« Cursorlover | Aðalsíða | Halli í fréttunum »

Fjárans fjakk!

Sat í sófanum á nærbuxum og í sokkum með tölvuna á lærinu að pikka sem óður maður, þegar...

...fokkíng padda skreið framhjá mér...

...á sófanum...!!!

Argh! Fokk hvað mér brá!!!

Ég sko skaust á fætur með tölvuna (það gustaði um alla íbúð, þetta var svo hratt) og kveikti meira ljós og hljóp inní eldhús og í skápinn undir vaskinum og sótti hreinsispreyið og drekkti pöddunni.

Hún var lítil, ca 2cm.

Ohh, núna er ég allur í klæjikippum...OG BARA Í NÆRBUXUM! HÚÐIN MÍN!!! ÓVERNDAÐA HÚÐIN MÍN!!!

Ojjjj djöfull, ég haaaaaaaaaaaaaaaaaaaaata pöddur! Get þær ekki a.m.k. bankað áður en þær birtast? Er smá heads-up too much too ask?

*** 4 mínútum síðar ***

Ég er aðeins rólegri núna. Þessi padda er skaðlaus, ekki kakkalakki, einhverskonar hamingjupadda sem færir manni hjólbörur af þvegnum pening, tiramisú, flugmiða, og andlegan stöðugleika. Eða ég vona það.

Skilaboð (13)

Hringur:

haha fékk mig bara til að hlæja enda séð svona sprett á körfuboltavelli hlaupandi undan býflugu hehe

mér finnst 2cm padda ekki lítil

oj

Deili þessu hatri með þér. Þegar ég var í Tokyo lenti ég sem betur fer bara í einu "encounter" við kakkalakka á heimilinu. Fæ góðan hroll þegar ég bara hugsa um þetta dýr en hann var alveg risastór í minningunni.

Hringur: he he, já, ég veit, og ég skrækti líka einsog hrætt stúlkubarn. Oftar en einusinni. :)

Bob:

Þú verður að láta pöddulíkið dingla í tvinnaspotta undir sófanum, öðrum til varnaðar.

Katrín: kannski var'ún 1,3cm. 1.5, tops! Hún var mjó, og ég veit að hún er saklaus, er einhver svona löng padda með *hrollur* fálmara og margar litlar lappir. Svona margfætlutýpa sem---og hlustaðu nú---borðar allar grimmu pöddurnar. Borðar líka innbrotsþjófa og nauðgara sem klöngrast innum glugga.

Árni: þetta var (dýrð sé Gvuðum) ekki kakkalakki, en f*kk hvað ég hata kakkalakka! Þeir eru hræðilega viðbjóðslegir. Litlar krönsjí döðlur, hlaupandi á sínum háu leggjum, með lööööng loftnet dinglandi.

Og þeir eru eitthvað svo devious og grimmir og ljótir og lævísír og viðurstyggilega snöggir.

Ég hef einmitt bara séð einn þannig í þessari íbúð, ég veiddi hann af eyranu þínu þegar þú gistir hér.

Nei, djók, ég sá hann rölta frá glugganum í eldhúsinu, og VEIT að ég var með pöddu- og nauðgaranetið uppi, það var ástæða þess að hann slapp inn. Og þetta var eini kakkalakkinn. Og hann lét lífið, samstundis.

Samhryggist þér samt með lífsreynsluna. Fjakk!

Bob: kakkalakkalíkið lenti einmitt í gapastokki. Hef ekki séð kakkalakka síðan þá.

Á einhvern undarlegan hátt er ég að hugsa um, og langa í, lakkrís.

Kakkalakkrís. Kakkalakkskór. Kakkalakkakrakkalakkrís!

Og krakkalakki sem svífst einskis.

Linda:

Eins og þessar tvær pííííínulitlu pöddur sem að sáust á meðan ég var þarna (í vaskinum og skápnum) þær voru fljótar að deyja. Greyin.

Haha. Halli píkuskrækir :)

minnir mig á kakkalakkann sem var á stærð við hnefann á mér (næstumþví) og birtist á hreina hvíta baðherbergisgólfinu mínu um miðja nótt þegar ég var á brókinni á leiðinni í rúmið. eg drekkti honum í klór-hreinsi-spreyi en að tók u.þ.b. hálftíma og hann var orðinn upplitaður í könntunum eftir korter en var samt ennþá að spretta í áttina að berum fótunum mínum. *hrollur*

heh eða þegar kakkalakkinn var að labba á sigurjóni

ÓGEÐ!!

gaman:D

ég mun aldrei jafna mig.

Kakkalakkinn er líka ennþá í sjokki!

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 31. mars 2008, kl: 03:43.

Fyrri færslan er Cursorlover.

Næsta færsla er Halli í fréttunum.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31