« Nammi! | Aðalsíða | Feministablaðran er sprungt! »

Andskotans.

Mér finnst pínlegt hvað Íslendingar eru miklir hræsnarar. Þora ekki og nenna alls ekki að standa sjálfir upp og berjast fyrir einu eða neinu, sama þó það sé eigin náttúra, dýr matur, skerðing málfrelsis (sem öllum virðist vera skítsama um hvortsemer)...

...eða jú, ef það er í gegnum óumbeðna fulltrúa sína, sem eru með dreadlocks, í mussum, og með ríkisborgararétt í einhverju allt öðru landi, og mega keðja sig við gröfur, eða koma til bjargar fólki í gulum bolum.

Helvítis útlendingar alltaf með vesen, hmm?

Ég nenni ekki að tala um klámráðstefnuna, enda bæði óþarfi þar sem allir aðrir eru búnir að tala um það endalaust, og þessi blessaða ráðstefna langt frá því að vera (a) það ósmekklegasta sem gerst hefur á Íslandi, eða (b) í fyrsta skipti sem Ísland er vettvangur fyrir dirty weekend. Ef miskristnir Bylgjuhlustendur hafa áhyggjur af slæmum áhrifum klámmenningar --sérstaklega erlendrar klámmenningar á óhörðnuð íslenzk ungmenni-- ætti sama fólk að slökkva á útvarpinu, leggja frá sér sviðakjammana, hætta við að senda lesendabréfið í Moggann tilað kvarta yfir enn einni sjónvarpsauglýsingunni, og í staðinn banka létt á hurðina hjá barninu sínu og athuga hvernig því líður. Elsku fólk: Charity begins at home; ykkur væri nær að taka mjúklega utanum ósofna og þunna dóttur ykkar og spyrja afhverju hún staulaðist um allsber ofaná einhverju barborði á strippkvöldi, eða vill vera í heitapottinum í Keflvískum glyðruþáttum. Svo getið þið líka alltaf lagt ykkar af mörkum svo alvöru skrímsli (dæmd skrímsli, ekki random útlendingar) einsog Steingrímur Njálsson og aðrir frændur, bræður, afar, nágrannar, og einstaklingar fái ekki tækifæri á að gera meira.

Og áður en "við" förum að gráta yfir örlögum erlendra klámkvenna, þá skulum við byrja á því að hugga og hugsa um íslensku stelpurnar, ókei?

Enníveis, hér er eitthvað sem ég kommentaði á bloggi, sem byrjaði sem svar við fyrsta kvótinu hér að neðan. Umræðan er nefnilega svo flókin og margþætt, og ég er orðinn SVO ÞREYTTUR á einhverju frjálslegu tali um líðan klámstjarna, vændiskvenna, strippara og allra annarra í sama stéttarfélagi. Mér þykir mun líklegra að þessu fólki líði illa en vel. Plís, prove me wrong!

Og afþví að þetta er mitt blogg þá rambla ég eins lengi og ég vil, og ritskoða mig seinna ef mig langar.

Kommentið endilega og segið mér að ég sé þröngsýnn femínisti eða þröngsýnn pervert eða þröngsýnn kaupmaður dauðans, eða víðsýn útgáfa af því eða einhverju öðru.

Byrj:

“Fyndið hvað þessir fordómar hjá feministum útí klám-bisnessinn byggist á gamalli og úreltri hugmynd um hvernig klámiðnaðurinn hlýtur að vera. Ekkert nema misnotaðar konur sem eru seldar á milli fyrirtækja til að búa til grófar sadó masó bíómyndir.”

Ekki að ég sé að verja málsstað eins eða neins, eða nenni að tjá mig á nokkurn hátt um þessa ráðstefnu, en mig langar að spyrja alla sem vilja svara: Hvernig er og virkar klámiðnaðurinn? Hver er hin uppfærða og upplýsta hugmynd um tilfinningalegt ástand þeirra sem vilja gera klám?

