Fyrir utan Sirkús síðasta laugardagskvöld kom að okkur ungur maður og fékk að tendra sitt sígarettubál á sígarettuenda eins úr hópnum.
Ég hvíslaði þeirri algengu vizku að þeirri okkar sem lánaði sígarettuna, að hún ætti ekki að vera að þessu því að með uppátæki sínu væri maðurinn jú að stela sálinni úr sígarettunni.
Gaurinn saug lífi í sína sígarettu, reisti svo úr sér og sagðist "allavega vera feginn að vera ekki ég" því ég væri...gufa.
Já já já, hann kallaði mig gufu!
Ég brosti útað eyrum, enda ekki búinn að heyra þetta orð í niðrandi tilgangi síðan, hmm, 1992.
Hann bætti því svo við að ég, og allir í hópnum, værum "búin".
Ég vona að þessi ungi maður nái (A) að vinna úr sínum stórfurðulegu reiðiköstum, og/eða (B) læri nokkur skýrari (og þekktari og útbreiddari og meira móðins) blótsyrði, svo að þeir sem hann stelur sígarettusálum af og ætlar svo að úthúða séu þá a.m.k. með á nótunum og fatti hvenær þeir eru aksjúallí að drukkna í fúkyrðaflaumi.
Og, þúveist, gaur, ég er kannski mist, meiraðsegja kannski dalalæða, en ég er sko alls engin helvítis gufa!!!

Danskeppnin okkar inná Sirkús var mjög skemmtileg, a.m.k. fyrir okkur sem dönsuðum, en kannski minna fyrir plötusnúðinn.
Það eru engar reglur, en hinsvegar fullt af einföldum og fjölbreyttum uppástungum.
Við prófuðum að:
- dansa af gríðarlegri innlifun án þess að hreyfa lappir
- hreyfa bara lappir
- hreyfa bara hægri hluta líkamans
- hreyfa bara vinstri hluta líkamans
- dansa bara með augunum
- ýta á hausinn á næsta manni
en mér fannst lang skemmtilegast að dansa algjörlega úr takti, og klappa mjög hátt með.
Skilaboð (6)
hahaha, fyndin gaur fyrir utan sirkús.Ég er áhugamaður um úrelt níð. Og líka áhugadansari. Þú hefðir átt að svara honum í nettum tíðaranda svörung : "vertu úti".
Skrifað 22.01.08 09:37
Já, sjitt hvað þetta var gaman.
Skrifað 22.01.08 11:49
Dalalæða!
Ég myndi grenja úr hlátri ef einhver myndi kalla mig það.
Skrifað 22.01.08 19:52
vá! ég er nokkuð viss um að ég var á föstu með þessum töffara þegar ég var 15 ára.
langar rosa í svona danskeppni, er sérstaklega lagin við það að dansa úr takt en hefði varla nennt því nema einhvern giftur 2 barna faðir hefði verið að horfa á...
Skrifað 23.01.08 13:00
hahahaha gufa... ógeðslega fyndið orð að nota í dag, hann er svona old school blótari
Skrifað 23.01.08 15:43
mátti ekki dansa breezy?
Skrifað 25.01.08 00:50