Stúdíóbúð til leigu á Manhattan, 1. júní til 30. ágúst
Áhugasamir sendi tölvupóst á: email@icomefromreykjavik.com
( ég set upp vefsíðu fyrir íbúðina bráðum, með myndum og rjúkandi smákökulykt )

Hæ elskulegir vinir mínir, nær og fjær.
Ég verð líklega á Íslandi í allt sumar, frá júní til september, og því verður íbúðin mín hér í New York tóm allan þann tíma. Ég er með fastan leigusamning, og vil endilega finna yndislega Íslendinga sem vilja leigja íbúðina á þessu tímabili.
Helst vildi ég finna leigjanda sem verður í New York nær allt sumarið, eða því sem næst. Annars er ég tilbúinn að leigja hana áhugasömum og hjartagóðum sem ætla sér að heimsækja New York í einhvern tíma, stuttan eða langan.
Íbúðin er að sjálfsögðu á frábærum stað á frábærri Manhattan, á 33. stræti og 3. avenue, í hverfi sem heitir Murray Hill [ sjá kort ]. Hér er fullt af allskyns veitingastöðum frá öllum hornum alheimsins, tveir ilmandi ferskir súpermarkaðir (opnir 24/7) eru sitthvorumegin við götuna, neðanjarðarlestarstöð í 2ja mínútna fjarlægð, apótek á næsta götuhorni, stórt bíó og bókabúð einni götu frá, og margt fleira sem gleður hjartað mitt á hverjum degi. Stutt labb á Herald Square, þar sem þú finnur Macy's ofurverslunarmiðstöðina, ásamt Manhattan Mall, Victoria's Secret, H&M, Gap, Sephora snyrtivörubúðinni, Footlocker skóbúðinni, og endalausu öðru. Fyrir allt annað er hægt að taka lestina (sem er ó svo nálægt) eða hægt að hoppa uppí misglansandi leigubíla sem stoppa beint fyrir utan (eða hvar sem þú vilt).
Íbúðin er stúdíóíbúð með parketi, inngengnu flísalögðu eldhúsi, inngengnum fataskáp (walk-in closet), og baðherbergi með glimrandi baðkari. Öll húsgögn keypti ég þegar ég flutti hingað fyrir ári, þ.á.m. er hátízku sjónvarp og DVD-spilari, kapal-internettenging, og hellingur af sjónvarpsstöðvum fyrir áhugamenn um auglýsingar. Svo er rúmið mitt fáránlega þægilegt, Tempur Pedic, þannig að allir leigjendur snúa heim til Íslands með læknað bak. Þetta verður einskonar heilsu-verslunarferð.
Aftur:
Stúdíóbúð til leigu á Manhattan, 1. júní til 30. ágúst
Netfangið mitt er: email@icomefromreykjavik.com
Elsku lesandi, nú þarf ég hjálp þína. Í ódauðlegu orðum eins frægasta New Yorkarans, 'start spreading the news', og segðu öllum sem þú getur.
Elsk,
Halli
Skilaboð (4)
´I´m leaving today´...
Skrifað 17.04.07 08:57
Bjarki: sendu mér tölvupóst. Þarfað tala viððig.
Skrifað 17.04.07 09:00
Búinn að senda þér póst :)
Skrifað 17.04.07 09:44
Heyrðu. sendu á mig upplýsingar um það hversu há leigan er á mánuði eða yfir tímabilið. asgjon@gmail.com
Skrifað 21.04.08 13:44