« Vókóder í Ableton Live | Aðalsíða | Evolution of Car Logos »

Símaleyfar

Síminn minn bilaði um daginn, og ég fór með'ann í viðgerð rétt áður en ég kom hingað út. Ég kaufft'ann 1. september og var mega-þrjóskur að halda áfram að not'ann með bilaða og þrollalega takka því ég vildi ekki eiga nýja græju sem er ný og viðgerð græja. Vil nýjar og virkandi græjur, annars gleyma því að ég hafi nokkurntímann átt viðkomandi græju. Hvaða græju? Nákvæmlega.

Eða, hann bilaði ekkert "um daginn", einsog það hafi gerst fyrir 9 dögum. Hann er búinn að vera asnalegur lengi, en ég varað vona að hann myndi lagast. Það eitt að skrifa sms var orðið eitt það erfiðasta tilfinningalega sem ég hef gengið í gegnum síðustu árin. Án gríns. Ég bugaðist í baráttunni við Farsímafjandann.

Síminn - Hvah, ertað reynað gera bókstafinn K?
Ég - Já, hafði hugsað mér það.
Síminn - Ókei, ýttu átta sinnum á rétta takkann án þess að nokkuð gerist, en svo koma nokkur J í röð -- og bara J.
Ég - Ehh...
Síminn - Viltu gera punkt? Sorrý, takkinn virkar ekki. Nei, afsakið, en þú getur bara fengið M og N. O-ið vill ekki neitt.

Ef ég skrifaði orðið "ekki", gerðist það einhvernveginn svona:
d (eyða því), d (eyða því), ýta á takka, ýta á takka, loka augunum og ýta ýta ýta, ed (eyða því), e (jöss!), j (nei!), j, j, jk (jöss, eyða j-unum), kominn með e-k, k (jöss!), g (eyða), g (eyða), h (eyða), h (eyða), ýta á takka, ýta á takka, ýta á takka, ekkert. Hætta við sms, og anda djúpt.

Síminn - Ringalinga.
Ég ýti á græna svari-takkann. Ýti aftur. Og aftur. Vúbbs, speaker. Vúbbs, í bið. Ýti á úr-bið. Nei, úbbs, búnað skella á.

Síminn - bíbbiríbbíbb, þú átt sms.
Ég ýti á "sýna". Ýti á "sýna". Ýti á "sýna". Gefst upp, sting símanum í vasann.

Þegar ég vildi svo sýna fólki mega-bilaða símann sá fólk auðvitað ekkert nema æðislegan síma sem virkaði. Um leið og fólk sneri hausnum eða blikkaði augunum fékk ég hatursfulla hrákaslummu frá olíusvartri sálu símans.



Ókei, gera við hann Halli, gera við hann. Ég óð bílastæðisslabb inní Elko en úllíngurinn sagði að ég þyrfti kvittun. "Ég kaufft'ann í Leifsstöð", sagði ég, og fékk romsu um að þetta væri ekki sama fyrirtækið, blah-dí-blah. Ég skil þetta reyndar aldrei, var ekki eitthvað svipað vesen með 66gráðurnorður og greyið konu sem fékk flíspeysu? Hvernig geta þessi fyrirtæki ekki verið sama fyrirtækið?

Enníveis, Leifsstöð ímeilaði mér kvittun (reyndar ekki minni kvittun, en Gvuð lítur framhjá svoleiðis þegar markmiðið er réttlæti), ég fór svo uppí Hátækni sem var alveg sama um einhverja kvittun, þeir bara flettu mér upp í mulningsvélinni. Elko, sem seldi mér símann, vildu kvittun ellegar væri ég týndur útigangsviðskiptamaður. Hátækni, sem ætlaði að gera við símann minn gratís (fyrir Elko, btw), gerði bara kliggs og *bomms*, hann var kominn í viðgerð, og ÉG fékk kvittun.

Tilað fá lánssíma fór ég aftur niðrí Elko, þar sem sami úllíngur fór bakvið og sótti síma.

Síma, sem var troðfullur af allskonar persónulegum smáskilaboðum, og meiraðsegja farsímamyndum af viðkomandi sendurum, og mömmum þeirra.