Í þau skipti sem klámumræða kviknar á ýmsum spjallvefum á Íslandi, hefur það alltaf verið eins: allir -- sem þýðir í 99,999% tilvika "ungir karlmenn"-- segja að klám sé jú “elsta atvinnugrein í heimi”, og þegar þeir átta sig á því að sá fróðleiksmoli er algjörlega máttlaus er honum skipt út fyrir “í dag fer fólk útí klám af fúsum og frjálsum vilja”, með viðbótinni “þó sumir séu auðvitað í slæmu ástandi, eða kannski lent í einhverju…”.

Samkvæmt hverjum?

Alveg eins og ég trúi því að til séu manneskjur sem sjái ekkert rangt við það að koma fram í og framleiða klám, þá segir það sig sjálft að einhver hluti fólksins gerir þetta af allt öðrum ástæðum. Ójafnvægi, vanlíðan, þörf fyrir viðurkenningu, athyglissýki, óslökkvanleg hamingja? Hvað gengur á inní hausnum á fertuga lyftarakallinum með taglið í sjávarplássinu sem er búinn að sofa hjá öllum stelpunum, eða stelpunni á 3. ári í grafískri hönnun sem liggur uppí sófa í partýinu og sleikir útum glottandi á meðan gaur númer sjö lýkur sér af, hálf-blindaður af vídjókameruljósinu, og hálf heyrnarlaus eftir allt klapp partýgestanna.

Er allt í fína lagi? Ég spyr afþví að ég veit ekki svarið. Í alvöru, segðu mér: er nóg að brosa allan tímann?

Kannski er málið að ég tengi engan veginn við þetta; líkurnar á því að ég stundi kynlíf fyrir framan myndavél og tökulið eru vart mælanlegar (og fáir sem vildu taka þátt í því "ævintýri"). Og þó...ekki nema ég þyrfti virkilega virkilega á peningunum að halda, að ég væri kominn í eitthvað vesen og…

…well, hvernig virkar þetta? Hvað eru þessar stelpur að hugsa? Það sama og allir austur-evrópsku strippararnir á Íslandi sem eru bara að safna pening fyrir háskóla- og doktorsnáminu? *

Það er ekki nóg að segja að feministar séu öfgafullir og hafi rangt fyrir sér. John Kerry rembdist við að segja fólki að kjósa EKKI Bush, en gleymdi því að segja afhverju það ætti að fylgja honum.

Þannig að, ef feministar eru að bulla: hver er þá sannleikurinn?

* aftur: ég VEIT að það fólk er til sem kemur fram opinberlega og segir heiminum frá því að það fór útí klám eða vændi eða stripp (eða hvaðsemer) af fúsum og frjálsum vilja, og að það sé með sjálfstæðan vilja, hafi mjög sterka sjálfsmynd, hafi aldrei orðið fyrir neinum verulega slæmum skakkaföllum í æsku, hafi átt í eðlilegum samböndum, og hafi (auðvitað) notað peningana til að fjármagna MFA-nám í handritaskrifum / leikstjórn / enskum fagurbókmenntum -- þú fattar pointið.

Aftur: ég veit að þetta fólk er til, alveg einsog það er til fólk sem drekkur bara um helgar og í hófi með hæfilega elduðum mat (og plís, ég er bara að bera saman tvennt sem á ákveðin element sameiginleg ("klám/vændi" og "áfengi", bæði með supposed góða hlið v.s. slæma hlið; ætla því ekki útí umræðuna um óteljandi mismunandi ástæður eða eitthvað þannig)).

Allir þekkja einhvern sem drekkur, og ALLIR þekka einhvern sem misnotar áfengi --mjög líklega fjölskyldumeðlim. Hverjir eru líklegastir til að halda því fram að áfengi sé ekki eitur, skemmi ekki fólk, og sé ekki eldsneyti á vanlíðunarbál? Þeir sem hafa aldrei orðið vitni af eða upplifað það sem fylgir drykkjunni.

Það er eitt að horfa á myndband af (a) fólki á djamminu, (b) fólki borða gljáða nautasteik með fínu, eikuðu rauðu, eða (c) fólki horfa á úrslitaleik í kappreiðum drekkandi nokkra kalda.

