« If you don't jump, you're a gufa | Aðalsíða | Konur og menn »

Mömmupopp og leðursófavídjó

Og svo er ég búinn að vera að pæla í einu af og til síðustu daga:

(A)
Í hinni mjög svo góðu kvikmynd Börn vill einstæða móðirin eiga góða kvöldstund með syni sínum, sem henni finnst einsog hún hafi vanrækt dáldið mínúturnar á undan. Tilað bæta þeirra samband, fá smá kvalitítíma, og kæta drenginn sinn stingur hún uppá "kósíkvöldi", sem hún útskýrir að sé vídjóspóla og heimalagað poppkorn. Meiraðsegja kók!

(B)
Í nýju dagblaðaspennuþáttunum Pressunni vill einstæða móðirin eiga góða kvöldstund með dóttur sinni, sem henni finnst einsog hún hafi vanrækt dáldið mínúturnar á undan. Tilað bæta þeirra samband, fá smá kvalitítíma, og kæta stúlkuna sína stingur hún uppá "kósíkvöldi", sem hún útskýrir að sé vídjóspóla og heimalagað poppkorn. Meiraðsegja kók!

Jæja. Ég er ekki móðir, hvorki gift né einstæð, og veit því ekki alveg hversu algengt (eða vinsælt) þetta er aksjúallí, en er semsagt að spá hvort þetta sé handritshöfundahöfuðklisja?

Er ekki hægt að skrifa einstætt foreldri með hlutina dáldið í fokki (A), eða með metnað sem passar ekki alveg við aðstæðurnar (B) án þess að "kósíkvöld" --og það í nákvæmlega þessari mynd-- sé það eina sem foreldrið gerir "fyrir" börnin sín tilað bæta heimilisástandið?

Eða er þetta einhver speglun af sannleikanum, sem er þá að æðsti draumur allra barna á aldrinum 7-13 (sem líður vel eða illa) er að liggja uppí sófa með kókglas og heimalagað popp að horfa á vídjó með mömmu sinni? Kannski borða pizzu á undan, eða Latabæjarstrigaskó eða hvað sem börn vilja borða í dag.

Ég held nefnilega --og er ekki viss um að það hafi verið mikið pælt í þessum þáttum-- að börnin segi bara jájá við þessu heilunar- og gleðiSpa draumaflóði mæðra sinna einungis vegna vorkunnar og andleysis, þ.e. að þau vilji gera eitthvað allt annað, en vita að þetta sé í rauninni take-it-or-leave-it díll. Gera það sem mamma vill (horfa á Grey's Anatomy?) eða fá meira af því sama.

Ég er ekki búinn að pæla nógu mikið í þessu tilað leigja fullt af myndum með einstæðum mæðrum og hanga á spólitakkanum. Kannski bíður svarið þar. En ég held að mömmurnar (A + B) og handritshöfundarnir mættu sýna aðeins meiri metnað...og ást.

Og já, ég gleymdi að segja að auðvitað klúðruðust bæði kósíkvöldin, og börnin enduðu ein á vergangi, sniffandi lím og borðandi afganga. Ta-da!

Skilaboð (4)

Scweppes:

Skemmtilegt, ég tók einmitt eftir þessu í Börnum og Pressunni, en fyrsta skiptið sem ég varð var við þetta var þegar Óttar Þór (vissulega einstætt foreldri með sambandið við krakkann í fokki) var að reyna að halda sambandinu við KÆRASTANN sinn í lagi í Strákarnir okkar. Það virkaði ekki heldur.

Hefði kannski frekar átt að fara að dæmi einstæðu mæðranna og leigja vídjó með stráknum, og þá meina ég syni sínum...?

Já, hann hefði getað stungið uppá því við son sinn, bara til þess eins að fokka aðeins meira í honum (kósíkvöldið hefði jú klikkað á endanum).

Það var kósí að horfa á bad taste í skálholti.

við eigum þetta lím. löggan hefur ekkert með að taka það af okkur.

Magga Gauja:

Það er best að halda kósíkvöld með semi-unglingunum sínum á föstudögum, þá er alltaf einhver gelgju-klisjumynd á Rúv. Við notum ekki kók hér, heldur ananasdjús í þykkni en heimalagað popp er bara málið. Ef myndin á RÚV er slæm er VODið mjög gott, vidjóleigur eru svooo 2005...
Ég er ekki einstæð- kósíkvöld finnast víðar!
Kv
Magga Gauja, óeinstæð móðir 10 ára gelgju sem eeelskar kósíkvöld.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 22. janúar 2008, kl: 09:45.

Fyrri færslan er If you don't jump, you're a gufa.

Næsta færsla er Konur og menn.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31