« Halli og Marta: "Bjartasta brosið" hjá Hemma Gunn árið 1990 | Aðalsíða | Cosmic rays, a brewski and a babe. Sweet! »

Tungubrjótar og flækjufrussar

Ég, Njörður, Árni og Ómar (og Hildur fullt) hömuðumst í kvöld að flækja tungurnar okkar (í einrúmi) á allskyns orðum og setningum.

Hér er listinn sem við frussuðum, slefuðum og hlógum ýkt mikið yfir. Það á að segja þessi orð eða setningar a.m.k. þrisvar og það almennilega hratt. Ekkert bil á milli orða, heldur hálf garga þau. Ef þú getur þetta fimm sinnum færðu blýmedalíu.

- Frank Zappa í svampfrakka (classic)
- Þríbrotin blýkringla
- Toyboat
- Galdrakarl og karlagarn
- Spastískasta
- Hestafetish (borið fram "hestafettish")
- Verður veður
- Eistnesk eistnakaka

Frá Sigrúnu Ósk:
- Grillið glamraði
- Ljúktu upp lúgunni ljúfurinn
- Hnoðri í norðri verður að veðri þótt síðar verði

Við hvert einasta klúður verður þetta fyndnara og fyndnara.

Tilvalið að prófa með mömmu sinni, ömmu og afa í sveitinni, eða málhöltum frænda þínum.

Kommentaðu ef þú kannt fleiri skemmtileg.

Skilaboð (3)

Vá hvað ég er sorgleg... Klukkan er tólf á miðnætti og ég er að fara nánast ólesin í lokapróf í fyrramálið. Hér sit ég í tilefni af því og kommenta á gamlar bloggfærslur...

Breytir því ekki að ég man nokkra í viðbót:

"Grillið glamraði" (ég get varla sagt þetta einu sinni)

"Ljúktu upp lúgunni ljúfurinn"

"Hnoðri í norðri verður að veðri þótt síðar verði" (náskyldur örfrasanum um veðrið en ég ákvað að smella þessu með ef þið viljið færa ykkur upp á næsta level næst...)

Ehemm...

Kjartan:

Það er nú verra ferðaverðrið á fjallabaksleið nyrðri.

Wow! Thank you! I always wanted to write in my site something like that. Can I take part of your post to my blog?

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 22. ágúst 2007, kl: 02:06.

Fyrri færslan er Halli og Marta: "Bjartasta brosið" hjá Hemma Gunn árið 1990.

Næsta færsla er Cosmic rays, a brewski and a babe. Sweet!.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31