« Evolution of Car Logos | Aðalsíða | Himnastara »

Tæklingur


Varað horfa á COPS (ég veit, ég veit, ég horfi samt alltaf) og sá unglega löggu reyna að díla við massaða og þunga (og sterka) mexíkóska konu sem var með kjaft, stæla, og auk þess glæpamaður á flótta.

Hún var bæði með mikinn kjaft og mikla stæla, og vildi ekki láta halda sér og sagði eitthvað ljótt við arm laganna...og alltíeinu bara *klomps* -- hún fékk tæklingu -- og ég hló upphátt. Svo var restin ekkert ófyndin heldur:

Lögga - gefst'upp?
Stúlka - NAU! Slepptömér!
Lögga - gefssst'uuuup??!!? Hættussu!!!
Stúlka - URG! Naauuuu, slepptöööméééér manniiiii!!!
Lögga (í talstöð) - einnfimmeinn sjö átján, níu tveir fimm

Og þau tæklast fram og tilbaka þar til önnur lögga mætir í tækligallanum, og stúlkan endar kófsveitt og þvoglumælt afturí löggubíl og biður um tissjú.

Tíhí, svo fyndið.

Skilaboð (3)

:)

Já, neihhh en þúrt alltaf svo fyndinn!!!! Ég er ekkert smá hamingjusöm með að þú sért byrjaður aftur að blogga, belik færslan um bleika gólfsettið var orðin svolítið oflesin af mér verð ég að segja :)

Kv frá Krumms í Alabama

Takk Krummi!

Já, þetta belika var orðið dáldið gamalt. Lofa að hafa eitthvað skemmtilegra næst þegar ég ætla ekki að skrifa neitt í margar vikur. :)

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 19. febrúar 2008, kl: 13:26.

Fyrri færslan er Evolution of Car Logos.

Næsta færsla er Himnastara.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31