem aldrei sefur. Eða kannski var'ann bar'að rappa um kellingar og kláravín, morð og meskalín, gull og gúmmílím.
Og litli hundurinn sem geltir stundum oft alltaf minnir mig ótrúlega á reif-lóminn sem var mjög aktífur í ðe 90s, t.d. í 'Pacific State' með 808 State. Kúrrihúrrúúrúúrúúr.