Ef kynni fólks af drykkju væru mest í gegnum sjónvarpið þeirra, þ.e. fólk því sjaldan að drekka sjálft en aðallega að horfa á aðra drekka, myndu mjög fáir trúa því að eitthvað slæmt gæti komið útúr drykkjunni, ekki satt? Einn dettur á rassinn hér, og annar gubbar útum leigubílahurð þar...en þeir virðast vera ýkt hressir!

Hví ætti þetta lögmál ekki að gilda um klám?

Er þetta semsagt mýta? Allar stelpur sem sækjast í það að leika í klámmynd eða koma fram allsberar á vefsíðu eru fullkomlega heilbrigðar stelpur á framabraut.

Ég myndi ekki snerta svona fullkomlega heilbrigða stelpu með flaggstöng. Fjarstýrðri. Úr háhýsi.

Skilaboð (11)

harpa:

ég mun aldrei ALDREI, trúa því að konur í þessum bransa séu með heilsteypta sjálfsmynd, efast t.d stórlega um að þær myndu hleypa dætrum sínum í þetta. Það skín svo í gegn í öllum heimildarmyndum og viðtalsþáttum við þessar stúlkur að þeim líður ekki vel sama hvað þær reyna að mótmæla og bera sig vel og hrósa þessum "frábæra" iðnaði. Held það fari bara eftir því hversu skemmdar þær og heilaþvegnar af sveittum viðbjóðs köllum sem nýta sér veikleika þeirra og lokka þær út í þetta. Arg verð brjáluð og svo sorgmædd þegar ég hugsa um þetta.
En sammála Halli byrjum á uppeldinu heima, og knúsum fallegu dætur okkar.

Bob:

Margt að melta.

Ég fatta ekki þessa Lilja-4-Ever martraðarfantasíu sem svo margir virðast hugsa um þegar talað er um ráðstefnuna.

Þetta er ekki rússneska mafían með ráðstefnu um kynlífsþrælkun stríðshrjáðra fórnarlambs-kvengreya. Það horfir enginn á þannig klám. Ég held jafnvel að þannig klám sé bara ekki til. Þetta er Hollywood-klám. Þetta er milljarða bissness þar sem sumar leikkonurnar græða meiri pening á mánuði en við tökum inn á áratug. Gríðarlegur meirihluti kláms sem selt er í heiminum kemur frá Kaliforníu. Þessar konur lifa í Los Angeles, keyra um á litlum bleikum blæjubílum og líta á þetta sem leið sína á toppinn (það er líka til "Klámkynslóð" í USA - bara milljón sinnum verri en okkar). Þetta lið sem er að koma hingað eru ekki melludólgar og lúbarðir kynlífsþrælar.

Auðvitað er þetta lið með ónýtt sjálfsálit og við erum öll miklu heilbrigðari manneskjur en þau. En ég bara nenni ekki að heyra ofstopa-móðursýkina í kringum þetta. Ef ég heyri orðið "mansal" einu sinni enn þá fríka ég út.

VHS vann Betamax útaf því að klámiðnaðurinn valdi VHS. Ekkert stoppar klám. Það mun alltaf vera til. Við megum ekki þreyta sálina okkar að grenja þá staðreynd.

En við getum þó gert einsog Halli segir, bætt sambandið við æskuna... og talað um málið á þroskaðan hátt (that goes fyrir báðar hliðar umræðunnar).

En varðandi ráðstefnuna: Mér er skítsama um að eitthvað klámpakk sé að vélsleðast einhversstaðar uppá fnjúk.

Klám er kanski böl en við sem þjóð höfum verið tengd við milljón sinnum verri hluti en að vera vettvangur fyrir internetklámmógúlapartý. Hvernig væri að nota þessa tryllingsorku og brjóta niður stíflur og fordóma og of lága dóma í nauðgunarmálum?

Úff ok nóg í bili.

skemmtilegur pistill.

Framboð ræðst af eftirspurn og eftirspurn eftir klámi er gífurleg, rétt eins og eftir eiturlyfjum og áfengi, hinn vestræni heimur rambar á barmi andlegs gjaldþrots og beitir öllum mögulegum og ómögulegum ráðum til að moka í holuna í sálinni einhverju drasli og fátt svosem við því að gera nema eins og þú bendir réttilega á, að rækta sinn eigin garð af samviskusemi.

