« Himnastara | Aðalsíða | Star Wars according to a 3 year old. »

Piffuferð

Á leiðinni á staðinn heyrði ég samtal pizzagauranna frá gangstéttinni og það kom mér á óvart að sjá bara tvo gaura -- miðað við lætin bjóst ég við í kringum fimmtán. Háværasti pizzagaurinn blikkaði mig á meðan hann kláraði setninguna, og í einni handarhreyfingu þaggaði hann niðrí félaganum og sprautaði sápuklístri í lófann.

Ég benti á miðann á veggnum og bað um eina svoleiðis.

Hann þurrkaði sér í útþurrkaða svuntuna, klóraði sér í útklórað eyrað, og pikkaði með vísífingrum á hveitihúðað og útpikkað takkaborðið, sem var líka með allskonar mislitum mylsnum og mulningi, hvítum, gulum, brúnum, og nokkrum grænum kögglum sem ég sagði sjálfum mér að væru bara brakandi ferskt, nýskorið og ilmandi grænmeti.

"Uh, nei, fyrirgefðu," sagði ég. "Hún kostar $9.99, ekki $14.99."

"Ó" sagði pizzagaurinn og breytti verðinu.

"Uh, nei, fyrirgefðu, hún á að vera stór. Sjáðu hér," sagði ég og benti á miðann á veggnum, og miðann á borðinu, og plakatið, og bæklinginn.

"Ah" sagði pizzagaurinn og breytti stærðinni.

Á meðan ég beið hlustaði ég á áframhaldandi rökræðurnar, og tók eftir að tveir aðrir pizzagaurar með derhúfur undir hjólahjálmunum geispuðu og tóku ekki þátt. Ég náði ekki alveg hvað þeir voru að tala um, en mér heyrðist það snúast um rigningu.

Á leiðinni heim spígsporaði ég framhjá og yfir polla, og gaf heimilislausa gaurnum 29 cent. Einusinni gaf ég honum mat og drykk í delíinu á horninu, en það tók svo langan tíma að ströggla við hann um að hann yrði að fá "mat og drykk" í stað peninga, að ég ákvað að gera þetta ekki aftur. Þá var hann með kaffivél í poka sem hann vildi ólmur selja mér og ég ólmur ekki kaupa, og romsaði um fjölskylduna sem var (fyrst) veik eiginkona, svo veik eiginkona og tvö veik börn, og svo *púff* bara tvö veik börn því mamman var að vinna svo seint.

Ég gef stundum klink, en vil frekar gefa beyglu eða epli eða ávaxtasafa, en það er erfiðara en að segja það, þar sem betlandi götuferðalangar hafa fæstir áhuga á öðru en að safna í áfengissarpinn -- og ég vil ekki taka þátt í því. Kannski las gamli tannlausi klinksafnarinn hugsanir mínar, því þegar ég gekk yfir götuna heyrði ég marrið í strigaskónum hans sem spígsporuðu nokkrum metrum á eftir mér. Ég var ekki smeykur um eigin heilbrigði, enda bæði yngri og hraustari og með tveggja lítra kókflösku dinglandi í plastpoka sem vökvafyllt barefli, en þetta er skítugur, skrýtinn maður sem ég vil helst ekki koma of nálægt, þannig að til heiðurs nýbökuðum pizzum og köldum svaladrykkjum jók ég hraðann og dreif mig inn.

Ég horfði á 30 Rock, tuggði fyrsta bitann og velti því fyrir mér afhverju pizzagaurinn gleymdi öllu álegginu. 30 Rock er æði; pizzagaurinn ekkert svo.

Skilaboð (3)

mm piffa!

Ha? Pißa?

Yeaouw!

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 27. febrúar 2008, kl: 01:21.

Fyrri færslan er Himnastara.

Næsta færsla er Star Wars according to a 3 year old..

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31