« Tæklingur | Aðalsíða | Piffuferð »

Himnastara

Grandalausa mér fannst allt þetta himnaglápandi fólk pínu skrýtið, sérstaklega þeir sem voru kósý í framan, standandi á miðri gangstétt að segja úú og aa. Engin brennandi loftför, aungvar hrapandi geimflaugar, engin flugvél með sprell á borða...ég sá bara ský og tungl og nokkrar stjörnur. Og stundum trjágreinar að svíngast fyrir.

Það var meiraðsegja gömul kona að horfa uppí himininn með sælubros. Gömul kona, sem ég reikna með að hafi séð himinn/tungl/stjörnur/ský og trjágreinar nokkur þúsund sinnum. Og einhver með henni að taka myndir með símanum sínum! Af himninum, um nótt! Skrýtnu skrýtnu túristar.

Og það var kalt þannig að ég var ekki að fatta þetta, og mumlaði fullt þegar ég labbaði á milli þeirra.

Svo kíkti ég betur, og sá loksins tunglmyrkvann. Hann var ýkt fínn og ég sagði úú og aa og reyndi að taka mynd með símanum mínum.

Skilaboð (3)

Ég sá líka tunglmyrkvann sem var ekki almennilega tunglmyrkvi, heldur frekar bara svona tunglskuggi... Ótrúlega flott, og ég stóð bara og glápti og fannst eins og ég væri að horfa á mars, en ekki tunglið...

Jói:

Það sagði mér enginn frá þessum tunglmyrkva. Hvorki mbl.is né visir.is.

Ragnhildur:

Byrjunin hljómar svoldið eins og atriði úr bók eftir Ole Lund Kirkegaard. Himnastara með engan tilgang :)

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 21. febrúar 2008, kl: 01:36.

Fyrri færslan er Tæklingur.

Næsta færsla er Piffuferð.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31