Hvort það feli í sér að neita fyrrnefndum kaupsýslumönnum um bændagistingu skal ég ekki segja til um en þó verð ég að segja að mér finnist málið lykta af fasisma og tvískinnungs..... en það er jú bara ég.

Ó Halli nú gæfi ég handlegg fyrir það að geta sest niður með þér með risa kaffibolla (eða kirsuberja/vanillu-pepsi)

Fuck yeah brutha!

Jó nigga! Sko...

Stelpur á aldrinum 17-23 eru oft frekar klúless. Þær eru hálfgerðir hömlulausir krakkar ennþá, með kynhvöt sem gengur oft meira út á að performera heldur en að njóta. Þessar stelpur eru yfirleitt gefnar fyrir athygli, vantar peninga... og sjá ekki beint neitt rosalega slæmt við það að sýna á sér pjölluna (kannski finnst þeim það jafnvel töff). Í raun vegna þess að þær hugsa kannski ekki alveg út í afleiðingarnar. Þegar maður er 20 þá líður manni eins og maður verði aldrei 40. Nei, forever young og enginn morgundagur. Pjalla og penge... whatever! I can do what I want! Fattaru?

Svo er það þetta með að líða ekki vel. Í raun eru til heilu bransarnir þar sem fólki líður ekki vel. Til dæmis er módelbransinn fullur af stelpum með handónýta sjálfsmynd og anórexíu og þeim finnst fátt betra til að "losna við sig" en að nota dóp. Auðvitað eru einhverjar inn á milli sem eru í lagi, en mjög margar eru það ekki.

Þegar ég las um klámfrelsunina í köben 1968 þá var því lýst sem svo að kynglöð ungmenni tóku þessu fagnandi. Fækkuðu fötum og gerðu dodo fyrir framan myndavélar, aðallega til að fagna einhversskonar hippa/ástar/tilsammans frelsi. Ég held að það sé alveg eitthvað svoleiðis í þessu líka. Gaman að vera berrassaður eitthvað...

Það er örugglega bara allskonar fólk í þessu klámdóti. Misnotað, ekki misnotað, í dópi, ekki í dópi osfrv. Fyndið samt hvað það er alltaf röflað um stelpurnar. Eins og þær séu einu fórnarlömbin. Hvað með strákana? Er ekkert skemmandi fyrir þá að leika í klámmyndum? Hvað með framtíðina og drauminn um að verða einhverntíma forstjóri? Eða pólitíkus? Er ekkert leim að vera númer 15 til að fá að setja hann í einhverja lausgirta stelpu? Nei nei... þetta er allt bara niðurlæging og kvenkúgun.is

Eitt getum við þó verið sammála um: Klámfólk er flippað.

Bob: sammála mestu, nema ég trúi því að Lilya-4-ever sé alvöru.

Pétur: takk og já!

Kamilla: veit ekki alveg hvað þú meinar. Ertu að fara að skamma mig?

Magga: ég er bara að tala um stelpurnar afþví að það eina sem heyrist er einmitt "greyið stelpurnar" og svo mótsvar við því, þúveist.

Ég er sammála þér með gloríur og slæmar ákvarðanir sem fólk gerir þegar það er ungt og klúless, og það er hluti af öllu manipulationinu, right? Fólk um fertugt að taka vídjó af fólki um fertugt að gera búbú má eiga sig. Enda eru fæstir að tala um þetta fólk.

Ég eyddi út einhverju sem ég skrifaði um módelbransann og svo tónlistarbransann, listafólk, rithöfunda, í rauninni meirihluta til skapandi fólk, sem keyrir oft á gríðarlega beygluðum tilfinningum, enda hægt að fá margt fallegt og stórmerkilegt úr svoleiðis fikti.

Og einsog ég skildi eftir, þá veit ég að þetta er sport fyrir marga. "Ég vil sýna langa tillann minn á vídjói", "Mér finnst gaman að hugsa um alla kallana sem langar í mig" o.s.frv.

