« Dýramúsík í hjarta mínu | Aðalsíða | Vókóder í Ableton Live »

Fólk fátæka mannsins

There Will Be Blood í gærkvöldi með Sigurjóni og Teo, eftir að við borðuðum brakandi gott kjesadíjas sem enginn okkar gat klárað. Fjóah! Allt er brjálað, ég laug! Sigurjón kláraði sinn skammt! Þetta var annað skiptið sem ég mætti á staðinn í gær og mér leið dáldið einsog fíkli, en skömmin hvarf við fyrsta kyngj.

Myndin var löng og góð, og ótrúlega fínt hvað það eru margar góðar myndir sem komu í ár. Þessi, og No Country for Old Men og Michael Clayton eru allar frábærar.

Mér fannst tónlistarnotkunin í myndinni dáldið merkileg á frábæran hátt, en ég þarf að útskýra hvernig, og ætla að nota útlensk orð. Ég meina ekki að það hafi verið spiluð ákveðin lög sem mér finnst góð. Tónlist hefur auðvitað mikil (eða algjör) áhrif á hvernig fólk upplifir og á að upplifa atriði, en er svo oft notuð á heimskulegan, fyrirsjáanlegan og engu-við-bætandi hátt: er einhver að grenja? Spilum fiðlur. Er kappakstur í miðri Las Vegas? Hringjum í Quarashi. Þú veist hvernig þetta virkar, en þetta er ekki það sem ég á við: í myndinni í gær var bara beisik og mjög flott "kvikmyndatónlist" (instrúmental) en leikstjórinn kontrastaði atriðin svo ótrúlega vel með mjög intensívrí músík, sem passaði fullkomlega við (og skapaði mjög sterka stemmningu) en var alls ekki týpíska músíkin.

Fattaru?

Undir frekar rólegum atriðum með Daniel Day-Lewis sötrandi kaffi við hliðina á kaktus orga hálf díabólískir strengir, og fyrstu 20 mínúturnar eða svo segir enginn orð. Og ég bara starði og leið örugglega akkúrat einsog leikstjórinn vildi.

Fullt af slettum og þetta er flókið, en ef þú sérð myndina þá fattaru.



Þegar ég horfði á Daniel Day-Lewis vera frábæran, fór ég að pæla í að hann og Timothy Dalton eru svipaðir í útliti, og komst að því að Timothy Dalton er Daniel Day-Lewis fátæka mannsins. Og þetta er svona með fullt af leikurum.

Kevin Costner er Richard Gere fátæka mannsins, og saman eru þeir George Clooney fátæka mannsins.

Lawrence Fishburne er Samuel L. Jackson fátæka mannsins. Það var kannski öfugt þegar Deep Cover var ný, en í dag er Mr. Fishburne bara hver?

Wesley Snipes er Denzel Washington fátæka mannsins.

Michelle Pfeiffer er Meg Ryan fátæka mannsins.

Hilary Duff er Lindsey Lohan fátæka mannsins.

Carrie Fisher er Diane Keaton fátæka mannsins.

Jude Law er Brad Pitt fátæka mannsins.

Christina Applegate er Cameron Diaz fátæka mannsins.

Chuck Norris og Steven Seagal eru hetjur fátæka mannsins. Og Ryan Reynolds er sonur hans.

(ætlað hugsa og bæti kannski við)

Skilaboð (4)

"við borðuðum brakandi gott kjesadíjas sem enginn okkar gat klárað."

Ég hafna þessari yfirlýsingu.

Annars er allt annað í þessari grein satt og rétt.

Ó, gastu klárað þitt? Mér sýndist þú blauteygður og fölur ropa þínu síðasta. En ókei, ég laga.

Og Halli er Katrín.is fátæka mannsins.

rétt sveinbjörn;)

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 16. febrúar 2008, kl: 11:59.

Fyrri færslan er Dýramúsík í hjarta mínu.

Næsta færsla er Vókóder í Ableton Live.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31