« Gúlp! | Aðalsíða | Hjálparbréf um páska »

Gáta

Sigurjón póstaði gátu á síðuna sína sem ég ætla að fá lánaða.

Einsog Sigurjón sagði, þá er þetta "einföld stærðfræði og engar faldar staðreyndir á bakvið hana, hún er nákvæmlega eins og hún er."

Í skólabíl eru sjö krakkar. Hver krakki er með sjö bakpoka. Í hverjum bakpoka eru sjö kettir og á hver köttur sjö kettlinga.

Hvað eru margir fætur í skólabílnum?

Svarið í kommentin plís. (og ekki fara á síðuna hans Sigurjóns því svarið blasir þar við manni)

Skilaboð (9)

Sigurgeir Þór:

2*7+7*7*4=
210 fætur

Ég hallast að því að þetta séu 42 fætur, þar sem að kettlingarnir eru aldrei beinlínis sagðir vera í vagninum.

Ef kettlingarnir ertu teknir með í jöfnuna eru þetta 238 fætur (14 barnafætur, 28 kattafætur og 196 kettlingafætur.)

Svo má reyndar ímynda sér að erfitt sé að skilgreina loppur á kattardýrum sem fætur, og þá erum við bara að tala um 14 fætur.

Að lokum myndi ég gjarnan vilja ímynda mér að það sé bílstjóri í vagninum og þá má bæta 2 við hvaða af ofangreindum tölum sem fólki líst á.

Úps, ég tók ekki strax eftir því að hver krakki er að sporta 7 bakpokum (?).

Svarið hlýtur að vera 357 fætur. Að því gefnu að það sé búið að gefa kettlingana í burtu, allavega þá eru þeir hvergi sagðir vera í vagninum þó að þeir séu einhversstaðar til.

Sigurgeir Þór:

Nei, þetta er svona, ég gleymdi einum lið,

2*7+7*7*7*4=
1 386 fætur

2(fætur per krakka)*7 (krakkar)+ 7 (krakkar)* 7 (bakpokar)* 7 (kéttir) *4 (fætur per kött)
(kéttirnir eiga kettlinga en ekki er tekið fram að þeir séu inní vagninum.

Ókei, ég er greinilega greindarskertur. Ég dreg til baka fyrri athugasemdir og ætla að hengja mig utan á lausnina hans Sigurgeirs. Það er klárlega hið eina rétta í stöðunni.

Linda:

Mitt gisk:

Fætur á börnunum: 7x2 = 14 fætur

7 börn x 7 bakpokar = 49 bakpokar

49 bakpokar x 7 kettir = 343 kettir

343 kettir x 7 kettlingar = 2401 kettlingar

343 + 2401 = 2744 kettir og kettlingar sem að eru með fjóra fætur hver (nema það sé mega inbreed í gangi) sem að gera: 10976 kattafætur + fætur á börnum 14 = 10990 fætur í skólabílnum

Grey krakkarnir að þurfa að burðast með sjö bakpoka.

Og 10.990 fætur, því þetta var algjörlega rétt hjá Lindu!

Go Linda!

Linda:

Vúhú! Fær maður ekki verðlaun?

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 22. mars 2008, kl: 20:04.

Fyrri færslan er Gúlp!.

Næsta færsla er Hjálparbréf um páska.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31