(og auðvitað er allskonar fólk í ÖLLU. Glatt, gratt, vitlaust, gáfað, feitt, ljótt, misnotað, misnotandi, júneimit)

En málið er að það eru mjög fáir hlutir sem nokkur manneskja getur gert í dag sem hefur ekki áhrif á líf einhvers annars, hvort sem þú ert gerandi eða þolandi, eða millimaðurinn.

Eftirspurn eða sú staðreynd að klám SÉ staðreynd, segir nákvæmlega ekkert um hvað klám er, þýðir, gerir o.s.frv.

Fáðu einhvern gaur og einhverja stelpu til að koma með þér uppá hótelherbergi og vera í einu atriðinu í myndinni þinni, og þú ert ekki bara að hafa áhrif á þau og þeirra líðan (í X langan tíma), heldur líka hvernig þau haga sér í kringum sjálf sig, annað fólk, börnin sín, vini, ættingja...hvað sem er. Klám er bara einhvernveginn ekki hluturinn sem ég hugsa um þegar ég er beðinn að nefna "eitthvað jákvætt", þúveist?

Kynlífs- og náin tilfinningasambönd við aðra einstaklinga eru það sem hrærir hvað mest í hausnum og hjartanu í fólki, og er kannski á Topp 2 listanum "Hlutir sem flækja líf mitt oft óendanlega". Að taka sjensa getur, og hefur oftast slæmar afleiðingar sem elta fólk næstu árin. Ef þetta snýst um að fólkið sé greinilega ekki nógu sterkt til að díla við þetta, þá þýðir það að sama skapi að þetta fólk er veikara fyrir manipulation, ekki satt?

Klámumræða fer beint útí umræðu um vændi (og klám er vændi, ekki satt?), því gott-ef-ekki allir stuðningsmenn og -konur kláms (sem eru beisiklí annaðhvort leikstjórar eða rithöfundar) færa rökstuðninginn sinn yfir á það: að öllum sé frjálst að gera það sem þeir vilja og kjósa, að það sé mikilvægt að vernda og virða personal preference sem þarf ekki að passa við þitt, og að stelpugreyin sem allir vorkenna séu engin stelpugrey, heldur sterk kvendi með skoðanir, sterka siðferðiskennd, og bullandi sjálfstraust.

Right.

Ég lít ekki svo á að það þurfi, eða að neinn sé að búa til fórnarlamb þegar talað er um klám. Klámið virðist sjá um það alveg sjálft þegar það á við. Ég skal kvitta undir að ekki séu allir fórnarlömb, en það þarf ansi stórt rannsóknarteymi og langan, langan tíma til að finna hverjir eru það ekki.

Gaui:

Flott færsla hjá þér.

Takk.

Æi, það er samt til svo mikið af Raunverulegum fórnarlömbum í heiminum að maður fari ekki að gera veður úr einhverjum greyjum sem gera sér það til miska að fara úr að neðan og láta taka af því mynd. Ég meina... er ekki svo ótal margt sem er hræðilegra en það?

Helst myndi ég vilja ráðast á rót hins illa... sem er vanræksla og ofbeldi gagnvart börnum. Þar byrjar þetta allt. Sumt er bara búið að skemma ,en ef það er byrjað í dag að búa til heilbrigðari framtíðar kynslóðir, þá kannski er útópíski draumurinn um gullöldina aðeins nærri? Ef öll börn fengju fullt af ást, góðar fyrirmyndir, tilfinningalegt öryggi osfrv þá myndi eflaust engann langa neitt sérstaklega til að sanna ágæti sitt með því að sýna á sér tillann eða taka myndir af fólki að ríða? Eða hvað veit ég...? Mannskepnan er samt alltaf með kynlíf á heilanum...Hvort sem er með eða á móti...Freud eða Annie Sprinkle...Ég held ég viti ekki neitt. Ég kem frá Úranusi.

This online site is a complete internet resource for this. You'll find all you wanted or needed to know, here.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 22. febrúar 2007, kl: 23:50.

Fyrri færslan er Nammi!.

Næsta færsla er Feministablaðran er sprungt!.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31