
Ég vil óska aðila þeim er stal gráa Helly Hansen jakkanum mínum (með grænu vettlingunum mínum í vösunum) af Kaffibarnum laugardagskvöldið 29. desember velfarnaðar og gleðilegs nýs árs og hamingju 2008, og vona ég innilega að jakkaklæddur þjófurinn fuðri upp í sjálfbæru og skyndilegu ofurbáli (e. spontaneous human combustion), helst umvafinn ástkærum vinum, vandamönnum, ungum frændum og frænkum, og eldfimum borðdúkum, gardínum, þakefnum, veggfóðri og, þúveist, öllu hinu þýfinu sem hann eða hún er búinn að sanka að sér í gegnum tíðina.
Skamm!
Skilaboð (23)
Ojjjjj!! Hata steliþjófa. Sammála - megi logar vítis brenna þetta hyski upp til agna. Ég má segja svona ljótt af því ég get aldrei átt neitt lengi, öllu stolið.
Má samt hlæja að myndinni? Hahaha. Búin. Gat ekki beðið eftir samþykki. Þetta er bara vandræðalega fyndin mynd.
Já og gleðilegt ár!
Skrifað 07.01.08 21:56
Má ég náðarsamlegast bæta lurkum á hatursbrennuna? Svona gerir bara skítapakk. Láttu úlpuna bara endurholdgast í þína eigu sem fyrst.
Gleðilegt ár. Þekkirðu Stars Of The Lid? Plata ársins 2007 er með þessum gaurum!
Skrifað 07.01.08 22:07
Fimmta boðorðið á ekki við þegar menn stela Helly Hansen jökkum.
Skrifað 08.01.08 00:02
Einu sinni stálu einhver apafóstur mjög fínni jakkapeysu af mér. Ég var stödd í partýi í heimahúsum. Einhvernveginn finnst mér það algerlega síðasta sort að stela fötum af fólki. Það er svona miðaldahegðun. Svo innilega mikill óþarfi og svo innilega fáránlegt. Þessi aðili sem stal þínum jakka er að ná sér í slæmt karma. Heimurinn má sjá til þess. Það er alltaf þannig.
Mér skilst að þessi sem stal jakkapeysunni minni hafi dáið þegar grýlukerti féll af þakskeggi og klauf viðkomandi ofan í herðar þannig að lungun og hjartað slettust út. Mjög ógeðslegt. En þú veist... átti það skilið... (moðer fokker).
Skrifað 08.01.08 10:53
Ég sver það, ég er með endurnýjaða trú á mannkyninu eftir að hafa (endur)fattað að vinir mínir eru ekki fataþjófar, og hata þannig jafn mikið og ég.
Við hittumst við endimörk alheimsins og spörkum þessu skaðbrunna og grýlukertisklofna pakki fram af brúninni.
Ást að eilífu!
Skrifað 08.01.08 11:31
Ég á fína skíðaúlpu frá því ég var 13 ára(ca. 88' árgerð) inn í bílskúr hjá mér. Þú mátt eiga hana elsku Halli. Hún er einmitt svo trendí núna alveg NY trendí.
Skrifað 08.01.08 18:30
einu sinni var öllu málningardótinu mínu stolið í baðhúsinu.. hver vill nota annarra manna málningardót? OJ!
aumingja þú
ég myndi samt frekar fara að versla með hiro tha jap heldur en að fá gömlu úlpuna hans njarðar..
Skrifað 09.01.08 15:57
ps fínu skónum hans hansa míns var stolið fyrir utan hurðina heima þannig hann vill ábyggilega syrgja með þér... jafnvel fleyta kertum
Skrifað 09.01.08 15:58
Fokkíngs fataþjófar.
Skrifað 09.01.08 16:56
Einu sinni kom gáfaður fataþjóður og stal af mér Stussy-úlpunni minni. Hinn vitri vissi ekki að hún ein sinnar tegundar á landinu (þá, breytist fljótt). Hin vel gefni gekk inná Spilatorg í úlpunni og ég held að hann hafi verið barinn fyrir utan en rifinn úr úlpunni fyrst svo hún myndi ekki blóðgast, er oft erfitt að ná blóði úr fötum.
Karma Halli, karma!
Gleðilegt ár!
kv
MGM
Skrifað 10.01.08 00:00
Möggu Stüssy sagan er skemmtileg, og mér finnst fallegt að þú talar um þjófinn sem hinn vitra og vel gefna.
Annars treysti ég einmitt á karmað. Helst sjálffuðrandi og bakflæðis-karma, en ég er opinn fyrir öllum uppástungum almættisins.
