
Ég heiti Halli og ég er fíkill á eftirfarandi hluti: nýtt ósmakkað nammi, vanillu-hvaðsemer, fína skó --aðallega Jordan-- og bíómyndir með öpum. Ég legg þ-laga lykkju á leið mína til að smakka eitthvað, sjá eitthvað, eignast eitthvað, eða lykta af einhverju sem er á listanum. Þú hefur þína lesti (fótbolta, munntóbak, Jerry Bruckheimer), þetta eru mínir.
Skórnir að ofan heita Jordan 3 Retro LS Brisk Blue, eru inspæraðir af myndinni 'Do The Right Thing'. Þeir komu út 14. apríl í Limited Release, sem þýðir að þeir fara í fáar (útvaldar) búðir, og eru bara framleiddir í karlastærðum. Hver búð fær þaraðauki bara tvö eða þrjú pör í hverri stærð, og stundum ekkert í sumum stærðum. Ég keypti þá ekki afþví að þeir eru eitthvað limited eða hip & kúl, heldur afþví að mér finnst þeir flottir. Að sama skapi smakka ég ekki nammi með kúkabragði bara afþví að ég hef ekki smakkað það.
Hringur spurði hvernig ég fékk þá, og ég ákvað bara að svara honum hér í langri súper-analízkri manískri útgáfu: eftir mikið vesen og spjall við allskonar starfsmenn nokkurra skóbúða (ég varð "vinur" þeirra allra) þá var ég búinn að redda mér eintökum daginn fyrir releasið, en komst svo að því að þeir færu ekkert í allar búðirnar sem þeir áttu að fara. Þeir fóru á sölu á netinu á miðnætti (Niketown, Footaction, og fleiri offisjal vefverslanir) og seldust upp á 10 mínútum, það fljótt að þegar ég tékkaði á netinu kl. 00.35 var ekki einusinni mynd af þeim neinsstaðar. GISP!
Ég setti upp geðveika skeifu, grét í baði, klippti plaköt af Jordan í tætlur og fleira þannig. Svo laugardagsmorguninn (þann 14.) kl. 7.55 hringdi ég og fann eina búð sem átti einhver stykki og opnaði ekki fyrr en kl. 8. Ég klæddi mig hraðar en ég hef nokkurn tímann gert og stökk niður stigann og uppí leigubíl og var kominn í búðina 4 mínútum seinna. Þar fékk ég svona fínt, og keypti líka par fyrir Njörð. Hann var nefnilega svo góður að gefa mér Jordan 5 Fire Red, sem komu út þegar hann var hjá mér í heimsókn í desember.
Það er ennþá hægt að fá þessa skó á nokkrum stöðum, t.d. PickYourShoes, eBay, 23isback.com, þannig að ef þig langar í þá þá skaltu bara fá þér. Kannski þarftu að troða tveimur sokkapörum í tánna tilað geta notað þá, en þúveist, fegurð og fágun er ekki gratís.
Það er mismunandi hvort re-relase Jordan skór komi í General eða Limited Release, en það skiptir oftast litlu máli því þeir seljast upp strax. Auðvitað eru alltof margir apaheilar sem kaupa mörg pör og fara svo beint á eBay eða Craigslist og selja þá á þreföldum prís. Ég hata svona lið! Hefur engan áhuga á sjálfum skónum, en vill bara græða á þeim sem langar í þá. Nákvæmlega sama helvítis liðið og kaupir miða á tónleika sem þeir vilja alls ekki sjá, bara tilað geta grætt á góðhjörtuðu bláflibbaliði sem er búið að safna fyrir miðanum í nítján ár.
Enníveis, í sumar ætla ég og Njörður að fara samfó út í Jordan skónum sem við eigum: Jordan III, Jordan V, og Jordan VI. Við munum labba varlega og labba hægt, kannski bara ekki labba neitt heldur klæða okkur í skóna eftir að við komum út í bíl (þar sem við munum sitja aftur í, að sjálfsögðu), eða láta keyra okkur um í hjólastól, sem mér finnst vera líklegast.
Ómar: þú mátt koma með í þínum. Svo getum við faðmast og grátið örlögin.
p.s. það eru margir fleiri fínir Jordan á leiðinni. *sniff* get ekki bítt!
Skilaboð (12)
Næs skór :D
Skrifað 14.04.07 11:06
ertu ad grinast va va
Skrifað 14.04.07 11:49
halli heppni!!!
Skrifað 14.04.07 13:44
day-um hvað þeir eru sækó sikkað hott.. mega sega overdrive til hamingju með þá ... mig langar í svipaða wahhh
dd
Skrifað 14.04.07 22:00
váááááá hvað þeir eru fínir!Til hamingju!!
Skrifað 15.04.07 13:00
Næz mig langar í.
Hvar fékkstu þá ?
Skrifað 15.04.07 17:29
Þetta eru bráðfallegir skór - tímirðu að ganga í þeim? Ég hef einu sinni keypt retró Jordan, það var '92 módelið sem kom beisikk í svörtu og rauðu og svo hvítu og vínrauðu. Svo var til hvít útgáfa með rauðu, bláu og pínu gylltu - Olympic Dream Team útgáfan. En mínir voru samt svalastir - AllStar Weekend Edition, gráir og fjólubláir. Það átti þá enginn; "seldom seen, few and far between". Það var samt ekki re-release heldur orginal par í minni stærð sem fannst inni á lager í Útilíf í Glæsibæ og ég keypti á 9.900kall :)
Skrifað 16.04.07 05:00
Innilega til hamingju Halli.
Ég skil þig geðveikt vel :) ...Passaðu þig bara á Óla T...hann er alltaf AÐ reyna að skemmileggja NIKE skópælingar.
Skrifað 16.04.07 12:40
En hvar fylgist þú með því hvaða Jordan skór eru væntanlegir og í hvaða edition þeir verða og svo framvegis?
Ég elska Jordan-skó!
Skrifað 16.04.07 18:28
Cool Sneakers
Hilsen from RVK 2 NYC
The Ox
Skrifað 17.04.07 19:15
vvvvaaaaáá... en þúst hvað ef stelpu eins og mér með littlar fætur langar svona í fína skó...???
ætti ég kannski bara að gefast upp strax og byrja ganga í kleenexkössum??
Skrifað 20.04.07 05:04
ORmyxW Buy Viagra online
Skrifað 30.09.10 21:10