Fyrrum eigendur eða notendur, sem allir eru á táningsaldri, eru ekkert að skafa af hlutunum þegar kemur að kennurum, frjálsum íþróttum, Kringlu- og Smáralindarferðum, stundaskrám, hundum, körfubolta, göngutúrum, kynlífi og náttúruleysi.



Ég mun nota dulnefni tilað vernda það litla sem eftir tindrar af einkalífi viðkomandi úllínga, sem allir virðast vera dreyfarar, en hér eru nokkrar litlar sögur úr símanum, endurbyggðar eftir endurteknar heimsóknir í inbox og sent items:

S. - Kondu og setu í glugann minn hvenar kemstu :Þ
E. - Veit ekki er komin í strætóið

S. - Hvernig er bekkurinn? :Þ
E. - fínn en þinn takk fyirr að kinna mér fyrir möggu hún er gevigt fín!! :Þ
S. - já

Mamma - hvernig gekk
M. - bara agaetlega. islandsmeistari i spjoti og kulu. fae ad vita hitt seinna :P
Mamma - til hamingju eg er svo stolt af ter
M. - takk hvenar kemuru ad nai mig ??

Og svo það fallegasta, hjartnæmasta, og mest lýsandi yfir stöðuna í hjartarótum úllínga samtímans:

S. - eg er grod hvad aetlaru ad gera i thvi
M. - veit ekki
S. - hvad er med thig eigilega langar thig aldrey i kinlif, ertu natturulaus ??
M. - ok
S. - hvad er ad ther, thu ert svo skritinn
M. - ok
S. - hefuru ekkert ad segja ??
M. - ok
S. - findu eitthvad annad ad segja!
M. - ok, sorri

Svo komust strákarnir ekki í körfu, einn vildi tékka hvort Lindargata væri ekki örugglega í RVK, margir spurðu hvort þeir gætu fengið far hingað og þangað (og þaðan), mömmur spurðu frétta og fengu fáorðuð svör, og ótal margar ferðir voru planaðar í Kringluna og Smáralind, kaupmönnum og símafyrirtækjum til góða.

Ein mamman, mamma þeirra stúlku er vér köllum S., birtist á fínni mynd með dóttur sinni, sem er, að ég held, sú sem vann í spjóti og kúlu. Stúlkan sú birtist líka á tveimur myndum þar sem hún liggur uppí rúmi, fyrst með hvolpsgrey í fanginu, svo með stút á vörum og skuplu, pasmínu, trefil, klút, eða slæðu í krumpi yfir bringunni og smá yfir öxlina.

Og svo er lítið 3. kynslóðar-vídjó af henni að geifla munninn í engum takti við eitthvað móðins alþjóðlegt popplag.

Frúin í Hátækni brosti þegar ég sagði henni frá þessu, og svaraði að í dag hreinsuðu þau alla lánssíma um leið og þær kæmu í hús. Þau hefðu nefnilega oft heyrt af lánssímafólki sem þurftu að svara spurningum ringlaðs maka sem furðaði sig á skilaboðum einsog "Hvar ertu, vil hitta þig NÚNA!!" og öðrum þessháttar en mögulega aðeins dónalegri (og harkalegri) skilaboðum.

Allt er þetta svo óttalega íslenskt og fallegt.

Og ég? Ríkari maður eftir þessa reynslu.

Skilaboð (3)

Maggi mús:

hlæhlæ, "íslandsmeistari í spjóti & kúlu"

Þetta er frábær setning. Og ég skal veðja að sami gaur (af því að það er gaur ekki þessi pía á myndinni) er freðýsan sem er náttúrulaus.

spurning : Ertu náttúrulaus ?

Svar : Ok !

Haha, ég veit það. Þetta var stórkostleg skemmtun að lesa allt þetta bullerí, og að fá svona bara upp í hendurnar!

Mæli með því að þú bilir símann þinn og fáir lánssíma hjá Elko í Skeifunni. Biddu um einhvern annan síma en þennan gráa úr samloku, þá færðu kannski eitthvað nýtt og grafískt.

Jói:

Ég hafði ekki einu sinni orðið náttúrulaus í mínum orðaforða. Þroska landans fleygir fram. Mjög góð færsla.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 18. febrúar 2008, kl: 15:04.

Fyrri færslan er Vókóder í Ableton Live.

Næsta færsla er Evolution of Car Logos.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31