« Fínir fínir fínir! | Aðalsíða | orðleysi »

Opnist þú, Jordan

Til að vita hvenær næstu Jordan skór koma út, og hvenær þú eigir að smyrja mikið nesti og finna svefnpokann, er auðvitað hægt að gúgla "Jordan release dates" eða nota einhverjar af þessum síðum:
- Sneakerfiles
- Nice Kicks
- 23 is back

Stundum breytast upplýsingarnar þannig að það er þess virði að tékka á þeim reglulega, en sjálfur fer ég í búðir nokkrum dögum áður til að dúbbeltékka.

Flestar síðurnar sem selja skóna --þ.e. ekki offisjal búðir/síður einsog FootLocker, Footaction, Athlete's Foot, og Eastbay-- segja það fyrirfram að þær munu selja skóna dýrari. Á þeim vefsíðum munu skór sem kosta $125 útúr búð, kosta kannski $230, oft mikið meira. Og það er bara rétt eftir að skórnir koma út, því nokkrum dögum seinna, þegar það er orðið virkilega erfitt að finna par, þá getur verðið hækkað.

En verðið er það sama í öllum offisjal búðum og á þeirra vefsíðum, og því langbest og sniðugast að kaupa þá í búð.Ég hef enn ekki legið í álteppi í nokkra klukkutíma fyrir utan einhverja búð til að eignast skó, og er ekki alveg viss um að ég geri það.

Jumpman23.com er offisjal vefsíða Nike, og þar er hægt að sjá flott timeline um alla Jordan línuna, með dimmrödduðum karlmanni þrumandi sögum yfir lýðinn.
Þetta er fín en ólinkanleg flash-síða, þannig að þú smellir bara fyrst á Jumpmanninn á forsíðunni, og svo á Jordan 1 þarna neðst til vinstri (rauðu, hvítu og svörtu) og tárast svo yfir öllu.

Skilaboð (8)

Njörður:

Ohhhh. Halli! Þú ert versti sneakerhead í heimi. Þú segir aldrei hvar þú getur reddað skóm eða hvaða skór koma út hvenar. Fólk verður að finna þett út sjálft;-)
Annars ert þú með fullt af fólki í alveg eins skóm sem er GLATAÐ. Ýmindaðu þér að þegar þú kemur heim þá eru 100 manns í Jordan 3 "do the right thing" skónum. Þá eru þeir ekkert spes lengur.
Eyddu þessari færslu elsku drengurinn minn.

Big Jordan fan here! Hérna er önnur síða sem þú getur fylst með Jordan-skóm.
http://www.air-jordans.com/xtra/

Oddur:

var hugsað til þín þegar ég sá þetta: http://www.sneakerhunt.com/nike-air-mcfly-to-be-released/

Njörður: það er ekki flókið að finna þessar upplýsingar ef maður vill það, og ég ætti ekki mikið af uppáhalds tónlistinni minni eða fínum skóm ef það væri ekki einmitt fyrir annað fólk að dreifa þessum upplýsingum, eða bjóða mér að downloada tónlistinni þeirra.

Ég er glaður þó allur heimurinn viti þetta. Enda eru þetta mjög fínir skór.

Gunni og Oddur: takk fyrir linkana!

og Oddur: já, haha, var búinn að skrifa undir þetta fyrir einhverju síðan! Sjiii hvað ég væri til í svona skó!

:-)

Go Jordan!

I'm happy to have found your exceptionally fine article! I agree with some of your readers and will eagerly look forward to your coming updates. Just saying thanks will not just be adequate, for the wonderful lucidity in your writing. I will instantly grab your rss feed to stay privy of any updates. Fine work and much success in your business efforts.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 16. apríl 2007, kl: 13:42.

Fyrri færslan er Fínir fínir fínir!.

Næsta færsla er orðleysi.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31