« Fólk fátæka mannsins | Aðalsíða | Símaleyfar »

Vókóder í Ableton Live

Ég nota Ableton Live, og fann fínan ókeypis VST sem er með bæði talkbox og vocoder, og virkar fínt. Afþví að það er pínu maus að tengja og nota suma vókódera (einsog þennan, og sérstaklega þann innbyggða í Reason), þá eru hér imba-prúf leiðbeiningar hvernig á að nota þennan (og aðra svipaða) vókóder í Ableton Live, og á mjög líklega við um önnur VST-vinaleg forrit.


- Farðu í Arrangement View í Live (ýttu á TAB)

- Vókóderinn þarf þrjár rásir, Modulator, Carrier, og Vocoder:

1. Settu inn nýja AUDIO-rás og skírðu hana Modulator. Þetta er röddin eða söngurinn.

2. Settu inn nýja rás og skírðu hana Carrier. Þetta er hljóðfærið sem gefur röddinni tón. Þú getur notað audio-fæl eða innbyggðan syntha, en mundu að ef þessi rás er tóm heyrist ekkert í vókódernum. Best er að nota sagtönn eða eitthvað harkalegt, en fiktaðu þig áfram með hljóma og allskonar.

3. Settu inn nýja MIDI-rás og dragðu Vocoder eða Talkbox pluginið úr VST listanum vinstra megin yfir á rásina.


Stillingar:
Vókóderinn vill heyra röddina með vinstra eyra, og synthann með hægra eyra, því þarftu að pana báðar rásirnar:
- Modulator (rás 1) = panaðu alveg til vinstri
- Carrier (rás 2) = panaðu alveg til hægri

Farðu svo í OUTPUT á báðum þessum rásum, og veldu Vocoder. Þannig sendir þú hljóðið af báðum rásunum inná vókóderinn.

Ableton - vocoder - Carrier


Til að opna eyru Vocoder stillir þú hann á á IN
(ekki AUTO eða OFF)

Ableton - Vocoder


Fiktaðu svo í Modulator og Vocoder rásunum með effectum og filterum og skapaðu fallega snilld.

Hér er vefsíðan með VSTinum:
http://mda.smartelectronix.com/effects.htm

Ég bjó hvorki VSTinn eða vefsíðuna til, og ber aungva ábyrgð á virkni. Ef þú kannt ekki að installa (eða nota) VST, þá er hjálp í forritinu þínu. Ef þú veist ekkert hvað ég er að tala um, þá þýðir það ekki að við getum ekki verið vinir...

***viðbót: gaur á Ableton-foruminum bjó til Vocoder algjörlega inní Ableton Live. Magnað. Hér er linkur.

Skilaboð (2)

Hah. Ég er búinn að vera með þessa græju í soldinn tíma. Var mikið búinn að reyna að finna út hvernig þetta virkaði, gafst svo upp. Takk!

During the markup to Edifice Fixedness 2267, the bill proposing online gambling ordinance, foe Spencer Bachus often referred to an article in the Orlando Guard as heralding the incipient dangers of Internet gaming. Bachus said the paper bemoaned the induce Internet cafes posed to children, and argued this meant accepting online casinos means subjecting kids to risk.

Bachus repeated the citation a number of times during the indubitably of the discussion nigh the House Pecuniary Services Cabinet, as if he had discovered a hard pip of fact gaming proponents could not refute nor digest. But the Alabama Republican had either accidentally or deliberately muddied the dampen with misleading information.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 18. febrúar 2008, kl: 14:16.

Fyrri færslan er Fólk fátæka mannsins.

Næsta færsla er Símaleyfar.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31