Skrifað 10.01.08 03:02
Fata og skóþjófar eiga að vera réttdræpir!!! skónum mínum var einu sinni stolið í partýi og ég þurfti að fara heim á sokkunum....vona að þeir sem að skemmta sér við að klæðast stolnum fatnaði kafni á hafragrautnum 1 morguninn....p.s. nafnið á tannkreminu fræga? kláraði það og henti túbunni..ætla að láta shoppa meira þannig handa mér í útlandinu..mí luv it.
Skrifað 10.01.08 15:11
Já maður, að stela einu Stussyúlpunni á Íslandi og mæta svo í henni á Spilatorg...þú hlýtur að vera snillingur!!
Annars er úlpan í dag í Svíþjóð, skildi hana þar eftir hjá kærri vinkonu svo ég myndi hætta ganga í henni...hefði ég ekki gert þetta þá væri ég ennþá í henni.
Kv
Magga Gauja
Skrifað 11.01.08 17:07
Ég er til í kertafleytingu einhverntímann í lok janúar. Kerti gegn fataþjófum.
Halldóra:
Foj! Skóþjófar...þeir eru skrýýýtnir.
Tannkremið heitir Therabreath.
Magga Gauja:
Fín úlpa til að vera alltaf í, held ég, spurning um að þú sækir flíkina og mætir fín í kertafleytinguna?
Niðrí geymslu á ég Stüssy World Domination jakka, svona háskólajakka, með riiiiisastóru 16" bróderuðu lógói á bakinu. Ég mæti í honum.
Skrifað 11.01.08 18:58
Halló !!! þá vil ég sjá b...... gallabuxur, J.P.Gaultier skó og Giants húfu takk fyrir :-)
Skrifað 11.01.08 19:13
Ég finn Raiders húfuna mína og mæti galvösk en með sorg í hjarta.
Kv
Magga Gauja
Skrifað 12.01.08 09:41
ojj anDskotans pakk, SKÍTAPAKK....
Ég og my posse lentum líka í svona pakki í haust, komu inn í forstofuna mína og stálu fullt af skóm, konu, kalla og barna!!! sakna mest adidasskónna minna sem óli T gaf mér þegar ég var 17 ára..... þeir voru classik... og alveg eins og nýjir.... ég kem líka brjáluð í fleytingu...PAKK!
Skrifað 12.01.08 20:56
úff það hefur svo mörgum húfum verið stolið frá mér (eða ég gleymt hvar ég lagði þær frá mér) þoli ekki svona.
shit hvað ég væri til í að sjá halla í þessu fatnaði sem hringur taldi upp, það væri bara fyndið, ég mæti með myndavél og kerti.
Skrifað 13.01.08 14:41
Hringur og Óli: ókei, ég skal mæta í þessu öllu. Hvað sem er tilað berjast við fataþjófa.
Þið finnið þá eitthvað af Dosse Posse fyrir ykkur sjálfa.
Harpa: þetta lið er með lifrarbólgu og sundfit í dag, treystu mér.
Skrifað 14.01.08 10:07
Ég vill meina að það sé litháenskt þjófagengi sem gangi um rænandi og ruplandi allar helgar, og græði á tá og fingri, því í fötum eru veski og lyklar og allskonar. Af mér hefur verið stolið meiru en ég get munað.
Skrifað 15.01.08 10:00
hey sko ég á ennþá stussy king size buxur sem eru svona 43 númerum of stórar á mig, ég skal vel mæta í þeim ef þú mætir í þínum
Skrifað 16.01.08 18:45
Jói: eða kannski bara íslenskt þjófagengi?
Óli: ég mæti þá í Fresh Jive Big Mama Pants utanyfir allt hitt.
Djöfull er ég til í þetta.
Skrifað 16.01.08 19:02
Ég man eftir manni sem byrjaði aðeins að pæla í sjálfum sér. Byrjaði smátt en síðan pældi hann meira og meira. Á tiltölulega stuttum tíma var hann orðinn að einum allsherjar nýaldargraut. Á þessu ferðalagi stóð hann einu sinni sem oftar á krossgötum og þurfti að gera hreint fyrir sínum dyrum. Það varð til þess að hann labbaði niðurlútur inn í Skátabúðina (sem var eitt sinn við Snorrabraut) og rétti starfsmanni útihátíða-lúinn og fúlan svefnpoka með orðunum: „gjörðu svo vel- ég stal þessum svefnpoka hérna fyrir fimmtán árum síðan“...og labbaði svo örlítið uppréttari út. Lengi skal nefnilega manninn reyna. Kannski kemur einhver grátklökkur maður (eða kona) sem er þá að reyna að bæta sig og skilar þér jakkanum eftir einhverja áratugi. Kannski var hún að gúggla og rakst á þessa færslu. En frekar en að reiðast taktu þá bara vel á móti honum.
Ástarkveðja. S
Skrifað 19.01.08 02:24