Varað gúgla myndir af rúgbrauði, og lenti á einhverju bloggi sem var með þessari setningu:
"keypti bleikt gólfsett, bleikar kúlur, belik tí, bæeikan gólfhanska og bleyka derhúfu til að lúkka vel á vellinum"
Ókei, förum yfir útgáfurnar af orðinu bleikur:
- bleikt
- bleikar
- belik
- bæeikan
- bleyka
Og sástu "gólfsett" og "gólfhanska"? Allt í einni setningu!
Skilaboð (16)
Mjög gott.
Þú ert samt örugglega sá eini sem hefur gúglað myndir af rúgbrauði.
Skrifað 30.01.08 11:38
He he.
Skrifað 30.01.08 11:49
fannstu rúgbrauð með gardínum?:)
Skrifað 30.01.08 12:52
"Belik Tí" hljómar einsog jazztónlistarmaður frá Ghana.
Skrifað 30.01.08 13:42
haha, fyndið. Við hverju á maður svosem að búast af manneskju sem verslar aðeins bleika hluti! Mig langar ekkert smá á gólfvöllin til að fylgast með. Ég mæti í öllu lillabláu.
Skrifað 30.01.08 23:04
netið er allt fullt af nögtum bleikum mönnum
annars voru akrar bleikir hér í den
Skrifað 31.01.08 01:27
"Til að lúkka vel á vellinum". Ég hlæ. Allt bleikt lúkkar kannski vel á nýfæddu stúlkubarni, en ekki á golfvelli í mínum huga. Fylgdu engar myndir með ferðinni á golfvöllinn? Þær væri gaman að sjá.
Skrifað 31.01.08 05:42
það er út af fólki eins og þér að við sem að minna meigum okkar, þorum ekki að blogga.
Það er ljótt að gera grín að lesblYndum.
Skrifað 31.01.08 06:46
bara að benda ykkur á að ég á bæði bleikan golfpoka og golfjakka og ég lúkka bara MJÖG vel á golfvellinum!
enda verður maður að lúkka þegar maður er ekki að performa
Skrifað 31.01.08 09:20
Sorí Reinnar min, var braa að grýnnast!
Belikt dót er alveg fínt, örugglega líka á gólfvellinum.
Skrifað 31.01.08 10:41
Og ég vildi óska þess að ég hefði séð myndir frá gólfferðinni...
Skrifað 31.01.08 10:45
Unga daman sem skrifaði þessa færslu byrjaði hana reyndar á "How ypu doing!!" þannig að allar líkur eru á einhvers konar lesblindu eða heilablellun.
Les blogg hjá japanskri dömu (skrifað á ensku) sem er með svipað væb, hún stafar sama orðið á fjörtíu mismunandi vegu í sömu bloggfærslunni. Skemmtilegt blogg annars með alls konar infói um það sem er að gerast í Japan.
http://smt.blogs.com/
Skrifað 31.01.08 13:07
Árni, þú ert að misskilja: YPU er skammstöfun fyrir eitthvað stórkostlegt.
Skrifað 31.01.08 13:13
ég var eitt sinn af og til á golfvellinum hjá Korpúlfsstöðum.....allskonar skrýtið fólk sem spilar golf. Fyndnast fannst mér samt að sjá Eyjólf Kristjánsson draga kerru á eftir sér.....svo heyrðist síminn hans hringja...og gettu hvaða hringingu hann var með......
........Nína. (í svona 1.kynslóðar-drasl-útgáfu-8-bita)
Skrifað 05.02.08 15:22
Katrín. Að spila golf/gólf er að performera. Afhverju er fólk annars með þessa sveiflu og í þessum fáránlegu fötum? Með einn hanska og derhúfur og ég veit ekki hvað og hvað.
Að spila golf er að performera. Að googla rúgbrauð er að lifa.
Skrifað 13.02.08 06:13
bloggaðu halli. bloggaðu. hvar ertu?
Skrifað 14.02.08 10:02