« Gáta | Aðalsíða | Grannar »

Hjálparbréf um páska

Ég varað fá eitt hresst peninga-spam í tölvupósti, þúveist, þar sem einhver sonur einhvers ríks þarf hjálp við að leysa tonn af fé úr læðingi, og ég græði, hann græðir, allir græða.

Vanalega eru þetta synir Nígerísks baróns eða lávarðs, en þessi gaur er helvíti hress og jákvæður.

My name is Abu Omar al-Majid a citizen of Iraq and son of Ali Hassan al- Majid(Chemical Ali) who was condemed and approved for death by hanging.

Come again? Chemical Ali?!!?

HVAR SKRÁI ÉG MIG???

Hey fjelagi, vil alls ekkert trufla þig, en næst þegar þú vilt fá pening þá ættiru að prófa að segjast ekki vera sonur dæmds og dauðs skrímslis sem myrti þúsundir Kúrda með eiturefnum.

Ég bíð spenntur eftir bréfum frá Rick Stalin, Zack Hitler, og Vlad Tepes Jr..

Skilaboð (1)

Ég tók næstum því sama hláturskastið og ég tók í 6-unni í gærkvöldi.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 23. mars 2008, kl: 16:28.

Fyrri færslan er Gáta.

Næsta færsla er Grannar.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31