Áðan keyrði ég upp að byggingu, og stöðvaði bílinn beint fyrir framan starfsmannaútgang.
Þar sem ég beið í bílnum sá ég konu birtast bakvið glerhurðina. Hún stóð fyrir innan dyrnar, pírði fyrst augun og starði svo beint framan í mig. Mér datt í hug að hún væri að bíða eftir að vera sótt, og væri ekki viss um að ég væri sá sem hún byggist við.
En hún horfði fast á mig, aðeins lengur en eðlilegt væri fyrir einhvern sem er að fara mannavillt, og aðeins of fast.
Ég horfði bara á móti tilað leyfa henni að sjá að ég væri einhver allt annar, en hún horfði áfram. Þvínæst skoðaði hún bílinn fram og tilbaka, og leit aftur framan í mig.
Svo tók hún hálft skref afturábak og setti aðra höndina á hurðarhúninn, og hina þétt upp að glerinu -- hún var að halda hurðinni lokaðri.
Ég lyfti augabrúnum með undrunarsvip, og þá veifaði hún að ég ætti að færa bílinn.
Ég vissi ég mátti bíða, en vissi ekki alveg hvað var í gangi. Hún vildi segja eitthvað við mig.
"Hvað ertu að gera? Ertu að bíða eftir einhverjum?"
- Já.
"Óhh...hjúkket," sagði hún fegin, og labbaði í átt að bílnum sínum sem var við hliðina á mínum. "Ég hélt þú ætlaðir að berja mig."
Skilaboð (7)
ég hélt alveg þú værir að farað tala um hvað reykjandi starfsfólk fyrir utan fyrirtæki er óhuggulegt
en annars skil ég ekki að henni hafi dottið þetta í hug, þú berð það með þér hvað þú ert vinalegur (ekki að grína)
Skrifað 25.01.08 20:37
Hehehehehehehehehehehehehehehehe! Ótrúlega fyndið.
Skrifað 26.01.08 10:21
Greyið konan. Kannski er hún alltaf að lenda í því að vera barin af Höllum(sem er sko Halli í fleirtölu já takk fyrir).
Skrifað 26.01.08 17:52
Þetta var geðveikt skrýtið.
En, venjulegu fólki myndi ALDREI detta í hug að einhver sitjandi í bíl fyrir utan vinnustaðinn þeirra væri þar tilað berja viðkomandi. Ég meina...það er svo ótrúlega random. "Sjitt...einhver í bíl...pooooottþétt kominn tilað berja mig."
Það dettur engum svona í hug nema liði sem er að gera eitthvað fishy bizniz.
Skrifað 26.01.08 18:11
Ég sakna þín, Árni saknar þín. Við erum jafnvel að spá hvort við hefðum ekki bara átt að sleppa því að kynnast þér svo við myndum ekki sakna þín svona mikið. Will Smith lánaði mér gleymskuprik og ég er alvarlega að spá í að nota það á sjálfa mig.
Skrifað 27.01.08 15:50
hahaha...ég er að deyja úr lasni en gleymdi því á meðan ég hló og hló af þessari færslu
Skrifað 27.01.08 20:03
Vá hvað ég skemmti mér yfir lestrinum á þessu! Hló svo ennþá meira yfir kommentunum... :D Gaman fyrir mig..
Skrifað 22.04.08 22:56