
Ég og Sigurjón vorum loksins að opna New York síðuna okkar. Í miðju msn-blaðri síðasta haust komumst við að því að við vorum báðir með sömu hugmyndina um að vera með New York síðu fyrir venjulegt fólk, sem vill hamborgara, strigaskó, og fínar bækur (og brækur). Umfjöllunin um New York heima á Íslandi er oftast mjög einsleit, og í rauninni virðast fáir hafa einhverja þekkingu um borgina (þó svo þeir hafi komið hingað) fyrir utan það sem kemur fram í uppblásnum bæklingum og auglýsingum frá Icelandair, sem eru þá aðallega um dýr hótel, örfáar high-end-tískuverslanir og rándýra 19 stjörnu veitingastaði.
Sigurjón sagði:
Ég fæ þessa tilfinningu vegna þess að þegar fólk fréttir að ég búi í NY þá spyr það nánast undantekningalaust hvort það sé ekki rosalega dýrt að búa hérna, hvar séu heitustu klúbbarnir og flottustu verslanirnar. New York er svo allt öðruvísi en eitthvað svoleiðis kjaftæði og í rauninni hef ég upplifað borgina svo allt öðruvísi að ég get hreinlega ekki svarað þessum spurningum. Ég er alls ekki að segja að ég sé eitthvað á móti túrisma, high-end tísku eða rándýrum og flottum veitingastöðum. Síður en svo, ég fíla það alveg eins og næsti gaur. Raunveruleikinn er hinsvegar sá að 90% af borginni er akkúrat ekki um tískuverslanir, klúbba og flotta veitingastaði.
Þessvegna ætlum við Sigurjón að skrifa um það sem okkur finnst skemmtilegt, fallegt og gott við New York. Eitthvað sem við mælum með fyrir fólk sem er á leiðinni hingað og vill ná að brjótast aðeins í gegnum Times Square skelina, og sjá að það er ekki svo flókið að gera allskonar hluti. ATHUGIÐ ÞÓ að við erum augljóslega ekki þeir einu sem hafa komið hingað, þannig að þetta er ekki einhver hrokasíða sem á að sýna hvað við erum klárir í New York (þó við séum það). Þessvegna viljum við endilega fá athugasemdir frá fólki sem lumar á einhverjum skemmtilegum stöðum sem vert er að fjalla um.
Slóðin á síðuna er: http://www.icomefromreykjavik.com/egelskanewyork/
Skilaboð (7)
hehe þið eruð svo mikil krútt að halda að öllum eigi eftir að finnast þið ýkt typpalegir og hrokafullir:)
sko það er bara akkúrat þannig fólk sem á eftir að líta á þetta þannig.. fólk sem hugsar "hhggrrhhh! hva þykjast þeir vera voða klárir um njú jork.. þegar ég var þarna þá var sko mjimjimji"
öllum sem eru ekki vangefnir eiga eftir að finnast þetta sniðugt!
(ps ég skrifaði fyrsta kommentið á þetta, fæ ég verðlaun?)
Skrifað 18.04.07 19:20
Ég mun RSSa þetta og leggja á minnið fyrir næstu NY ferð.
PS
Snoturt yfirvaraskegg.
Skrifað 18.04.07 19:29
Schnillllld!!!
Skrifað 18.04.07 21:00
sweet jesus that´s smooth ;)
lm lovin it.. búin að commenta þar og allt ;)
dd
Skrifað 18.04.07 22:44
vá þetta er einmitt það sem ég er búin að vera að leita að...
samt er ég ekkert á leiðinni út strax.. stefni þangað þegar ég útskrifast... eeehhh
Skrifað 19.04.07 12:13
Vávává hvað þetta er sniðugt hjá ykkur!
Sniðugt og ekkert typpalegt.
Skrifað 19.04.07 12:16
Do you have any more info on this?
Skrifað 30.09.10 21:08