« Heróínið hans Sigurjóns verður heróínið okkar | Aðalsíða | "How Do I Keep All Age Groups Dancing All Night?" »

Nýtt Cheerios - listasýning, og augljóslega morgunmatur landsmanna!

Hey, ykkur er öllum boðið á listaverkasýningu mína sem haldin er í öllum helstu stórmörkuðum og nýlenduvöruverslunum landsins. Aðgangur er ókeypis og listaverkaverðið er aðeins 369 krónur, eða eitthvað þannig. Plús það fylgir glaðningur í pakkanum.

Í vor gerði ég nefnilega skemmtilegt verkefni (sem ég var loksins að fá í hendurnar áðan): Ég teiknaði umbúðirnar á nýja Cheeriosið sem er nýkomið í allar almennilegar verslanir á Íslandi.

Halli Civelek - Cheerios

Konseptið er pínu sniðugt: Cheerios er líka hollt fyrir heilann og sniðugt fyrir hjartað (ekki endilega pumpihjartað heldur líka ástar- og fjelagahjartað) og pælingastöðvar búksins.

Ég fékk helling af setningum frá mörgum frægum (Woody Allen, Steini Steinarri, Marie Curie, Megasi, Aristóteles, og Astrid Lindgren o.fl.) og teiknaði portraitmyndir af öllu því fólki, en aðaldæmið varað myndskreyta setningarnar með karakterum og koma pælingunni til skila. Portraitin eru á hliðinni, ásamt smá-bio um viðkomandi teiknaðann, en bakið er útatað í allskonar köllum frá mér.

Halli Civelek - Cheerios

Mjög gaman.

Inní pakkanum er svo skemmtileyndó tilað föndra og vera fínn.

Tilvalið að rjúka úfinn í baðsloppnum útí bíl og drösla familíunni í stórmarkaðinn eða útá bensínstöð tilað kaupa nokkra pakka, og borða, föndra, líma, og verða ólýsanlega gáfaður og skilningsríkur.

Og ef þú átt ekki börn geturu notað tækifærið og búið nokkur til.

Ég er búinn að bíða með að sýna myndirnar sem ég teiknaði afþví að ég vildi hafa pakkann í höndunum, þessar myndir eru bara smá sýnishorn, það er skemmtilegra að bryðja Cheeriosið úr pakkanum sjálfum.

Halli Civelek - Cheerios

Tré í Jordan skóm. Fyrir mig og fleiri.

Ég sendi þessar myndir í keppni sem Adobe heldur á hverju ári, og heitir Adobe Design Achievement Awards. Ég komst í undanúrslit, og það var fínt fídbakk.

Ég er a.m.k. ánægður.

Skilaboð (21)

Þetta er snilld Halli ... væri gaman að fá að sjá þessa pakka en því miður selja þessir fasista Danir ekki Cheerios, það er víst á bannlista og þegar einhver lumar Cheerios til mín yfir hafið stóra þá er pokinn alltaf tekinn úr kassanum áður en því er troðið ofaní tösku :(

Eriggi hægt að panta þetta á Amazon bara? :P

Þetta er glæsilegt.

Nú máttu bara fara að svara póstunum frá mér ;-)

Snilld Halli litli, gaman að sjá þetta komið á prent!

Kamilla:

HEY VÁ!!! Ég og öll börnin mín munum ekki borða neitt annað: Ótrúlega frábært.

þetta lítur sjúklega vel út á cheerios pakkanum og enn betur út í portfolioi!

til hamingju Civelek!

Bob:

Wáú! Ég í Bónus!

Vá.. þetta er mega flott! Til hamingju!

Svo langar mig líka fáránlega mikið í seríjós eftir að hafa lesið þetta..

Ásdís:

Til hamingju Halli!
Ég ætla að henda seríóspakkanum mínum og kaupa nýjan og borða mikið af því að næstunni.

Til hamingju :D

Þetta er ótrúlega flott líka.

en flott
ég ætla að kaupa kókópöffs og seríós og færa svona bara kókópöffsið í seríóskassann...

Ótrúlega frábærlegt-æðigengið!

ótrúlega krúttlegt og kúl, segi eins og Jonni, fasista danir ættu bara að fara að selja íslenska töff seríosið hér í danmörku, (væri allavega fyndið að þýða þórberg og njálu yfir á dönsku...)

Takk allir fyrir fögur orð. Án gríns þá hélt ég að þetta kæmi aldrei á markað, þannig að ég er pínu feginn að sjá þetta.

mér finnst aðgát skal höfð í nærveru sálar og kallinn sem er að horfa í spegil í ofurbúning og sofandi kallarnir sem komast ekki í mark uppáhalds

(ekki samt segja hinum)

Maggi Mús:

Til lukku Halli....

má ég núna kalla þig General Mills ?

Hallur:

Glæsingur, virkilega flott! Nú get ég hent hallærislega kornflex pakkanum! Sjáumst á götunni.

Rosa flott af preview-myndunum að dæma!

Til lykkelse.

Quite Cheeriously cool.

Takk!!! Þið eruð svo góð.

Bob:

Sko, Halli. Núna verður þú að teikna umbúðir á ost, mjólk, Hómblest og pulsur, því ég mun ekki borða neitt nema að þú hafir teiknað á það.

bjútíful

innilega til hammsí ég rýk úfinn út og kaupi mér Cherrios - nice töts með Jordan skó á tréið - luv it luv it

dd

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 15. ágúst 2007, kl: 07:05.

Fyrri færslan er Heróínið hans Sigurjóns verður heróínið okkar.

Næsta færsla er "How Do I Keep All Age Groups Dancing All Night?".

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31